Segir aðgerða þörf en dregur úr stuðningi í ýmsum málaflokkum

Nýút­gefin fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar gerir ráð fyrir því að útgjöld hins opin­bera í orku-, jafn­réttis- og hús­næð­is­mál muni drag­ast saman að raun­virði á næst­unni. Þrátt fyrir það er fjöldi aðgerða nefndur í mála­flokk­unum sem hægt væri að ráð­ast í.

Opinber fram­lög í lýð­heilsu og stjórn­sýslu vel­ferð­ar­mála munu drag­ast saman um tvo millj­arða króna á næstu árum, gangi nýút­gefin fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar eftir. Sömu­leiðis mun stuðn­ingur við orku­mál drag­ast saman um 400 millj­ónir króna og útgjöld til hús­næð­is­mál minnka um 1,4 millj­arða króna.

Ástæðan fyrir sam­drætt­inum í stuðn­ingi við þessa mála­flokka liggur ekki alltaf fyrir, en í þeim öllum er minnst á fjölda aðgerða sem ráð­ast þyrfti í á næstu árum.

Minni framlög í orkuskipti

Rík­is­stjórnin leggur fram ýmsar aðgerðir í orku­málum til að stuðla að orku­skiptum og tryggja orku­ör­yggi hér­lendis í nýút­gef­inni fjár­mála­stefnu. Þeirra á meðal er lagn­ing jarð­strengja um allt landið og þrí­fösun dreifi­kerfis raf­orku, en einnig segir þar að hraða megi á raf­væð­ingu bíla­flot­ans í ferða­þjón­ustu, ásamt því að auka notkun líf­elds­neytis í sjáv­ar­út­vegi og fanga kolefn­is­út­blástur frá stór­iðju og jarð­varma­virkj­unum.

Þar að auki segir í áætl­un­inni að mik­il­vægt sé að Ísland verði áfram vett­vangur fyrir öflun og miðlun alþjóð­legrar þekk­ingar á jarð­hita­nýt­ingu og miðlun hennar í formi mennt­unar, ráð­gjafar, þró­unar og vernd­unar hug­verka. Efla þurfi orku­rann­sóknir og leggja eigi aukna áherslu á alþjóð­legt sam­starf, meðal ann­ars til að auka árangur í sölu á vörum og þekk­ingu.

Þrátt fyrir það gerir rík­is­stjórnin ekki ráð fyrir að setja meiri pen­ing í mála­flokk­inn, en sam­kvæmt áætl­un­inni mun útgjald­ara­mmi til orku­mála minnka um 400 millj­ónir króna að raun­virði á næstu fimm árum. Samkvæmt rík­is­stjórn­inni er sam­drátt­ur­inn vegna minni stuðn­ings við orku­skipta í fram­tíð­inni, en hann mun lækka um 100 millj­ónir króna á næsta ári og aðrar 250 millj­ónir króna á árinu 2025.

Þessar fjár­hæðir munu svo fær­ast í önnur lofts­lagstengd verk­efni, svo sem til aðgerða á sviði nátt­úru­mið­aðra lausna, land­bún­aðar og í frek­ari stuðn­ing við breyttar ferða­venjur.

Mikill samdráttur í jafnréttis- og velferðarmálum

Annar útgjalda­liður sem mun drag­ast saman að raun­virði á næstu árum er lýð­heilsa og stjórn­sýsla vel­ferð­ar­mála. Þaðan koma pen­ingar sem fara meðal ann­ars í for­varnir og lýð­heilsu, en einnig í jafn­réttis- og mann­rétt­inda­mál.

Samkvæmt áætl­un­inni munu fram­lög stjórn­valda í þessi mál drag­ast saman um tæpa tvo millj­arða króna á næstu fimm árum. Þó eru þar nefnd ýmis verk­efni sem ráð­ast ætti í, til dæmis aðgerðir gegn kyn­bundnu og kyn­ferð­is­legu ofbeldi, auk aðgerða til að vinna gegn kyn­bundum launa­mun.

Rík­is­stjórnin nefnir einnig að styrkja eigi áfram heilsu­efl­andi skóla og heilsu­efl­andi sam­fé­lag með því að styðja við íþróttir, æsku­lýðs­starf, öldr­un­ar­starf, heilsu­efl­ingu aldr­aðra og heilsu­efl­ingu á vinnu­stöðum.

Hins vegar nefnir rík­is­stjórnin ekki hvers vegna vænt útgjöld í mála­flokk­inn –sem nema rúmum tólf millj­örðum króna í fjár­lögum fyrir þetta ár – muni nema 10,5 millj­örðum króna á næsta ári.

Húsnæðismál á hakanum

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um munu fram­lög stjórn­valda í hús­næðis- og skipu­lags­mál einnig drag­ast saman á næsta ári, sam­kvæmt áætl­un­inni. Þar ber helst að nefna nið­ur­fell­ingu á stofn­fram­lögum sem hafa verið veitt til kaupa eða bygg­inga almennra leigu­í­búða á síð­ustu tveimur árum að and­virði tveggja millj­arða króna. Þó verða fram­lög til hús­næð­is­bóta aukin um hálfan millj­arð, þar sem rík­is­stjórnin býst við fjölgun leigj­enda.

Stofn­fram­lögin, sem eiga að hvetja til auk­ins fram­boðs á íbúðum fyrir lág­tekju­hópa, eru minnkuð á sama tíma og rík­is­stjórnin segir að skortur sé á fram­boði á hús­næð­is­mark­aði. Alls munu útgjöld hins opin­bera í mála­flokk­inn drag­ast saman um 1,4 millj­arða króna, úr 16,3 millj­örðum niður í 14,9 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár