Kórónukreppan kemur verr niður á ungu fólki

Hag­fræði­pró­fessor skrifar um ójöfn áhrif kór­ónu­krepp­unnar í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Samkvæmt honum kemur sam­drátt­ur­inn þyngra niður á yngra fólki.

Friðrik Már Baldursson, hagfræðiprófessor við Háskólann í Reykjavík.
Friðrik Már Bald­urs­son, hag­fræði­pró­fessor við Háskól­ann í Reykja­vík. Mynd: HR.

Kostn­að­ur­inn af kór­ónu­krepp­unni fellur hlut­falls­lega þyngra á yngra fólk en þá sem eldri eru. Þetta eru nið­ur­stöður Friðriks Más Bald­urs­sonar, hag­fræði­pró­fess­ors við Háskól­ann í Reykja­vík í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út síð­asta föstu­dag.

Meira atvinnuleysi meðal ungra

Í grein­inni vitnar Friðrik í breska rann­sókn sem sýnir að yngra fólk sé lík­legra til að starfa í greinum sem hafa orðið illa úti í kór­ónu­krepp­unni og sé þannig lík­legra til að verða atvinnu­laust. Sú virð­ist einnig vera raunin hér á landi, en að jafn­aði voru þrefalt fleiri atvinnu­lausir undir fer­tugu en yfir fimm­tugu á milli mars-og ágúst­mán­aðar. Munurinn er svo enn meiri ef hóp­ur­inn undir þrí­tugu er bor­inn saman við sex­tuga og eldri. [adspot]

Styrkir áralanga þróun

Samkvæmt Friðriki koma þessi áhrif í fram­haldi af þróun und­an­far­inna ára og ára­tuga bæði erlendis og hér á landi þar sem tekjur yngra fólks hafa lækkað sem hlut­fall af með­al­tekjum, á meðan hlut­deild eldri fólks hefur auk­ist. „Ætla má að sú þróun sem orðið hefur á vinnu­mark­aði að und­an­förnu hafi skerpt á þessum mun og að bilið eigi enn eftir að breikka,“ segir hann í grein­inni sinni.

Friðrik Már bætir einnig við að það sé áber­andi að eldri ein­stak­lingar hafi sig meira frammi í opin­berri umræðu um það hvaða stefnu skuli taka í sótt­vörnum. Samkvæmt honum hefur þetta leitt til harð­ari sótt­varna en ella, sem leiðir að jafn­aði til enn þyngri efna­hags­legra byrða sem vega hlut­falls­lega þyngra á yngra fólk.

Hægt er að lesa grein Friðriks Más í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

http://www.visbending.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár