Segja toppana í samfélaginu hafa tekið sitt og að lágmark sé að launafólk fái það sama

Í Kjara­f­réttum Eflingar er lagt til að almenn laun hækki um 52.250 krónur á mán­uði miðað við núver­andi verð­bólgu. Ríkið þurfi auk þess að koma að kjara­samn­inga­borð­inu með tug millj­arða króna aðgerðir til að bæta stöðu þeirra verst settu í sam­fé­lag­inu.

Nóg svig­rúm er til launa­hækk­ana í ljósi þess að hag­vöxtur og fram­leiðni­aukn­ing er umtals­vert á Íslandi. „Topp­arnir í sam­fé­lag­inu hafa þegar tekið til sín veru­legar launa­hækk­anir, og hækk­anir bónusa og kaup­rétt­ar­heim­ilda. Arð­greiðslur úr fyr­ir­tækjum eru í hámarki og fjár­magnstekjur hátekju­fólks hafa hækkað veru­lega. Samhliða því hafa skatt­fríð­indi þeirra verið aukin. Lágmark er að launa­fólk njóti þeirrar fram­leiðni­aukn­ingar sem er fyrir hendi með sam­svar­andi kaup­mátt­ar­aukn­ingu. Ef ekki, þá er tekju­skipt­ing­unni breytt í þágu hátekju­hópanna og stór­eigna­fólks.“

Þetta segir í Kjara­f­réttum Eflingar sem birtar voru í morgun. Ábyrgð­ar­maður útgáf­unnar er Stefán Ólafsson, sér­fræð­ingur hjá Eflingu.

Þar kemur fram að góð reynsla af Lífs­kjara­samn­ing­unum, þar sem ríkið kom meðal ann­ars að með aðgerð­ar­pakka sem það mat á um 80 millj­arða króna og ráð­ist var í krónu­tölu­hækk­anir sem gagn­ast lægri laun­uðum umfram aðra, varði leið sem æski­legt væri að fara við núver­andi aðstæður. Sér­stak­lega er tekið fram að umfjöll­unin byggi á til­greindum for­sendum en sé ekki kröfu­gerð Eflingar í kom­andi kjara­samn­ingum. Hún sé alfarið í höndum samn­inga­nefndar félags­ins.

Flatar krónutöluhækkanir upp á tugi þúsunda

Í umfjöll­un­inni segir að í ljósi þess að verð­bólgu­spá Hag­stof­unnar fyrir árið 2022 sé 7,5 pró­sent þurfi almenn launa­hækkun að vera sú tala að við­bættum tveimur pró­sentu­stigum, eða 9,5 pró­sent. Með flatri krónu­tölu­hækkun gæti það skilað hækkun upp á 52.250 krónur á mán­uði. „Þetta er svipuð útfærsla og var í Lífs­kjara­samn­ingnum 2019, en á hærra verð­bólgu­stigi. Með þess­ari aðferð verður kaup­mátt­ar­aukn­ing meiri í lægstu launa­hópum en minni í þeim efri, sem hlífir atvinnu­líf­inu að hluta við aukn­ingu launa­kostn­aðar.“

[adspot]Þessi útfærsla á launa­hækk­unum mildi áhrif launa­hækk­ana á fyr­ir­tækin, sem feli almennt ekki í sér neinar kostn­að­ar­hækk­anir fyrir þau, með því að launa­kostn­aður hærri tekju­hópa eykst hlut­falls­lega minna en ann­arra og lág­launa­fólk fær mesta kaup­mátt­ar­aukn­ingu.

Ríkið þarf að stíga fast inn í

Kjara­f­réttir fjalla síðan ítar­lega um þann pakka sem ríkið getur lagt til svo hægt verði að liðka fyrir kjara­samn­inga­gerð, en full­trúar atvinnu­lífs­ins og helstu ráða­menn hafa verið dug­legir við að segja að það standi ekki til sem stendur. Í umfjöll­un­inni segir meðal ann­ars að vegna verð­lags­hækk­ana þurfi hámarks­upp­hæð skatta­lækk­unar til lág­tekju­fólks að vera um 15 þús­und krónur á mán­uði en megi fjara út með hærri tekjum. Þessu mætti ná fram með lækkun lægsta álagn­ing­ar­þreps í tekju­skatti eða með sér­stökum tekju­tengdum per­sónu­af­slætti.„ Kostnað vegna þessa má fjár­magna t.d. með hærra álagn­ing­ar­þrepi á tekjur yfir 1,5 m.kr. á mán­uði og með hækkun fjár­magnstekju­skatts, þannig að álagn­ing á fjár­magnstekjur verði sam­bæri­leg við álagn­ingu á atvinnu­tekjur og líf­eyri.“

Í umfjöll­un­inni er auk þess lagt til að hús­næð­is­stuðn­ingur úr rík­is­sjóði verði „veru­lega efldur“, meiri kraftur sé settur í upp­bygg­ingu félags­legs hús­næðis, að húsa­leigu­bætur verði hækk­aðar og hömlur settar á hækkun leigu­verðs, til dæmis með leigu­þaki.

Afar brýnt að draga stórlega úr skattaundanskotum

Að mati höf­unda Kjara­f­rétta þarf að end­ur­hanna vaxta­bóta­kerfið, sem hefur nán­ast fjarað út á síð­ustu árum, og að lág­marki fimm­falda það fjár­magn sem fært er úr rík­is­sjóði til lægri tekju­hópa í formi vaxta­bóta.

[links]Lagt er til að víta­hringur stýri­vaxta­hækk­ana til að takast á við verð­bólgu, sem veldur því að skulda­byrðar heim­ila stór­aukast, verði rofin, meðal ann­ars með tak­mörk­unum á notkun verð­tryggðra lána eða með því að láta hækk­anir á verði íbúða­hús­næðis koma mun hægar inn í vísi­tölu verð­lags en nú er gert.

Þá telja höf­undar að draga þurfi veru­lega úr skerð­ingum á barna­bótum og hátt í tvö­falda útgjöld vegna þeirra. Þeir vilja líka að ríkið hækki frí­tekju­mark almanna­trygg­inga gagn­vart líf­eyr­is­sjóðs­tekjum úr 25 þús­und krónum á mán­uði í að minnsta kosti 100 þús­und krónur á mán­uði. Brúttó kostn­aður af því yrði um 15 millj­arðar króna á ári en að frá­dregnum auknum skatt­tekjum rík­is­ins um tíu millj­arðar króna nettó.

Að lokum segja Kjara­f­réttir að stjórn­völd geti slegið á verð­bólg­una með ýmsum öðrum leiðum, til dæmis með tíma­bund­inni lækkun álagn­ingar á bensín eða dísil orku­gjafa eða með lækkun á virð­is­auka­skatti á mat­væli. „Loks er afar brýnt að bæta skatt­heimtu og draga stór­lega úr skattaund­anskotum. Lausatök gagn­vart skatta­skilum fyr­ir­tækja hér á landi leiða til meira taps á skatt­tekjum stjórn­valda en er í nær öllum öðrum vest­rænum sam­fé­lögum, sam­kvæmt nýjum alþjóð­legum rann­sóknum. Lag­fær­ing á þessu sviði þarf að skila sér til efl­ingar vel­ferð­ar­kerf­is­ins og ann­arra inn­viða sam­fé­lags­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár