Tíu staðreyndir um kólnandi íbúðamarkað á Íslandi

Verð á íbúðum á Íslandi hefur hækkað um meira fjórð­ung á einu ári. Vísir er að bólu á mark­aðnum. Nú eru skarpar stýri­vaxta­hækk­anir og aðrar tak­mark­anir á lán­töku þó farnar að bíta og mark­að­ur­inn að kólna.

1. Íbúðamarkaðurinn farinn að kólna

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­aði um 1,1 pró­sent milli mán­aða, sam­kvæmt nýbirtri mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar. Það er mun minni hækkun milli mán­aðar en hefur mælst milli mán­aða í nokkuð langan tíma. Íbúða­verð á svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­sent síð­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­sent síð­asta árið. Ef horft er aftur til upp­hafs kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst af alvöru hér­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 48 pró­sent.

Á land­inu öllu hækk­aði íbúða­verð um 26,4 pró­sent frá júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Verðið hækk­aði meira í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ann­ars staðar á lands­byggð­inni en í höf­uð­borg­inni sjálfri og sveit­ar­fé­lög­unum sem liggja að henni.

Athygl­is­vert er að frá sumr­inu 2020 hefur verð­bil á íbúðum auk­ist þannig að dýrar íbúðir virð­ast hafa hækkað meira í verði en ódýrar, sam­kvæmt sam­an­tekt HMS.

2. Gripið til erfiðra aðgerða til að kæla markaðinn

Seðla­banki Íslands hefur hækkað stýri­vexti úr 0,75 pró­sent í 4,75 pró­sent frá því í maí í fyrra. Auk þess hefur bank­inn hert lána­skil­yrði til að tak­marka enn frekar aðgengi ýmissa hópa að láns­fjár­mögnun til íbúð­ar­kaupa. Þetta er gert til að takast á við verð­bólgu, sem mælist 9,9 pró­sent, en helsti drif­kraftur hennar eru gríð­ar­legar hækk­anir á hús­næð­is­verði. Segja má að Seðla­bank­inn hafi sjálfur leikið lyk­il­hlut­verk í því að skapa þær aðstæður sem hann er nú að leysa með því að lækka vexti niður í 0,75 pró­sent á sínum tíma, sem voru lægstu vextir í Íslands­sög­unni, og með því að auka útlána­getu við­skipta­banka um mörg hund­ruð millj­arða króna með því að afnema tíma­bundið svo­kall­aðan sveiflu­jöfn­un­ar­auka sem leggst ofan á eigið fé þeirra.

[adspot]Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands mun til­kynna um næstu vaxta­á­kvörðun sína á morgun. Mark­aðs­að­ilar telja að þá verði vext­irnir hækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig, upp í 5,5 pró­sent. Þeir búast sömu­leiðis við því að vext­irnir verði orðnir sex pró­sent snemma á næsta ári.

Vert er að taka fram að á meðan að stýri­vextir hækk­uðu tvö pró­sentu­stig frá því í maí á þessu ári hefur verð­bólgan vaxið um fimm pró­sentu­stig á sama tíma. Því hafa stýri­vextir lækkað að raun­virði. Í umfjöllun HMS segir að stýri­vextir hafi nú verið lægri en verð­bólga allt frá því í apríl 2020. „Aldrei áður hafa þeir verið undir verð­bólgu í svo langan tíma.“

3. Hærri vextir leiða til hærri greiðslubyrði

Vegna ofan­greindra aðgerða þá fjölgar þeim sem stand­ast ekki greiðslu­mat. Hærri vextir leiða enda til þess að greiðslu­byrði af lánum eykst, jafn­vel þótt krón­unum í vasa við­kom­andi fjölgi ekk­ert milli mán­aða.

Ein þeirra tak­mark­ana sem Seðla­bank­inn fyr­ir­skip­aði um í júní var að þegar fólk tekur verð­tryggð lán þá eigi greiðslu­mat miða við greiðslu­byrði af láni sem er minnst með þrjú pró­sent vöxtum og mest til 25 ára, jafn­vel þótt lánið sé á lægri vöxtum (lægstu verð­tryggðu vext­irnir eru 1,3 pró­sent) og láns­tím­inn lengri (hægt er að taka verð­tryggð lán til lengri tíma en 25 ára).

Í mán­að­ar­skýrslu HMS kemur fram að heim­ili með hámarks­greiðslu­getu uppá 200 þús­und krónur á mán­uði gátu í apríl tekið 47 millj­óna króna verð­tryggt lán en geta nú mest fengið 35 millj­ónir króna að láni. Ef þau vildu taka óverð­tryggt lán þá gátu þau tekið 72 millj­ónir króna í apríl en vegna nýrra krafna og hærri vaxta gætu þau nú mest tekið 42 millj­ónir króna. „Því má ætla að margir verði afhuga íbúð­ar­kaupum á næst­unni. Ef stýri­vextir halda áfram að hækka mun hámarks­láns­fjár­hæð sem heim­ilin geta tekið minnka enn frekar,“ segir í skýrsl­unni.

4. Framboð íbúða að aukast

Þessar aðgerðir eru farnar að bíta og íbúða­mark­að­ur­inn því stað­fest far­inn að kólna eftir að hafa verið svo fun­heitur mán­uðum saman. Svo fun­heitur að fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­bank­ans við­ur­kenndi í júní að „vísir að eigna­bólu á íbúða­mark­aði gæti verið til staðar“hér­lendis í ljósi þess að verð­hækk­anir á mark­aðnum hafi verið langt umfram ákvarð­andi þætti frá vor­mán­uðum 2021. Líkur á stöðnun eða leið­rétt­ingu raun­verðs hafi auk­ist.

Þetta sést til að mynda á því að ef horft er á sex mán­aða hlaup­andi með­al­tal þá hafa kaup­samn­ingar ekki verið færri frá því í apríl 2015.

Eitt stærsta merkið um þá kólnun sem er eiga sér stað á mark­aðnum er þó aukið fram­boð íbúða.

[adspot]Í maí 2020 voru rétt tæp­lega fjögur þús­und íbúðir til sölu á land­inu öllu. Fram­boðið hrundi næstu mán­uði og í lok febr­úar 2022 voru 983 íbúðir til sölu á land­inu öllu. Verst var ástandið á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en í byrjun febr­úar voru ein­un­ings 437 íbúðir til sölu á því svæði, þar sem tæp­lega tveir þriðju hluta íbúa lands­ins búa. Í ágúst­lok voru íbúð­irnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem voru til sölu orðnar 905 tals­ins, sam­kvæmt nýrri mán­að­ar­skýrslu HMS, og fjöldi þeirra því rúm­lega tvö­fald­ast.

5. Fólki sem vantar þak yfir höfuðið fjölgar

Fyrir utan ódýrt láns­fjár­magn þá hefur umtals­verð fólks­fjölgun á Íslandi síð­ast­liðið ár ráðið umtals­verðu um þær hækk­anir sem orðið hafa á mark­aði. Fleira fólki vantar hús­næði til að búa í. Frá miðju ári 2021 hefur lands­mönnum fjölgað um næstum tíu þús­und. Þar ræður mestu mikil aukn­ing erlendra rík­is­borg­ara, en þeim hefur fjölgað um rúm­lega 7.500 frá þeim tíma og eru nú yfir 60 þús­und tals­ins hér­lendis. Um 60 pró­sent hinna nýju borg­ara hefur sest að á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða rúm­lega 4.500 tals­ins.

Fólki hefur fjölgað mun hraðar en nýjum íbúðum. Framboð af nýjum íbúðum hefur nær þre­fald­ast frá því að það var í lág­marki í febr­úar, en þó eru aðeins 149 nýjar íbúðir til sölu núna sem er tals­vert undir sögu­legu með­al­tali.

6. Eftirspurnin enn sterk

Ein birt­ing­ar­mynd þess að vísir að bólu hafi verið til staðar á íbúða­mark­aði er þegar eft­ir­spurnin er svo sterk að íbúðir selj­ast í miklum mæli yfir ásettu verði. Það ger­ist þegar margir eru um hverja íbúð sem sett er á sölu og nokk­urs konar örvænt­ing getur orðið eftir því að fá þá íbúð sem sóst er eftir að kaupa. Þá teygir fólk sig lengra en það hefði gert ef fleiri val­kostir væru í boði.

Þegar mest var á þessu ári, í apríl síð­ast­liðnum, seld­ust 54,3 pró­sent allra íbúða á land­inu yfir ásettu verði. Þessi staða er sér­stak­lega sýni­leg á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem 62,7 pró­sent íbúða í júní seld­ust yfir ásettu verði. Til að skilja hversu óvenju­leg þessi staða er má benda á að frá árinu 2013 hefur hlut­fall þeirra íbúða sem seld­ust yfir ásettu verði ekki farið yfir 15 pró­sent af seldum íbúðum, ef und­an­skilið er tíma­bil sem stóð frá árinu 2016 og fram á árið 2018. Þá fór hlut­fallið þó hæst í rúm­lega 30 pró­sent.

7. Sölutími enn afar stuttur

Í maí síð­ast­liðnum var sett með. Það fól í sér að sölu­tími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafði aldrei verið styttri að með­al­tali í Íslands­sög­unni en í þeim mán­uði, þegar hann var 35,8 dagar. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var einnig um met að ræða þar sem með­al­sölu­tím­inn var 44,1 dag­ur.

[adspot]Þótt með­al­sölu­tím­inn hafi lengst aðeins þá er hann enn sögu­lega afar stuttur. Í júní var hann 41,9 dagar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Í mán­að­ar­skýrslu HMS segir að styttri sölu­tími og það að fleiri íbúðir séu að selj­ast yfir ásettu verði skjóti að vissu leyti skökku við og bendi til þess að eft­ir­spurn­ar­þrýst­ingur sé enn til staðar. „Þess má þó geta að síð­asta stýri­vaxta­hækkun Seðla­bank­ans og hertar kröfur við greiðslu­mat voru settar í seinna hluta júní mán­aðar og því eðli­legt að áhrif þeirra aðgerða fari fyrst að gæta í júlí.“

8. Leiguverð hækkar líka

Þótt leigu­verð hafi ekki hækkað með sama ofsa og íbúð­ar­verð þá hefur leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þó hækkað um 9,6 pró­sent frá því í júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum þess nemur árs­hækk­unin 10,1 pró­sentum og 7,5 pró­sent annar staðar á lands­byggð­inni.

Í umfjöllum HMS kemur fram að með­al­fjár­hæð greiddrar leigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi verið 207.200 krónur í júlí, sem er tæp­lega tíu þús­und krónum meira en hún var ári áður. Árs­hækkun leigu er minni en verð­bólga og því hefur með­al­fjár­hæð leigu lækkað að raun­virði.

Það er ódýr­ara að leigja ann­ars staðar á land­inu. Í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins var með­al­fjár­hæð leigu 179 þús­und krónur í júní og 144.900 krónur ann­ast staðar á lands­byggð­inni.

9. Bankarnir auka við hlutdeild sína

Þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn skall á greip Seðla­banki Íslands til þess ráðs að lækka eig­in­fjár­kvaðir á íslensku bank­anna til að hvetja þá til frek­ari útlána. Það átti að örva efna­hags­líf­ið.

[links]Íslensku við­skipta­bank­­arnir nýttu það aukna svig­­rúm sem þeir fengu með í að lána heim­ilum til hús­næð­is­­kaupa.

Hlut­­deild banka í úti­stand­andi íbúða­lánum er nú yfir 70 pró­­sent en var 55 pró­­sent í byrjun árs 2020. Á þessu tíma­bili hafa bank­arnir hagn­ast um tugi millj­arða króna og und­an­farið hefur vaxta­munur þeirra farið hækk­andi.

Hlut­deild líf­eyr­is­sjóða, sem var fyrir ekki svo löngu 29 pró­sent, er nú um 22 pró­sent. Hlut­deild HMS/Íbúða­lána­sjóðs, sem var 45 pró­sent í byrjun árs 2014, er nú undir sjö pró­sent.

10. Óverðtryggðu lánin nálgast 60 prósent

Sam­hliða ofan­greindri þróun hefur orðið eðl­is­breyt­ing á lán­­tökum lands­­manna við það að hlut­­fall óverð­­tryggðra lána af öllum íbúða­lánum hefur hækkað gríð­­ar­­lega. Það var 27,5 pró­­sent í byrjun árs 2020 en er nú komið í 56 pró­­sent. Hlut­­fall lána sem er á breyt­i­­legum vöxt­um, og fylgir því stýri­­vaxta­hækk­­un­um, hefur söm­u­­leiðis aldrei verið hærra.

Miklar hækk­anir stýri­vaxta hafa þó dregið úr vin­sældum óverð­tryggðra lána, sem fela í sér hærri greiðslu­byrði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár