Gæti Zoom-væðingin skilað betra hagkerfi en var í byrjun árs?

Ein jákvæð mögu­leg breyt­ing sem gæti orðið vegna COVID-19 far­ald­urs­ins er sú að við­horf gagn­vart fjar­vinnu­for­ritum gæti breyst, en notkun á slíkum bún­aði hefur stór­auk­ist síð­ustu vikur. Skil­virkni gæti auk­ist og ferða­lögum fækkað mikið.

„Við fyrstu sýn kann að virð­ast ein­kenni­legt að búast við því að heims­hag­kerfið muni taka var­an­legum breyt­ingum vegna þess tíma­bundna neyð­ar­á­stands sem nú ríkir um allan heim. Ekki er búist við meiri­háttar tækni­þróun eða gjör­breyt­ingu á mennt­un­ar­stigi á næstu mán­uðum, við munum flest örugg­lega búa við svip­aða tækni og þekk­ingu og við gerðum í byrjun þessa árs.

Hins vegar er mögu­legt að þær breyt­ingar sem hafa orðið á dag­legu lífi á und­an­förnum vikum hafi var­an­lega breytt hegðun og smekk manna, og getur það haft marg­vís­leg áhrif á hag­kerfið.“

Þetta skrifar Jónas Atli Gunn­ars­son, rit­stjóri Vís­bend­ingar, í nýj­ustu útgáfu rits­ins.

Hann segir að ein mögu­leg breyt­ing sé breytt við­horf gagn­vart fjar­vinnu­for­ritum líkt og Zoom, Skype og Google hangouts, en notkun á slíkum bún­aði hefur stór­auk­ist á síð­ustu vikum um allan heim og gert fólki kleift að vinna úr heima­húsum. Ef þessi þróun sé ekki ein­ungis tíma­bundin og hag­kerfið fer í gegnum svo­kall­aða Zoom-væð­ingu gæti það orðið skil­virkara, grænna og jafn­ara fyrir vikið.

[adspot]„Jákvæðar breyt­ingar spretta oft upp úr leið­in­legum aðstæðum. Ef Zoom-væð­ingin er komin til að vera gætum við endað með betra hag­kerfi en við höfðum í byrjun þessa árs.

Ekki er enn víst hvort fólk muni vinna meira að heiman eftir að far­aldr­inum lýkur, en út frá kenn­ingum um veg­ar­tryggð og yfir­lýs­ingum frá stór­fyr­ir­tækjum má leiða líkum að því að sú verði raunin. Skil­virknin gæti þannig auk­ist, bæði vegna styttri vinnu­tengdra ferða­laga og vegna minni umferðar. Fækkun ferða­laga vegna vinnu gæti líka dregið úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, auk þess sem hún er lík­leg til að auka eft­ir­spurn eftir búsetu utan stór­borga og þannig dregið úr þeim tekju­ó­jöfn­uði sem ríkir milli þétt­býlis- og dreif­býl­is­svæða. Þótt ferða­þjón­ustan gæti liðið fyrir minni vinnu­tengd ferða­lög í ýmsum löndum er ekki lík­legt að slíkt ger­ist hér á landi, þar sem fáir ferða­menn koma hingað vegna vinnu.“

Þetta er brot úr umfjöllun Jónasar Atla um mögu­lega Zoom-væð­ingu hag­kerf­is­ins.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu og lesa grein­ina í heild sinni og fá viku­lega sent hágæðaum­fjall­anir um við­skipti, efna­hags­mál og nýsköpun með því að smella á hlekk­inn hér að neðan.

Ég vil ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár