VR krefst stórfelldrar aðkomu stjórnvalda að gerð kjarasamninga

Í kröfu­gerð VR er meðal ann­ars farið fram á afnám verð­trygg­ingar, skatta­lækkun á launa­fólk og lækkun á virð­is­auka­skatti á nauð­synja­vörur. Félagið fer líka fram minnk­andi skerð­ingar, nið­ur­greidda sál­fræði­að­stoð og aukið sjóðs­fé­laga­lýð­ræði í líf­eyr­is­sjóðum.

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR. Mynd: Bára Huld Beck

„Aðkoma stjórn­valda að kjara­samn­ingum á almennum vinnu­mark­aði er óhjá­kvæmi­leg því staðan kallar á mik­il­vægar breyt­ingar á grund­vall­ar­kerfum íslensks sam­fé­lags. Stjórn­völd verða að koma að borð­inu með sam­tökum launa­fólks og atvinnu­rek­enda eigi kjara­samn­inga­við­ræður að skila þeim ávinn­ingi sem vonir standa til. VR og LÍV gera þær kröfur til stjórn­valda að þau afnemi verð­trygg­ingu á neyt­enda­lánum, lækki álögur og skatta á launa­fólk og lækki virð­is­auka­skatt á nauð­synja­vörum.“

Þetta kemur fram í kröfu­gerð VR sem þetta stærsta stétt­ar­fé­lag á Íslandi hefur birt Samtökum Atvinnu­lífs­ins, mót­að­ila þess við gerð kjara­samn­inga sem eru lausir í haust. VR krefst þess einnig að stjórn­völd minnki skerð­ingar í almanna­trygg­inga­kerf­inu, afnemi tekju­teng­ingar bóta og nið­ur­greiði sál­fræði­að­stoð.

Halldór Benjamín Þor­bergs­son, fram­kvæmda­stjóri SA, sagði við Morg­un­blaðið um miðjan þennan mánuð að hann vildi tak­mark­aða aðkomu rík­is­ins að kjara­samn­ingum. Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur talað á svip­uðum nótum. Í við­tali við RÚV í síð­ustu viku sagði hann: „„Við höfum verið að bregð­ast við ábend­ingum um hluti sem mættu betur fara, þar vantar fram­boð af hús­næði, en að öðru leyti finnst mér að stjórn­völd eigi að halda sig frá hinum eig­in­legu samn­inga­við­ræðum, aðilar verða að axla ábyrgð­ina á því að ná saman.“

Efling, næst stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, hefur ekki birt kröfu­gerð sína en í síð­ustu útgáfu Kjara­f­rétta, sem félagið heldur úti, kom fram að ríkið þyrfti að leggja fram stóran pakka til liðka fyrir kjara­samn­inga­gerð.

Vilja fjögurra daga vinnuviku

VR vill að samið verið til þriggja ára, eða til loka októ­ber­mán­aðar 2025. Í kröfu­gerð­inni er ekki sett fram bein krafa um launa­hækkun heldur sagt að kjara­samn­ing­arnir þurfi að verja þann árangur sem náð­ist í Lís­kjara­samn­ing­unum sem gerðir voru árið 2019. Aukinn kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna liggi til grund­vallar launa­kröfum. Launa­fólk eigi að gæta lifað mann­sæm­andi lífi á dag­vinnu­launum og lág­marks­laun eigi að duga til fram­færslu.

[adspot]Í þessum hluta er einnig sett fram krafa á ríkið. Stétt­ar­fé­lagið gerir „þá kröfu að stjórn­völd komi að borð­inu með aðgerðir til að styrkja launa­lið kröfu­gerð­ar­innar, t.d. í skatta- og vaxta­málum, með hækkun barna­bóta og afnámi verð­trygg­ingar á neyt­enda­lánum.“

VR gerir þá kröfu að vinnu­vikan verði stytt í fjóra daga, eða sem sam­svarar 32 tímum á viku, á samn­ings­tím­anum án þess að laun verði skert og að allt félags­fólk fái rétt til 30 orlofs­daga á ári.

Uppsagnarfrestur sumra verði lengdur verulega

Þá gerir VR kröfu um að upp­sagn­ar­frestur, sem vana­lega er þrír mán­uðir, þeirra sem hafa langan starfs­aldur verði lengdur þannig að ef við­kom­andi hefur unnið hjá sama atvinnu­rek­anda í tíu ár sé frest­ur­inn fjórir mán­uðir, ef starfs­ald­ur­inn sé 15 ár verði hann fimm mán­uðir og hálft ár hjá þeim sem hafa unnið í að minnsta kosti 20 ár hjá sama atvinnu­rek­anda. Starfs­menn eiga hins vegar að halda þeim rétti að segja upp starfi með þriggja mán­aða fyr­ir­vara.

Í kröfu­gerð­inni er þess einnig kraf­ist að ramma­samn­ingur um fjar­vinnu verði tek­inn til gagn­gerrar end­ur­skoð­unar „með það í huga að tryggja betur rétt­indi fjar­vinnu­starfs­fólks og ásætt­an­lega vinnu­að­stöðu, starfs­fólki að kostn­að­ar­lausu.“ Kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hafi sýnt að fjar­vinna sé orðin ómissandi hluti af vinnu­um­hverf­inu og við því þurfi að bregð­ast. VR gerir einnig þá kröfu að félags­fólk hafi „frelsi til þess að vinna í fjar­vinnu þegar aðstæður leyfa, sveigj­an­leik­inn verði auk­inn og tryggt að sam­þykki beggja aðila liggi fyrir.“

Vilja að sjóðsfélagar kjósi fulltrúa í stjórnir

VR gerir einnig kröfu um aukið atvinnu­lýð­ræði starfs­fólks, sem felur í sér að það geti kosið full­trúa sinn í stjórn fyr­ir­tækis sem það starfi hjá, og stór­aukið sjóðs­fé­lags­lýð­ræði í líf­eyr­is­sjóðum, sem felur í sér að sjóðs­fé­lagar geti kosið full­trúa í stjórn þeirra.

[links]Er þar lagt til að „stétt­ar­fé­lögin og atvinnu­rek­endur komi sér saman um að helm­ingur stjórnar líf­eyr­is­sjóða verði kos­inn beinni kosn­ingu af sjóð­fé­lögum á samn­ings­tím­anum.“

Ýmsar aðrar kröfur eru settar fram, svo sem að fleiri dagar verði skil­greindir sem stór­há­tíð­ar­dagar. Er þar sér­stak­lega talað um 1. maí og aðfanga- og gaml­árs­dag, en þeir tveir síð­ar­nefndu eru sem stendur ein­ungis skil­greindir sem stór­há­tíð­ar­dagar eftir klukkan 12.

Þá fer VR fram á að atvinnu­rek­endur greiði ferða­kostnað félags­fólks sem býr utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins þegar almenn­ings­sam­göngur eru ekki í boði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár