Bankar greiddu 5,3 milljarða í bankaskatt á sama tíma og hagnaður var um 80 milljarðar

Lækkun banka­skatts árið 2020 hefur skert tekjur rík­is­sjóðs gríð­ar­lega á sama tíma og hagn­aður banka hefur stór­auk­ist. Vaxta­munur hefur sam­hliða orðið meiri. Ef lækk­unin yrði dregin til baka myndu tekjur rík­is­sjóðs aukast um 9,4 millj­arða króna.

Á meðal aðgerða sem kynntar voru í fyrsta efnahagspakka ríkisstjórnarinnar til að bregðast við kórónuveirufaraldrinum var að lækka bankaskatt.
Á meðal aðgerða sem kynntar voru í fyrsta efna­hag­s­pakka rík­is­stjórn­ar­innar til að bregð­ast við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum var að lækka banka­skatt. Mynd: Bára Huld Beck

Alls greiddu fimm fjár­mála­fyr­ir­tæki hinn svo­kall­aða banka­skatt vegna árs­ins 2021, en hann leggst á slík sem skulda yfir 50 millj­arða króna í lok hvers árs. Kerf­is­lega mik­il­vægu bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, greiða þorra hans.

Alls var álagður banka­skattur 5,3 millj­arðar króna, sem er 552 millj­ónum krónum meira en var inn­heimt í hann vegna árs­ins 2020. Hann skil­aði því 11,5 pró­sent meiri tekjum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu vegna álagn­ingu opin­berra gjalda á lög­að­ila vegna rekstr­ar­árs­ins 2021 sem birt var fyrir helgi.

Á milli áranna 2019 og 2020 dróg­ust tekjur vegna banka­skatts­ins saman um 56,2 pró­sent, eða um 6,1 millj­arð króna. Sú lækkun kom til vegna þess að rík­is­stjórnin ákvað að lækka banka­skatt­inn vorið 2020, úr 0,376 í 0,145 pró­sent á heild­ar­skuldir greið­enda, og kynnti þá lækkun sem við­bragð við efna­hags­legum áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Vegna þessa kom lækk­unin öll til fram­kvæmda á árinu 2020 í stað þess að verða í skrefum á fjórum árum, líkt og fyrri áætl­anir gerðu ráð fyrir.

Hækkun skattsins á ný myndi skila 9,4 milljörðum í viðbót

Í byrjun nóv­em­ber greindi Kjarninn frá minn­is­blaði sem skrif­stofa skatta­mála fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins vann að beiðni efna­hags- og við­skipta­nefndar og var skilað til hennar 17. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Þar kom fram að ef banka­skatt­ur­inn svo­kall­aði yrði hækk­aður aftur úr 0,145 í 0,376 pró­sent af heild­ar­skuldum þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna myndi það auka tekjur rík­is­sjóðs af inn­heimtu skatts­ins úr 5,9 í 15,3 millj­arða króna á næsta ári. Þar munar 9,4 millj­örðum króna.

[adspot]Í minn­is­blað­inu sagði að skatt­byrði vegna banka­skatts­ins legg­ist ekki að öllu leyti á banka, heldur líka á við­skipta­vini þeirra. Þannig leiði auknar álögur á banka til þess að vaxta­munur auk­ist.

Þróun vaxta­munar – mis­mun­ar­ins á því sem bankar borga fyrir að fá fjár­magn að lán og því sem þeir rukka heim­ili og fyr­ir­tæki fyrir að lána þeim fjár­magn – hefur þó ekki verið þannig síðan að banka­skatt­ur­inn var lækk­að­ur. Þvert á móti lækk­aði vaxta­munur frá 2016 og fram yfir þann tíma. Í fyrra var hann 2,3 til 2,8 pró­sent. Á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs var hann 2,8 til 3,2 pró­sent. Vaxta­munur íslensku bank­anna er miklu meiri en banka af sam­bæri­legri stærð á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Vegna þessa hafa hreinar vaxta­tekjur bank­anna auk­ist gríð­ar­lega á milli ára, og farið úr 77,3 millj­örðum króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2021 í 94,2 millj­arða króna á sama tíma­bili í ár. Það er aukn­ing upp á 16,9 millj­arða króna, eða 22 pró­sent.

Samhliða því að ákveðið var að lækka banka­skatt­inn var sveiflu­jöfn­un­ar­auki á eigið fé banka afnumin tíma­bundið og stýri­vextir lækk­aðir niður í 0,75 pró­sent, sem hratt af stað mik­illi aukn­ingu á virði eigna sem bankar sýsla með og fjár­magna, sér­stak­lega hluta­bréfa og íbúða. Breyt­ing­una má glöggt sjá í upp­gjörum bank­anna síðan að þetta var ákveð­ið.

Eftir að hafa tapað sam­tals 7,2 millj­örðum króna á fyrstu þremur mán­uðum árs­ins 2020 end­uðu stóru bank­arnir þrír með sam­eig­in­legan hagnað upp á 29,8 millj­arða króna á öllu því ári. Á árinu 2021 höl­uðu þeir inn 81,2 millj­örðum króna í hagnað, eða 170 pró­sent meira en árið áður. Sam­an­lagður hagn­aður þeirra á fyrstu níu mán­uðum yfir­stand­andi árs var 50,2 millj­arðar króna.

Tugir milljarða greiddir út til hluthafa

Stóru bank­arnir hafa verið dug­legir við að skila þessum aukna hagn­aði til hlut­hafa sinna. Bæði Arion banki og Íslands­­­banki, sem báðir eru skráðir á markað, hafa það sem yfir­­lýst mark­mið að gera það, í gegnum arð­greiðslur og end­­ur­­kaup á bréf­­um.

Arion banki, eini stóri bank­inn sem er ekki að neinu leyti í opin­berri eigu, hefur verið allra banka dug­­leg­astur í þess­­ari veg­­ferð. Alls greiddi bank­inn út arð eða keypti eigin bréf af hlut­höfum fyrir 31,5 millj­­­arða króna ​á síð­­­asta ári. Á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2022 hefur Arion banki skilað 28,9 millj­­örðum króna til hlut­hafa sinna í gegnum arð­greiðslur og end­­ur­­kaup á bréf­­um. Því hefur Arion banki greitt yfir 60 millj­­arða króna út til hlut­hafa sinna á tveimur árum. Bank­inn hefur þegar boðað áform um að greiða enn meira út til þeirra í fyr­ir­­sjá­an­­legri fram­­tíð þannig að útgreiðsl­­urnar nálgist 90 millj­­arða króna.

[adspot]Íslands­­­banki greiddi hlut­höfum sínum 11,9 millj­­­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Auk þess kom fram fyrr á þessu ári að stjórn bank­ans stefni að því að greiða út 40 millj­­­arða króna í umfram eigið fé fyrir lok næsta árs. Þegar hefur verið sam­þykkt end­ur­kaupa áætlun fyrir 15 millj­arða króna í ár.

Banka­ráð Lands­­­bank­ans sam­þykkti á aðal­fundi í mars að greiða 14,4 millj­­­arðar króna í arð vegna árs­ins 2021. Banka­ráð sam­þykkti auk þess fyrr í ár að greiða út sér­staka arð­greiðslu upp á 6,1 millj­arð króna. Arð­greiðslur Lands­bank­ans fara nær allar í rík­is­sjóð.

Lengi verið stefna stjórnarinnar að lækka bankaskatt

Það var búið að vera lengi á stefnu­skrá rík­is­stjórnar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks að lækka banka­skatt­inn sem hafði skilað rík­is­sjóði miklum tekjum í kjöl­far banka­hruns­ins, fyrst með að leggj­ast af krafti á þrotabú föllnu bank­anna og síðan með því að leggj­ast á starf­andi íslenska við­skipta­banka.

[links]Sam­tök fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja höfðu árum saman kvartað tölu­vert undan banka­skatt­in­um, sagt að hann dragi úr sam­keppn­is­hæfni íslenska banka­­kerf­is­ins og leiði til verri kjara fyrir almenn­ing.

Frum­varp um að lækka banka­skatt­inn í skrefum var lagt fram 2018 og sam­kvæmt því átti það ferli að eiga sér stað milli 2020 og 2023. Í lok þess tíma­bils átti skatt­ur­inn að verða 0,145 pró­sent.

Í júní 2019 var ákveðið að fresta þessum áformum um eitt ár og að lækkun skatts­ins myndi hefj­ast 2021 en yrði komin að öllu leyti til fram­kvæmda á árinu 2024. Þær breyt­ingar voru gerðar vegna breyttra aðstæðna í íslensku efna­hags­lífi, aðal­­­­­­­lega vegna gjald­­­­þrots WOW air og loðn­­­u­brests.

Síðla árs 2019 var frum­varp um að lækka banka­skatt í þrepum svo sam­þykkt. Sam­kvæmt því átti að lækka skatt­inn niður í 0,145 pró­sent í þremur áföngum á árunum 2021 til 2024.

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, sagði meðal ann­ars í aðdrag­anda þess í stöðu­upp­færslu á Twitter að skatt­ur­inn þyrfti að fara. Það væri grund­vall­­ar­at­riði að íslenskir bankar myndu búa við eðli­­leg og sam­keppn­is­hæf skil­yrði til að sinna við­­skipta­vinum sín­­um.

Þar hlekkj­aði Bjarni í frétt Frétta­­­blaðs­ins­ sem birst hafði sama dag þar sem kom fram að ef ­sér­­­stakur banka­skattur yrði afnumin með öllu myndi sölu­and­virðið sem rík­­­is­­­sjóður gæti vænst að fá fyrir hlutafé í Íslands­­­­­banka og Lands­­­banka, yrðu þeir seldir að fullu, hækka um 70 millj­­­arða króna.

Í grein­ar­gerð frum­varps­ins sagði að með því yrði komið til móts við gagn­rýni hags­muna­sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja á fjár­hæð banka­skatts­ins „í því skyni að liðka fyrir lækkun útlána­vaxta og hækkun inn­eign­ar­vaxta til hags­bóta fyrir almenn­ing.“

Í kjöl­far kór­ón­u­veiru­far­ald­­ur­s­ins var lækk­­un­inni, líkt og áður sagði, svo flýtt og gjald­hlut­­fallið var fært niður í 0,145 pró­­sent vegna skulda í árs­­lok 2020.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár