Vilja sértækar aðgerðir á vinnumarkaði

Sjö grein­ar­höf­undar í Vís­bend­ingu hafa kallað eftir sér­tækum aðgerðum til þess að bregð­ast við atvinnu­leysi sem hefur náð sögu­legum hæðum vegna efna­hags­á­hrifa kór­ónu­veirunnar.

Sérfræðingarnir hafa ýmsar hugmyndir til að berjast gegn nýlegri aukningu atvinnuleysis.
Sér­fræð­ing­arnir hafa ýmsar hug­myndir til að berj­ast gegn nýlegri aukn­ingu atvinnu­leysis. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Atvinnu­leysi er sam­fé­lags­legt mein og ríkið ætti að bregð­ast við aukn­ingu þess í yfir­stand­andi kreppu með sér­tækum aðgerðum. Þetta er sam­eig­in­legt álit sjö sér­fræð­inga sem skrifað hafa í viku­rit­inu Vís­bend­ingu frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn náði hingað til lands í mars síð­ast­liðnum.

Ýmsir mögu­leikar hafa verið nefndir, þar á meðal hefur því verið velt upp hvort ríkið eigi að tryggja lág­marks­fram­boð af lausum störfum eða hvort Seðla­bank­inn eigi að taka til­lit til atvinnu­leysis í vaxta­á­kvörðun sinni. Hins vegar eru grein­ar­höf­undar ósam­mála um það hvort hækka eigi bætur í grunn­kerfi atvinnu­leys­is­bóta.

Samfélagsmein

Í byrjun apríl skrif­aði Guðrún Johnsen, doktor í hag­fræði og efna­hags­ráð­gjafi VR, um áhrif krepp­unnar sem þá var yfir­vof­andi á vinnu­mark­aðnum. Hún beindi sér­stak­lega sjónum sínum að félags­legum afleið­ingum atvinnu­leysis, sem birt­ast í auk­inni tíðni þung­lyndis og alvar­legs kvíða, sem og hærri dán­ar­tíðni. Þessi nei­kvæðu áhrif dreifast svo einnig til fjöl­skyldu­með­lima þeirra sem misst hafa vinn­una, til dæmis eru börn atvinnu­lausra ólík­legri til að mennta sig.

Daði Már Krist­ó­fers­son hag­fræði­pró­fessor við HÍ minnt­ist einnig á félags­legar afleið­ingar atvinnu­leysis í grein sinni sem birt­ist í Vís­bend­ingu í síð­asta mán­uði. Þar segir Daði atvinnu­leysi vera sam­fé­lags­mein og bætti við að nei­kvæð áhrif þess væru vel þekkt og rann­sökuð.

Langvinn áhrif fyrir launþega, skemmri fyrir vinnuveitendur

Samkvæmt Guðrúnu eru áhrif kreppu á laun­þega sem missa vinn­una mun lang­líf­ari en efna­hags­leg áhrif hennar á vinnu­veit­endur. Á meðan atvinnu­rek­endur geta rétt úr kútnum til­tölu­lega fljótt eftir að kreppan ríður yfir má gæta nei­kvæðra tekju­á­hrifa meðal þeirra sem misst hafa vinn­una árum eða jafn­vel ára­tugum saman.

Katrín Ólafs­dóttir, hag­fræði­lektor við HR og með­limur pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans, benti líka á að það gæti teki langan tíma fyrir atvinnu­leysið sjálft að lækka á nýjan leik í grein sem hún skrif­aði í maí síð­ast­liðnum. Samkvæmt henni munu mörg starf­anna sem tap­ast hafa í þess­ari kreppu ekki koma aftur í sömu mynd og því muni ný störf ekki finn­ast strax.

Sértækar aðgerðir nauðsynlegar

Að mati Guðrúnar er mik­il­vægt að hið opin­bera ein­beiti sér að sér­tækum aðgerðum sem bein­ast að þeim sem á mestri hjálp þurfa að halda í stað almennra aðgerða. Mik­il­vægt sé að halda sam­bandi vinnu­veit­enda og laun­þega, auk þess sem atvinnu­leys­is­bætur ættu að verða hækk­aðar.

Anna Hrefna Ingi­mund­ar­dóttir for­maður efna­hags­sviðs SA tók undir með Guðrúnu í að ráð­ast ætti í sér­tækar aðgerðir á vinnu­mark­aði til að við­halda sam­bandi vinnu­veit­enda og laun­þega í grein sem hún skrif­aði í Vís­bend­ingu í ágúst. Hins vegar er hún ósam­mála um hækkun atvinnu­leys­is­bóta, sem hún telur geta leitt til auk­ins kostn­aðar fyrir rík­is­sjóð, verð­bólgu og auknu atvinnu­leysi.

Daði Már Krist­ó­fers­son hag­fræði­pró­fessor við HÍ og vara­for­maður Við­reisnar kom þó hækkun bóta til varnar og benti á að fjöldi rann­sókna sýndu fram á að meintu nei­kvæðu áhrifin sem gætu fylgt henni eru minni á sam­drátt­ar­tímum.

Hann var hins vegar sama sinnis og Guðrún og Anna Hrefna um að beita eigi tíma­bundnum sér­tækum aðgerðum til að sporna gegn áhrifum yfir­stand­andi kreppu.

Framlengja tekjutengingu


Sumar af til­lögum höf­und­anna hafa nú þegar verið fram­kvæmdar af rík­is­stjórn­inni. Í grein eftir Guðrúnu sem birt­ist í Vís­bend­ingu um miðjan júní mældi hún með því að tíma­bil hluta­bóta­leið­ar­innar og tekju­tengdra atvinnu­leys­is­bóta yrði fram­lengt til að koma í veg fyrir greiðslu­vanda íslenskra heim­ila. Anna Hrefna og Daði Már tóku í sama streng og sögðu þau bæði sterk rök hníga að því að fram­lengja hluta­bóta­leið­ina, sem kemur í veg fyrir enn frek­ari upp­sagnir.

Ásmundur Einar Daðason félags­mála­ráð­herra lagði svo fram til­lögur um fram­leng­ingu hluta­bóta­leið­ar­innar og tekju­teng­ingu atvinnu­leys­is­bóta fyrir rík­is­stjórn­ina, sem sam­þykktu þær í lok ágúst­mán­aðar.

Hlutverk seðlabanka

Ásgeir Brynjar Torfason doktor í fjár­málum velti því upp hvort seðla­bankar ættu að líta í meiri mæli til atvinnustigs heldur en verð­stöð­ug­leika þegar vaxta­stig er ákvarðað í grein sem hann skrif­aði í Vís­bend­ingu í maí. Því til stuðn­ings nefndi hann að atvinnu­leysi geti verið dýr­keypt­ara og verra fyrir sam­fé­lagið heldur en lít­ils háttar sveiflu í verð­lagi.

Auk þess sagði hann að meiri líkur væru á verð­hjöðnun til skamms tíma heldur en verð­bólgu vegna verð­þró­unar í nágranna­ríkjum okkar. Ásgeir benti líka á að teng­ingin milli launa­hækk­ana inn­an­lands og verð­bólgu væru óljós, svo mögu­legt væri að laun gætu hækkað án þess að verð­stöð­ug­leika væri ógnað.

Atvinnuframboðstrygging

Önnur til­laga kom frá Ólafi Mar­geirs­syni doktor í hag­fræði, sem færði rök fyrir því að ríkið ætti mögu­lega að veita svo­kall­aða atvinnu­fram­boðs­trygg­ingu. Samkvæmt honum fæli slík trygg­ing í sér að hið opin­bera tryggi nægt fram­boð af atvinnu­mögu­leikum hverju sinni. Hana mætti bera saman við almenna heil­brigð­is­trygg­ingu, sem tryggi lág­marks­fram­boð af heil­brigð­is­þjón­ustu, eða mennta­kerfið, sem tryggi lág­marks­fram­boð af menntun.

Með slíkri trygg­ingu yrði séð til þess að verð­mæta­sköpun ætti sér stað þótt eft­ir­spurn eftir vinnu væri lítil meðal einka­fyr­ir­tækja. Í stað þess að atvinnu­lausir eyði tím­anum sínum í atvinnu­leit eða hverfi af vinnu­mark­aði gætu þeir eflt hæfni sína og lagt eitt­hvað af mörkum til sam­fé­lags­ins með því að mæta í vinnu.

Að mati Ólafs gæti þetta komið í veg fyrir félags­legu vanda­málin sem fylgja atvinnu­leys­inu, auk þess sem komið yrði í veg fyrir und­ir­boð á vinnu­mark­aði og mis­notkun á starfs­fólki, sem á sér gjarnan stað þegar lítið er um örugg störf.

Ekki reist í sömu mynd

Til við­bótar við skamm­tíma­að­gerðir til að sporna við auknu atvinnu­leysi kall­aði Gylfi Zoega hag­fræði­pró­fessor við HÍ og með­limur pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans eftir því að skapa þurfi umhverfi sem býr til vel launuð störf hér á landi í grein sem birt­ist í Vís­bend­ingu í maí.

Samkvæmt Gylfa glímdi ferða­þjón­ustan, sem lent hefur verst allra atvinnu­greina í krepp­unni, við of háan kostnað starfs­manna hennar á Íslandi áður ein veiran barst hingað. Kreppan hafi svo afhjúpað veik­leika þess að vera með lág­launa­grein eins og ferða­þjón­ust­una í hálauna­landi.

„Eftir mis­heppn­aða einka­væð­ingu banka og mik­inn vöxt ferða­þjón­ustu er nú lag að skipu­leggja fram í tím­ann hvaða greinum eigi að hlúa að til þess að skapa vel launuð störf í fram­tíð­inni. End­ur­reisn ferða­þjón­ustu í sömu mynd og hún hafði fyrir daga far­sótt­ar­innar er varla æski­leg,“ skrif­aði Gylfi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár