Helsti vandi hagstjórnar á Íslandi um þessar mundir er sá að búast má við að rekstrarerfiðleikar fyrirtækja haldi áfram þangað til bóluefni við veirunni sem veldur COVID-19 er fundið. Það gæti dregist fram á næsta ár, jafnvel sumarið 2021.
Þetta skrifar Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði, í grein sem birtist í nýjustu útgáfu Vísbendingar.
Búast megi við því að samdráttur verði á bilinu fjögur til sjö prósent í ár, og því svipaður og árið 1968, eftir að síldin hvarf af Íslandsmiðum, og árið 2009 í kjölfar fjármálahrunsins. Þessi tvö ártöl eru fræg í hagsögu Íslands.
[adspot]Samdrátturinn nú verði hins vegar annars eðlis. „Árið 1968 hvarf síldin af Íslandsmiðum og útflutningstekjur lækkuðu sem olli samdrætti á framleiðslu og atvinnu. Árið 2009 hafði fjármálastarfsemi hrunið og framlag hennar til landsframleiðslu því dregist saman. Samdrátturinn nú er allt annars eðlis en sá sem varð við hrun síldarstofnsins árið 1968 og við fall bankanna árið 2008. Samdrátturinn stafar annars vegar af því að erlendir ferðamenn hafa, vonandi tímabundið, hætt við komur sínar hingað til landsins vegna sóttvarna heima fyrir og Íslendingar geta ekki lengur notið þjónustu eða veitt hana innanlands vegna innlendra sóttvarna. Þannig má segja að samdrátturinn nú sé stjórnvaldsákvörðun.“
Að sögn Gylfa mun samdrátturinn taka enda þegar sóttvarnir verða ekki lengur nauðsynlegar eftir að bóluefni hefur verið fundið.
Gylfi segir að Ísland geti notað landfræðilega einangrun sína til þess að prófa þá sem komi til landsins fyrir farsóttinni og setja þá í einangrun þangað til að bóluefni hefur verið fundið. „Slíkt myndi aftra þeim fáu erlendu ferðamönnum sem hingað vildu koma í sumar frá því að koma til landsins en skapa svigrúm fyrir aukna innlenda eftirspurn. Nú þegar áætlun um slökun á samkomubanni hefur verið birt væri gagnlegt að stjórnvöld birtu samhliða efnahagsáætlun um það hvernig hagkerfið verði örvað á næstu mánuðum. Slík örvun yrði í formi aukinnar innlendrar eftirspurnar, ekki einungis á vegum hins opinbera, heldur einnig í formi ferðaþjónustu sem markaðssetur sig innanlands.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir