Afnám tekjutengingar kosti ríkissjóð allt að 100 milljarða króna

Fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra og stofn­andi Við­reisnar segir að byrði líf­eyr­is­kerf­is­ins á rík­is­sjóð myndi aukast veru­lega frá því sem er ef hætt yrði að tekju­tengja líf­eyri almanna­trygg­inga.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Rík­is­sjóður hefði getað þurft að greiða allt að hund­rað millj­arða króna auka­lega árið 2019 ef elli­líf­eyr­is­greiðslur voru ekki tekju­tengdar. Þetta eru nið­ur­stöður Bene­dikts Jóhann­es­sonar, stærð­fræð­ings, fyrrum fjár­mála­ráð­herra og stofn­anda Við­reisnar, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Í betri stöðu en flestar vestrænar þjóðir

Í grein Bene­dikts, sem byggir á skýrslu Talna­könn­unar fyrir Birtu líf­eyr­is­sjóð um stöðu og fram­tíð líf­eyr­is­kerf­is­ins, kemur fram að hlut­fall líf­eyr­is­greiðslna frá Trygg­ing­ar­stofnun rík­is­ins (TR) af lands­fram­leiðslu hafi auk­ist um helm­ing frá árinu 2008. Á sama tíma hafi líf­eyr­is­rétt­indi þeirra sem eru að fara á eft­ir­laun batnað jafnt og þétt.

Benedikt segir þó að hlut­fallið lækki á næstu árum og ára­tugum ef reglur um líf­eyr­is­greiðslur hald­ist óbreyttar, þar sem líf­eyr­is­sparn­aður eykst. „Gangi þetta eftir mun því ekki bara hagur aldr­aðra batna á kom­andi ára­tugum heldur mun líka draga úr útgjöldum rík­is­ins til þessa mála­flokks,” bætir hann við.

Þessi nið­ur­staða bendir til þess að Íslend­ingar séu í mun betri stöðu en flestar vest­rænar þjóðir, að mati Bene­dikts. Hann segir þó að það myndi hafa mjög mikil áhrif ef hætt yrði að tekju­tengja líf­eyri frá almanna­trygg­ingum.

Allt að tvöfalt meiri greiðslubyrði

Samkvæmt honum voru heild­ar­líf­eyr­is­greiðslur frá TR vegna elli­líf­eyris um 80 millj­arðar króna árið 2019. Ef miðað væri við að allir fengju hæstu greiðslur, sem þá voru um 3,8 millj­ónir króna á ári fyrir ein­stæð­inga og 3,2 millj­ónir króna á ári fyrir sam­búð­ar­fólk, myndi sú upp­hæð nema 160 millj­örðum króna. Fengju allir hærri fjár­hæð­ina hefðu greiðsl­urnar orðið 180 millj­arðar króna.

Benedikt segir að gjarnan sé vitnað í erlend líf­eyr­is­kerfi þegar rætt er um það hvort líf­eyr­is­greiðslur eigi að koma fyrst og fremst frá Trygg­inga­stofnun eða frá líf­eyr­is­sjóðum. Samkvæmt honum eru líf­eyr­is­kerfi þó marg­vís­leg eftir löndum og ekki auð­velt að bera þau saman nema að horft sé á þau heild­stætt, þar sem tekið er til­lit til sam­spils við skatt­kerfið.

„Skylt er að geta þess að sumir tala um að breyta líf­eyr­inum aftur í fyrra horf, þar sem allir fá fasta krónu­tölu, til dæmis 50 þús­und krónur,” segir Benedikt. “Slík ráð­stöfun myndi annað hvort skerða líf­eyri þeirra sem minnstar tekjur hafa, ef heild­ar­út­gjöld til mála­flokks­ins yrðu óbreytt, eða auka útgjöld rík­is­ins og skatt­byrði lands­manna.”

Hægt er að lesa grein Bene­dikts í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár