Listi yfir þjónustugjöld bankanna skólabókardæmi um fákeppni

Gylfi Zoega segir að það sé ekki hægt að nota ódýrt kort í inn­an­lands­við­skiptum hér­lendis vegna þess að það myndi minnka hagnað bank­anna.

Listi yfir þjón­ustu­gjöld við­skipta­bank­anna er um 16 blað­síðna langur og skóla­bók­ar­dæmi um fákeppni.“ Þetta er meðal þess sem Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði, segir í grein sem birt­ist í síð­ustu útgáfu Vís­bend­ingar sem kom út fyrir helgi. Þar fjallar hann ítar­lega um hvað getur farið úrskeiðis hjá íslenskum stjórn­völdum sem geti leitt til nýs fjár­mála­hruns.

[links]Í grein­inni segir Gylfi meðal ann­ars að á smáum mörk­uðum eins og hér á landi geti ein­stakir stórir aðilar haft áhrif á verð hluta­bréfa. Auk .ess séu fáir aðilar á mark­aði þannig að þeir geta ákveðið verð fyrir þjón­ustu sína. Dæmi um þetta sé hinn 16 blað­síðna langi listi við­skipta­bank­anna um þjón­ustu­gjöld þeirra. Hann hefur áður gagn­rýnt það að bankar setji vilj­andi fram verð­skrá sína með flóknum og óskýrum hætti svo neyt­endur ættu ekki mögu­leika á því að bera þær saman.

[adspot]Annað dæmi sé að hér á landi er ekki unnt að nota ódýr kort í inn­an­lands­við­skiptum eins og tíðkast á hinum Norð­ur­lönd­unum. „Slíkt myndi minnka hagnað bank­anna og Reikni­stofa bank­anna þjónar eig­endum sínum, bönk­unum, og hamlar sam­keppni. Almennt gildir að kerf­is­lega mik­il­vægir bankar geta reitt sig á hjálp hins opin­bera þegar illa fer en notið hagn­aðar þegar vel gengur, lán­tak­endur geta sömu­leiðis notið hagn­aðar af skuld­settri fjár­fest­ingu þegar vel gengur en lán­ar­drott­inn, þ.e.a.s. banki, tekur á sig tjónið þegar illa gengur. Ef nú eig­endur banka búa til pen­inga til þess að lána sjálfum sér þá hagn­ast þeir þegar vel gengur en bank­inn og skatt­greið­endur eða erlendir bankar sitja uppi með tjónið þegar illa gengur. Að auki ein­kennir hjarð­hegðun aðila á fjár­mála­mörk­uðum og stundum skortur á fram­sýni. Allir þessir brestir voru til sýnis árið 2008.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár