Miðhálendisþjóðgarður vinsæll meðal almennings

Samkvæmt könnun á vegum Hag­fræði­stofn­unar HÍ og Maskínu er fólk almennt hlynnt þjóð­garði á mið­há­lend­inu. Úti­vi­star­fólk virð­ist hvorki vera hlynnt­ara né and­víg­ara þjóð­garð­inum heldur en aðrir.

Ýmsir sem eru mótfallnir hugmyndinni um miðhálendisþjóðgarð virðast hafa áhyggjur af ferðafrelsi á hálendinu.
Ýmsir sem eru mót­fallnir hug­mynd­inni um mið­há­lend­is­þjóð­garð virð­ast hafa áhyggjur af ferða­frelsi á hálend­inu. Mynd: Arctic Trucks.

Fólk er mun lík­legra til að vera hlynnt áformum um mið­há­lend­is­þjóð­garð heldur en and­vígt þeim. Ekki er mik­ill munur á jákvæðum og nei­kvæðum við­horfum gagn­vart honum hjá fólki sem hefur farið í lengri ferðir í óbyggðum Íslands og öðrum, en mik­ill munur er á stjórn­mála­skoð­unum þeirra sem eru and­vígir og þeirra sem eru nei­kvæðir.

Þetta er á meðal nið­ur­staðna sem birt­ust í skoð­ana­könnun Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands og Maskínu, en fjallað var um þær í síð­asta hefti Vís­bend­ingar. Alls voru svar­endur könn­un­ar­innar 5349 tals­ins, en af þeim sögð­ust tæp 69 pró­sent þeirra annað hvort vera hlynnt eða and­víg hug­mynd­inni um þjóð­garð­inn. 47,5 pró­sent svar­enda voru hlynnt áformunum, en 21,1 pró­sent þeirra voru and­víg þeim.

Ferðavenjur skýra ekki afstöðu

Samkvæmt Ágústi Arn­órs­syni, hag­fræð­ingi hjá Hag­fræði­stofnun HÍ, virð­ast margir þeirra sem eru and­vígir áformunum hafa áhyggjur af því að aðgengi þeirra að þjóð­garðs­svæð­inu yrði skert. Þessar áhyggjur gætu gefið til kynna að þeir sem ferð­ist oftar um hálendið séu mót­falln­ari hug­myndum um mið­há­lend­is­þjóð­garð.

Hins vegar benda könn­un­ar­innar til þess að svo sé ekki, þar sem eng­inn skýr munur er á við­horfum þeirra sem hafa farið í lengri ferðir í óbyggðum Íslands og ann­arra svar­enda gagn­vart þjóð­garð­inum, ef frá er talið hlut­fall þeirra sem taka ekki afstöðu.

Sjálfstæðismenn líklegri til að vera mótfallnir

Skýrari munur er á við­horfum svar­enda könn­un­ar­innar eftir því hvaða flokk þeir kjósa.Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Mið­flokks­ins eru lík­legri til að vera and­vígir áformunum, á meðan kjós­endur flestra hinna stjórn­mála­flokk­anna eru lík­legri til að vera hlynntir þeim. Ágúst segir þennan mun geta varpað ljósi á það hvers vegna ekki hafi tek­ist að koma frum­varp­inu um þjóð­garð­inn í gegnum þingið, þrátt fyrir að kveðið hafi verið á um hann í stjórn­ar­sátt­mál­anum.

Hægt er að nálg­ast grein Ágústs og nið­ur­stöður könn­un­ar­innar með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár