Segja mikilvægt að undirbúa innviði og regluverk fyrir græna orkuframleiðslu

Íslend­ingar ættu að nýta þau tæki­færi sem fel­ast í orku­skiptum hér­lendis og und­ir­búa inn­viði og reglu­verk fyrir sam­keppn­is­hæfa fram­leiðslu á kolefn­is­lausum orku­gjöfum, að mati tveggja verk­fræð­inga hjá EFLU.

Mik­il­vægt er að inn­viðir og reglu­verk hvetji til sam­keppn­is­hæfrar fram­leiðslu á svoköll­uðu raf­elds­neyti, svo að tæki­færin sem fel­ast í orku­skiptum verði nýtt. Þetta skrifa Haf­steinn Helgason og Jón Heiðar Rík­harðs­son, sem báðir eru verk­fræð­ingar hjá EFLU, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Höf­und­arnir segja að notkun á raf­elds­neyti, sem er sam­heiti yfir alla orku­gjafa sem byggðir eru á raf­greindu vetni, muni aukast tölu­vert á næstu árum sam­hliða áformum stjórn­valda um orku­skipti.

Samkvæmt þeim hefur Evr­ópu­sam­bandið áætlað að notkun á raf­elds­neyti innan sam­bands­ins muni nema 80 gíga­vöttum árið 2030, en það jafn­gildir orku­fram­leiðslu um 110 Kára­hnjúka­virkj­ana. Helm­ing­ur­inn af þess­ari orku muni vera fram­leidd innan sam­bands­ins, en þar er beislun vind­orku í hafi lyk­ill­inn að þeirri fram­leiðslu.

Þurfum að flytja inn ef við framleiðum ekki

Að mati Haf­steins og Jóns Heiðars blasir það við að flytja þurfi inn erlent raf­elds­neyti á næstu árum til að ná mark­miðum um orku­skipti hér á landi, tak­ist Íslend­ingum ekki að hefja fram­leiðslu á því með hag­kvæmum hætti. Því telja þeir mik­il­vægt að und­ir­búa inn­viði og reglu­verk hér­lendis til þess að greiða fyrir sam­keppn­is­hæfri raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu inn­an­lands.

Höf­und­arnir segja að hag­kvæm fram­leiðsla á raf­elds­neyti, til dæmis með beislun vind­orku, geti haft jákvæð áhrif á þjóð­ar­búið. Auk þess gæti fram­leiðsla umfram eigin notkun lækkað raf­orku­verð hér­lendis, en með sam­keppn­is­hæfu orku­verði ætti að vera hægt að flytja út hreint elds­neyti til ann­arra landa. Við þetta bæta þeir að fram­leiðslan varði einnig sjálf­bærni Íslands og orku- og mat­væla­ör­yggi þjóð­ar­innar til fram­búðar.

Vindorkan mögulegur valkostur

Haf­steinn og Jón Heiðar nefna beislun vind­orkunnar sem eina mögu­lega leið til að auka fram­leiðslu á raf­elds­neyti hér­lendis. Samkvæmt þeim er slík fram­leiðsla hag­kvæm, auk þess sem fram­kvæmdir við bygg­ingu vind­orku­garða séu að mestu leyti aft­ur­kræfar og að nýt­ingin fari vel með flestum land­bún­aði.

Þar að auki segja höf­und­arnir að hægt yrði að orku­fram­leiðslan gæti orðið tölu­verð með þessum hætti, en sam­kvæmt þeim gæti vind­orku­garður á um 105 fer­kíló­metra svæði fram­leitt um það bil helm­ing af núver­andi orku­fram­leiðslu lands­ins.

Hægt er að lesa grein Haf­steins og Jóns Heiðars í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Leiðari

Bára Huld Beck

Að tala með rass­inum

Íslenskt sam­fé­lag stendur frammi fyrir mik­il­vægum og stórum ákvörð­unum varð­andi orku­skipti og lofts­lags- og umhverf­is­mál. Í slíkum aðstæðum er nauð­syn­legt að djúp umræða eigi sér stað – ekki síst með heild­ar­hags­mun­ina í huga. Þess vegna er áhuga­vert að fylgj­ast með máls­met­andi fólki tjá sig um mál­efnið, sem og almenn­ingi í ræðu og riti, hvort sem það er á sam­fé­lags­miðlum eða...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár