Spyr hvort of mikið sé greitt í lífeyrissjóði

Benedikt Jóhann­es­son segir fólk á elli­líf­eyr­is­aldri hafa náð að stór­bæta kjörin sín á síð­ustu ára­tugum og býst við að sú þróun haldi áfram. Sökum þess veltir hann því upp hvort líf­eyr­is­greiðslur séu of háar.

Benedikt Jóhannesson, stærðfræðingur og fyrrverandi fjármálaráðherra.
Benedikt Jóhann­es­son, stærð­fræð­ingur og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Stór hluti fólks á eft­ir­launa­aldri munu verða með betri tekjur árið 2070 en vinn­andi fólk er með nú, gangi spá Talna­könn­unar um tekju­þróun elli­líf­eyr­is­þega upp. Þetta kemur fram í grein Bene­dikts Jóhann­es­sonar, stærð­fræð­ings og fyrr­ver­andi fjár­mála­ráð­herra, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Í grein sinni fer Benedikt yfir þróun og dreif­ingu árs­tekna karla og kvenna eftir ald­urs­hópum frá árinu 1994. Þar að auki birti hann spár Talna­könn­unar fyrir næstu ára­tug­ina yfir tekju­þróun fólks á elli­líf­eyr­is­aldri, en hún tekur til­lit til auk­innar ávöxt­unar líf­eyr­is­sjóða og aukn­ingu almenns fram­lags í líf­eyr­is­sjóði.

Samkvæmt spánum mun mið­gildi árs­tekna 75 ára karla aukast um helm­ing á næstu fimm­tíu árum og nema rúmum átta millj­ónum króna á verð­lagi árs­ins 2020. Á síð­ustu 30 árum hafa tekjur hóps­ins einnig stór­auk­ist, en mið­gildi þeirra hefur farið úr rúmum tveimur millj­ónum árið 1994 í rúmar fimm millj­ónir árið 2019.

Á sama tíma hafa tekjur 25 ára karla auk­ist mun minna, en mið­gildi þeirra er nú lítið breytt frá árinu 2004.

Í ljósi þess­arar þró­unar veltir Benedikt því upp hver rétta upp­hæð líf­eyr­is­greiðslna ætti að vera. Hann segir ýmsa hafa bent á að hugs­an­lega sé of mikið greitt í líf­eyr­is­sjóð, en nú geta greiðsl­urnar numið allt að 21,5 pró­sent af tekjum með við­bót­ar­fram­lagi í sér­eign­ar­sjóð.

„Skyn­sam­legra væri að beina hluta sparn­að­ar­ins annað, eins og reyndar er nú þegar gert að hluta með því að leyfa ráð­stöfun á hluta sér­eigna­sjóðs til inn­greiðslu á hús­næð­is­lán,“ bætir hann við.

Þetta er önnur grein Bene­dikts í greina­röð hans um tekju­þróun og líf­eyr­is­greiðslur í Vís­bend­ingu. Í fyrstu grein sinni fór hann yfir kaup­mátt­ar­þróun síð­ustu ára­tuga eftir kyni og aldri, en sam­kvæmt henni dróst kaup­máttur ungra karl­manna lít­il­lega saman á milli áranna 1994 og 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár