Eru íslensku bankarnir að okra á heimilum landsins?

Starfs­hópur hefur verið skip­aður til að greina hvernig íslenskir bankar haga gjald­töku sinni, hvernig þeir græða pen­inga og hvort það sé vís­vit­andi gert með ógagn­sæjum hætti í skjóli fákeppni. Hópurinn á að bera það saman við stöð­una á Norð­ur­löndum.

Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra, lagði fram tillögu um skipun starfshópsins sem var samþykkt.
Lilja D. Alfreðs­dóttir, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, lagði fram til­lögu um skipun starfs­hóps­ins sem var sam­þykkt. Mynd: RÚV/Skjáskot

Rík­is­stjórn Íslands sam­þykkti á fundi sínum á þriðju­dag til­lögu Lilju D. Alfreðs­dóttur, menn­ingar- og við­skipta­ráð­herra, um að skip­aður verði starfs­hópur sem greina muni gjald­töku og arð­semi íslenskra við­skipta­banka og bera saman við nor­ræna banka.

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans mun Daníel Svav­ars­son, hag­fræð­ingur og skrif­stofu­stjóri verð­mæta­sköp­unar í ráðu­neyti Lilju, leiða vinnu hóps­ins. Auk hans eiga Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands, Neyt­enda­sam­tökin, Samtök fjár­mála­fyr­ir­tækja og fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið að til­nefna full­trúa í hóp­inn.

Daníel þekki vel til í banka­kerf­inu, en hann stýrði hag­fræði­deild Lands­bank­ans frá 2010 og þangað til í febr­úar á þessu ári. Þar áður starf­aði hann hjá Seðla­banka Íslands við efna­hags­grein­ingar. Sumarið 2007 skrif­aði Daníel grein í Pen­inga­mál ásamt Pétri Erni Sig­urðs­syni, sem starf­aði líka sem hag­fræð­ingur hjá Seðla­bank­anum, þar sem varað var við mik­illi skuld­setn­ingu fyr­ir­hruns-bank­anna sem leiddi af sér hreinar erlendar skuldir íslenska þjóð­ar­bús­ins væru með þeim mestu í heimi. Með öðrum orðum, að íslenska útrásin og gríð­ar­leg stækkun íslenska banka­kerf­is­ins var fjár­mögnuð með erlendu lánsfé, og fyrir það fé væru keyptar skuld­settar eignir sem væru ekki farnar að skila arði. Rúmu ári eftir birt­ingu grein­ar­innar hrundi íslenska banka­kerfið.

Hagnaður jókst um 170 prósent milli ára

Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var skipan hóps­ins rök­studd á rík­is­stjórn­ar­fund­inum með þeim gríð­ar­lega hagn­aði sem stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki, skil­uðu á síð­asta ári þegar þeir högn­uð­ust sam­an­lagt um 81,2 millj­arða króna. Það er um 170 pró­sent meiri hagn­aður en þeir skil­uðu árið 2020 og lang­mesti hagn­aður sem þeir hafa skilað af reglu­legri starf­semi innan árs síðan að bank­arnir þrír voru end­ur­reistir í kjöl­far banka­hruns­ins.

[adspot]Tvennt réði miklu í þess­ari þróun. Annars vegar gríð­ar­leg aukn­ing útlána til heim­ila vegna íbúð­ar­kaupa, sem stækk­aði lána­safn bank­anna og jók fyrir vikið vaxta­tekjur þeirra. Vaxta­tekjur eru til­komnar vegna svo­kall­aðs vaxta­munar, en hann er mun­ur­inn á því sem bank­arnir borga okkur í vexti fyrir að geyma pen­ing­anna okkar og því sem þeir rukka okkur fyrir að fá þá aftur lán­aða.

Vaxta­munur bank­anna þriggja var á bil­inu 2,3-2,8 pró­­sent á síð­asta ári, sem er mjög svipað og hann var á árinu 2020, þegar hann var 2,7 pró­­sent að með­­al­tali. Mestur var hann hjá Arion banka en minnstur hjá Lands­bank­an­um. Til sam­an­­burðar þá var vaxta­munur nor­ræna banka sem eru svip­aðir að stærð og þeir íslensku 1,68 pró­­sent í fyrra. Hjá stórum nor­rænum bönkum er hann undir einu pró­­senti, sam­­kvæmt því sem fram kemur í árs­­riti Sam­­taka fjár­­­mála­­fyr­ir­tækja.

Vaxta­mun­ur­inn jókst á fyrsta árs­fjórð­ungi þessa árs. Mestur var hann hjá Arion banka var hann 3,1 pró­sent og hefur ekki verið meiri frá árinu 2016. Minnstur var hann hjá Lands­bank­anum, 2,4 pró­sent.

Lækkun bankaskatts skilaði sér ekki til neytenda

Þessi þróun hefur átt sér stað þrátt fyrir að rík­is­stjórn Íslands hafi ákveðið, sem efna­hags­legt við­bragð við kór­ónu­veiru­far­aldr­inum, að lækka banka­skatt á heild­ar­skuldir þeirra banka sem skulda yfir 50 millj­arða króna úr 0,376 í 0,145 pró­sent árið 2020. Sú lækkun rýrir tekjur rík­is­sjóðs um sex millj­arða króna á ári. Ein helsta rök­semd­ar­færsla for­svars­manna fjár­mála­kerf­is­ins fyrir því að lækka banka­skatt­inn hefur verið sú að það skili minni vaxta­mun. Að pen­ing­arnir sem ríkið gefi eftir í tekjum muni skila sér til neyt­enda. Það virð­ist þó ekki vera raunin miðað við þann vaxta­mun sem er hjá bönk­unum.

Hins vegar hagn­ast bank­arnir á þókn­ana­­tekj­­um, stundum líka kall­aðar þjón­ust­u­­tekj­­ur. Þar er um að ræða þókn­­anir fyrir t.d. eigna­­stýr­ingu og fyr­ir­tækja­ráð­­gjöf. Þessar tekjur uxu gríð­­ar­­lega á síð­asta ári.

Hjá Lands­bank­anum fóru þær úr 7,6 í 9,5 millj­­arða króna og juk­ust því um 25 pró­­sent milli ára. Þar skipti meðal ann­­ars máli að samn­ingum um eigna­­stýr­ingu fjölg­aði um fjórð­ung milli ára. Þókn­ana­­tekjur Íslands­banka hækk­­uðu um 22,1 pró­­sent og voru sam­tals 12,9 millj­­arðar króna. Hreinar þókn­ana­tekjur Arion juk­ust um 26,7 pró­sent og voru 14,7 millj­arðar króna. Sam­tals voru því hreinar þókn­ana­tekjur bank­anna þriggja 37,1 millj­arður króna.

Verðskrá vísvitandi sett fram með flóknum og óskýrum hætti

Fyrir liggur að stór hluti útgjalda heim­ila lands­ins fer í að greiða afborg­anir af lánum, vaxta­gjöld og þjón­ustu­gjöld til banka. Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, hefur ítrekað bent á að bankar setji verð­skrá sína fyrir veitta þjón­ustu vilj­andi fram með flóknum og óskýrum hætti þannig að neyt­endur eigi ekki mögu­leika á að bera þær saman. Í erindi sem hann hélt á morg­un­verð­ar­fundi Fjár­mála­eft­ir­lits­ins snemma árs 2019 sagði Gylfi að þetta, og önnur óskýr starf­semi bank­anna, skili rentu sem sé ekki notuð til að bæta kjör til almenn­ings heldur til að greiða há laun til starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja, skila miklum hagn­aði og til að byggja nýjar bygg­ing­ar.

Í grein sem Gylfi skrif­aði í Vís­bend­ingu í ágúst sama ár sagði hann að listi yfir þjón­ustu­gjöld við­skipta­bank­anna væri 16 blað­síðna langur og „skóla­bók­ar­dæmi um fákeppni“.

í mars á þessu ári kall­aði Gylfi, sem situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, eftir því í grein sem birt­ist í Vís­bend­ingu að Sam­keppn­is­eft­ir­litið ráð­ist í athugun á íslenska banka­kerf­inu í ljósi mik­illar arð­semi þeirra og fákeppn­isum­hverfis sem leiði til þess að bank­arnir geti farið sínu fram og aukið eigin arð­semi með ógagn­sæjum verð­skrám og ósam­hverfum upp­lýs­ingum um gjald­skrár og vaxta­mun án þess að við­skipta­vinir þeirra geti rönd við reist.

Ráðist verður í frumkönnun á samkeppnisaðstæðum

Starfs­hópur Lilju á að ráð­ast í skoðun á þessum málum, með vísan til sam­keppn­is­þátta og hags­muna neyt­enda. Hópurinn á að greina hvort íslensk heim­ili séu að borga meira fyrir almenna við­skipta­banka­þjón­ustu en heim­ili á hinum Norð­ur­lönd­unum.

Auk þess herma heim­ildir Kjarnans að lagt hafi verið til, og sam­þykkt, að ráð­ast í frum­könnun á því hvort sam­keppn­is­að­stæður á banka­mark­aði séu með þeim hætti að bankar geti veitt hvorum öðrum sam­keppn­is­legt aðhald, og hvort skortur á slíku aðhaldi leiði til þess að bank­arnir geti hagað fram­setn­ingu gjalda og arð­sem­is­krafna með þeim hætti sem þeir gera.

Í grein sem Lilja birti í Morg­un­blað­inu í morgun segir hún að fyrir liggi að stór hluti af útgjöldum heim­il­anna renni til bank­anna, í formi afborg­ana af hús­næðis-, bíla- og neyslu­lánum auk vaxta og þjón­ustu­gjalda. „Sam­setn­ing þess­ara gjalda er oft flókin, sem gerir sam­an­burð erf­iðan fyrir almenna neyt­endur. Því tel ég brýnt að hlutur þess­ara þátta verði skoð­aður ofan í kjöl­inn, með vísan til sam­keppn­is­þátta og hags­muna neyt­enda. Mark­miðið er að kanna hvort íslensk heim­ili greiði meira fyrir almenna við­skipta­banka­þjón­ustu en heim­ili á hinum Norð­ur­lönd­unum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár