Telur kreddustjórnmál eins og nýfrjálshyggju vera á undanhaldi

Doktor í hag­ræði segir nýfrjáls­hyggju vera á und­an­haldi og að komm­ún­ismi komi ekki aftur. Hvorug leiðin hafi leitt til sjálf­bærrar efna­hags­þró­unar. Tími sé kom­inn fyrir metn­að­ar­fulla græna atvinnu­stefnu fyrir Ísland, sem dragi úr líkum á enn einu hrun­inu.

Guðrún Johnsen.
Guðrún Johnsen. Mynd: Arion banki

„Einka­geir­inn getur ekki án opin­bera geirans verið – og opin­beri geir­inn getur ekki þrif­ist án einka­geirans. Fram undan er öld prag­ma­tíkur, og sátt við þá stað­reynd að mark­aðs­brestir jafnt og rík­is­brestir leiða til þess að fram­leiðslu­þátt­unum kann að vera varið með óskil­virkum hætti, frá einum tíma til ann­ars.“

Þetta skrifar Guðrún Johnsen, doktor í hag­fræði, í grein sem birt­ist í Vís­bend­ingu í síð­ustu viku og bar fyr­ir­sögn­ina „Vegvísir út úr veirunni: Græn atvinnu­stefna fyrir Ísland?“

Þar segir Guðrún að kúnstin liggi í því að hafa sveigj­an­leika til að sætta sig við að ríkið fram­leiði sum gæði með skil­virk­ari hætti og einka­geir­inn standi sig betur á sumum sviðum, á ólíkum tímum.

[adspot]Hún veltir svo fyrir sér hvort slík stefna geti rúm­ast innan nýfé­lags­hyggju eða lýð­ræð­is­fé­lags­hyggju, í takt við Bernie Sanders sem kallar sig „Democratic Socialist”?“ Skand­ína­var sjái litla ógn í Sanders, en í þeirra augum sé hann ekk­ert annað en banda­rísk útgáfa af sænskum sós­í­alde­mókrata.

Út í hinum stóra heimi sé ljóst er að kreddu­stjórn­mál eins og nýfrjáls­hyggjan séu á und­an­haldi og að komm­ún­ism­inn sé ekki að koma aftur. „Við höfum prófað hvoru tveggja. Hvorugt reynd­ist leiða til sjálf­bærrar efna­hags­þró­unar. Stóra spurn­ingin er hvort þau halda velli á Íslandi, þrátt fyrir tvenns konar hrun sem rík­is­valdið þarf að hreinsa upp. Eða er kom­inn tími til að búa til metn­að­ar­fulla græna atvinnu­stefnu fyrir Ísland, svo draga megi úr líkum á þriðja hrun­inu á okkar ævi­skeiði?“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár