Segir rangt að telja aldraða vera byrði á samfélaginu

Búast má við að kostn­aður hins opin­bera vegna líf­eyris muni lækka á næstu ára­tugum, þar sem líf­eyr­is­þegar muni fá meira greitt í eft­ir­laun. Fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra segir þetta sýna að aldr­aðir séu ekki byrði á sam­fé­lagið þegar allt er skoðað.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Kostn­aður almanna­trygg­inga vegna líf­eyris aldr­aðra mun lækka á næstu árum, að óbreyttum reglum. Þetta segir Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Aldraðir greiða líka skatta

Í grein­inni segir Benedikt að oft sé talað um að hluti af vel­ferð­ar­byrð­inni svo­nefndu sé bæði kostn­aður við eft­ir­laun og umönnun aldr­aðra. Í því sam­hengi gleym­ist þó oft að líta á skatt­ana sem aldr­aðir greiða, en þannig standi þeir undir hluta af sam­fé­lags­kostn­að­inum.

Samkvæmt útreikn­ingum Bene­dikts, sem byggja á skýrslu Talna­könn­unar um líf­eyr­is­kerfið fyrir Birtu líf­eyr­is­sjóð, hafa skatt­greiðslur aldr­aðra auk­ist umfram fólks­fjölgun á síð­ustu árum. Þær eru nú tæp­lega 15 pró­sent af heild­ar­skatt­greiðslum, en alls eru 16 pró­sent íbúa lands­ins á elli­líf­eyr­is­aldri. Til sam­an­burðar borg­uðu aldr­aðir aðeins átta pró­sent af heild­ar­skatt­tekjum árið 2005, þrátt fyrir að hafa verið 14 pró­sent af mann­fjöld­anum þá.

Í fram­tíð­inni býst Benedikt svo við að skatt­greiðslur aldr­aðra muni aukast enn frekar, sam­hliða hækk­andi líf­eyr­is­tekjum þeirra. Því til stuðn­ings bendir hann á spá Talna­könn­unar um hlut­fall eft­ir­launa af launum lands­manna á næstu árum, en sam­kvæmt henni mun það vaxa hraðar heldur en hlut­fall aldr­aðra af íbúum lands­ins. Með þessu lækkar kostn­aður almanna­trygg­inga vegna líf­eyris aldr­aðra, að óbreyttum reglum.

„Þetta sýnir tvennt,“ segir Benedikt í grein sinni. „Annars vegar að líf­eyr­is­greiðslur eru orðnar mun meiri en áður var, en jafn­framt að aldr­aðir hafa með líf­eyr­is­sparn­aði lagt fram sinn skerf til þjóð­ar­bús­ins og rangt að telja þá byrði á sam­fé­lag­inu þegar allt er talið með.“

Afnám tekjutengingar kostnaðarsamt

Benedikt fer einnig yfir fyrri útreikn­inga sína sem sýndu að afnám tekju­teng­ingar líf­eyr­is­greiðslna myndi kosta Trygg­inga­stofnun rík­is­ins (TR) 100 millj­arða króna. Hann segir töl­una vera þó nær 105 millj­örðum króna ef allir þeir sem eru með líf­eyr­is­rétt­indi fengi fullan líf­eyri frá TR og að 35 pró­sent þeirra fengju fulla heim­il­is­upp­bót.

Samkvæmt honum eru þessir útreikn­ingar þó ekki nákvæmir. Aftur á móti ættu þeir að gefa nokkra mynd af hugs­an­legum kostn­aði Trygg­inga­stofn­unar vegna þess. Hann segir svo líka að hluti af þess­ari við­bót­ar­fjár­hæð færi aftur til rík­is­ins í formi tekju­skatta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár