Mælir með að skipta upp Landsvirkjun í smærri einingar

For­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar HÍ segir í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar að raun­hæf­asta leiðin til að koma á virkri sam­keppni á raf­magns­mark­aði sé með því að skipta Lands­virkjun upp.

Hrauneyjafosstöð, sem er í eigu Landsvirkjunar
Hraun­eyja­fos­s­töð, sem er í eigu Lands­virkj­unar Mynd: Landsvirkjun

Æskilegt væri að koma á virkri sam­keppni á heild­sölu­mark­aði með raf­magn til að minnka sóun á raf­orku, en raun­hæf­asta leiðin til þess væri með því að skipta upp Lands­virkjun. Þetta skrifar Sigurður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar HÍ, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem birt­ist á föstu­dag­inn.

Samkvæmt Sigurði hafa orku­pakkar Evr­ópu­sam­bands­ins séð til þess að sam­keppni hafi auk­ist á sölu raf­magni víða um álf­una, þótt hún hafi ekki auk­ist af sama krafti alls staðar. Hér á landi virð­ist sam­keppni vera nokkuð líf­leg í smá­sölu á raf­magni, en mun minni í heild­sölu, þar sem Lands­virkjun fram­leiðir um 60 pró­sent af öllu raf­magni sem selt er hér á landi á almennum mark­aði. [adspot]

Vegna stöðu sinnar segir Sigurður að Lands­virkjun ráði miklu um heild­sölu­verð raf­magns, en sam­kvæmt honum getur fyr­ir­tækið haldið verð­inu stöð­ugu með því að minnka fram­leiðslu þegar lítið er keypt af raf­magni og aukið hana svo aftur þegar eft­ir­spurnin eykst. Síðustu fjögur árin hefur raf­magns­verð hér­lendis einmitt hald­ist stöðugt, á meðan það hefur tekið miklum breyt­ingum í Skand­in­avíu.

Minna til spillis með virkri samkeppni

„Við fyrstu sýn finnst mönnum ef til vill að verð­sveiflur valdi aðeins óþæg­indum, en raunar gegna þær mik­il­vægu hlut­verki,“ skrifar Sigurður í grein­inni sinni. „Þegar verð lækkar er meira notað af því sem nóg er til af. Minna fer til spillis.“ Einnig segir hann að hátt verð gefi neyt­endum til kynna að varan sé verð­mæt og fara beri spar­lega með hana.

Sigurður sagði að hægt væri að fara ýmsar leiðir til að fjölga fyr­ir­tækjum á heild­sölu­mark­aði með raf­magni, en telur þó upp­skipt­ingu Lands­virkj­unar í smærri ein­ingar vera raun­hæf­ustu leið­ina. Hann segir að þessi til­laga sé ekki ný af nál­inni, en hún kom fram í skýrslu Efnahags- og fram­fara­stofn­un­ar­innar (OECD) árið 2008 og í við­tali við for­stjóra HS Orku hjá Við­skipta­blað­inu árið 2018.

Þar að auki segir Sigurður að Bretland hafi ágæta reynslu af sams konar upp­skipt­ingu sem átti sér stað í kjöl­far laga­breyt­inga árið 1989. Samkvæmt honum hefur sam­keppni vaxið jafnt og þétt á raf­magns­mark­aði í Englandi og Wales og hefur þar hlutur stærstu fram­leið­enda minnkað og hlutur lít­illa fyr­ir­tækja vaxið.

Hægt er að lesa grein Sigurðar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár