Stýrivextir hækkaðir um 0,75 prósent – Hafa ekki verið hærri í sex ár

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka stýri­vexti upp í 5,5 pró­sent. Þeir hafa nú hækkað um 4,75 pró­sentu­stig frá því í maí í fyrra, en eru enn langt undir verð­bólg­unni.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri er formaður peningastefnunefndar.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri er for­maður pen­inga­stefnu­nefndar. Mynd: Bára Huld Beck

Stýri­vextir Seðla­banka Íslands voru í dag hækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig í 5,5 pró­sent. Vext­irnir hafa ekki verið svo háir síðan í ágúst 2016, eða í sex ár. Eftir nýj­ustu vaxta­hækk­un­ina hefur pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hækkað vexti um um 4,75 pró­sentu­stig síðan í maí í fyrra. Á þessu ári einu saman hafa vext­irnir hækkað um 3,5 pró­sentu­stig, en þeir voru tvö pró­sent um síð­ustu ára­mót.

Ástæða þessa er mikil verð­bólga, sem mælist 9,9 pró­sent um þessar mundir og búist er við að hún skríði upp í tveggja stafa tölu við næstu birt­ingu. Sú verð­bólga hefur að mestu verið drifin áfram af hækk­andi íbúða­verði.

Búast má við því að lán­veit­endur hækki vexti íbúða­lána í kjöl­farið og að greiðslu­byrði heim­ila auk­ist sam­hliða umtals­vert.

Versnandi verðbólguhorfur og aðvörun til vinnumarkaðarins

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að sam­kvæmt upp­færðri þjóð­hags­spá Seðla­bank­ans sem birt er í ágúst­hefti Pen­inga­mála eru horfur á tæp­lega sex pró­sent hag­vexti í ár sem er 1,3 pró­sentum meiri vöxtur en spáð var í maí. „Stafar það einkum af þrótt­meiri einka­neyslu og hrað­ari bata í ferða­þjón­ustu. Störfum heldur áfram að fjölga og atvinnu­leysi að minnka og meiri spenna hefur mynd­ast í þjóð­ar­bú­inu en áætlað var í maí.“

[adspot]Verð­bólgu­horfur hafi hins vegar áfram versnað og nú er gert ráð fyrir að hún nái hámarki undir lok árs­ins í tæp­lega ell­efu pró­sentum. „Verri verð­bólgu­horfur end­ur­spegla kröft­ugri umsvif í þjóð­ar­bú­skapnum en gert var ráð fyrir í maí og þrá­lát­ari hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði auk meiri alþjóð­legrar verð­bólgu. Þá hafa verð­bólgu­vænt­ingar hækkað enn frekar á flesta mæli­kvarða.“

Pen­inga­stefnu­nefnd telur lík­legt að herða þurfi taum­hald pen­inga­stefn­unnar enn frekar til að tryggja að verð­bólga hjaðni í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma. „Pen­inga­stefnan mun á næst­unni ráð­ast af þróun efna­hags­um­svifa, verð­bólgu og verð­bólgu­vænt­inga. Ákvarð­anir í atvinnu­lífi, á vinnu­mark­aði og í rík­is­fjár­málum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara.“

Skýr merki um að markaðurinn sé að kólna

Íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hækkað um 15,5 pró­sent síð­ustu sex mán­uði og 25,5 pró­sent síð­asta árið. Ef horft er aftur til upp­hafs kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, sem hófst af alvöru hér­lendis í mars 2020, þá hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 48 pró­sent.

[links]Á land­inu öllu hækk­aði íbúða­verð um 26,4 pró­sent frá júní í fyrra og til loka sama mán­aðar í ár. Verðið hækk­aði meira í nágranna­sveit­ar­fé­lögum höf­uð­borg­ar­svæð­inu og ann­ars staðar á lands­byggð­inni en í höf­uð­borg­inni sjálfri og sveit­ar­fé­lög­unum sem liggja að henni.

Skýr merki eru þó um að hús­næð­is­mark­að­ur­inn sé að kólna. Líkt og Kjarninn greindi frá því gær þá hefur veru­lega hægt á hækk­unum á mark­aðnum – hækkun á verði var 1,1 pró­sent milli síð­ustu mán­aða og hefur ekki verið minni um langa hríð – ásamt því að fram­boð íbúða er að aukast. Ef horft er á sex mán­aða hlaup­andi með­al­tal þá hafa kaup­samn­ingar ekki verið færri frá því í apríl 2015.

Þetta bendir til þess að skarpar stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­banka Íslands, ásamt tak­mörk­unum sem hann hefur sett á útlán, hafi verið að bíta. Hærri stýri­vextir gera það enda að verkum að hámarks­láns­fjár­hæð sem heim­ilin geta tekið til að kaupa sér hús­næði minnkar.

Í mán­að­ar­skýrslu Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) um hús­næð­is­mark­að­inn sem birt var í gær var bent á að á meðan að stýri­vextir hækk­uðu tvö pró­sentu­stig frá því í maí á þessu ári og þangað til í gær hafi verð­bólgan vaxið um fimm pró­sentu­stig á sama tíma. Því hafa stýri­vextir lækkað að raun­virði. Í umfjöllun HMS segir að stýri­vextir hafi nú verið lægri en verð­bólga allt frá því í apríl 2020. „Aldrei áður hafa þeir verið undir verð­bólgu í svo langan tíma.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár