Nauðsynlegt að nýta lærdóminn af faraldrinum í þágu loftslagsmála

Fram­kvæmda­stýra Orku nátt­úr­unnar segir heims­far­ald­ur­inn hafi sýnt hversu hratt sé hægt að breyta hefðum og verk­lagi þegar mikið liggur við. Nauð­syn­legt sé að nýta þennan lær­dóm í þágu lofts­lags­mála.

Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar.
Berglind Rán Ólafs­dóttir, fram­kvæmda­stýra Orku nátt­úr­unnar. Mynd: Orkuveita Reykjavíkur

Knýja þarf fram breyt­ingar í orku­málum af mun meiri krafti og ákefð en nokkru sinni áður, að mati Berg­lindar Ránar Ólafs­dóttur, fram­kvæmda­stýru Orku nátt­úr­unnar. Samkvæmt henni ættu stjórn­endur í sam­fé­lag­inu í auknum mæli að hlusta á áhyggjur ungs fólks af lofts­lags­vánni, en breyttar lífs­venjur í kjöl­far heims­far­ald­urs­ins hafi sýnt að hefðum, verk­lagi, og rót­grónum ferlum geti verið breytt á skömmum tíma án þess að heim­ur­inn farist.

Þetta kemur fram í grein Berg­lindar Ránar í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem birt­ist áskrif­endum síð­asta föstu­dag.

COVID sýndi hversu hraðar breytingar geta orðið

Í grein­inni segir hún að flestir stjórn­endur fyr­ir­tækja hefðu ekki talið það raun­hæft að láta stóran hluta starfs­fólks síns vinna heima hjá sér fyrir rúmu ári síðan. Eftir að heims­far­ald­ur­inn skall á hafi þessar breyt­ingar hins vegar átt sér stað með skjótum hætti.

„Þennan lær­dóm þurfum við nú að nýta í þágu lofts­lags­mála,“ skrifar Berglind. „Græn orku­skipti og umbreyt­ing sam­fé­lags­ins í þágu umhverf­is­mála krefj­ast mik­illa og hraðra breyt­inga, en við vitum nú að þessar aðgerðir munu ekki valda okkur erf­ið­leikum, heldur þvert á móti efla okkur og styrkja.“

Virkja eldmóðinn með því að hlusta á unga fólkið

Samkvæmt Berg­lindi þarf eld­móð til að knýja fram breyt­ing­arnar. Hann mætti virkja með því að veita ungu fólki meira vægi í umræð­unni, þar sem lofts­lags­breyt­ing­arnar myndu fyrst og fremst bitna á því. Berglind skorar því stjórn­endur fyr­ir­tækj­anna til að hlusta á unga fólkið: „Varð­veitið þá til­finn­ingu sem þið upp­lifið við að hlusta á áhyggjur þess og notið hana til að setja lofts­lags­málin inn í kjarna fyr­ir­tækj­anna sem þið stýrið eða eigið.“

Hringrásarhagkerfi

Berglind Rán segir hug­mynd­ina um hringrás­ar­hag­kerfi vera rammann utan um nýjan hugs­un­ar­hátt í orku­málum. Draga þurfi úr fram­leiðslu og full­nýta þurfi þá orku sem fram­leidd er. Orku­skipti í sam­göngum séu einnig mik­il­væg, en inn­leiða þurfi sömu hugsun á öllum öðrum sviðum sam­fé­lags­ins líka.

Hægt er að lesa grein Berg­lindar Ránar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár