Hitastigið á Gardermoen lækkað – Framkvæmdastjóri Sþ vill viðskiptahindranir á Rússa úr vegi

Hita­stigið á alþjóða­flug­vell­inum í Ósló hefur verið lækkað til að spara raf­magn. Noregur er annar stærsti raf­orku­fram­leið­andi heims, á eftir Íslandi, miðað við höfða­tölu. Mat­væla­skortur gæti verið í upp­sigl­ingu, segir fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Noregur er annar mesti framleiðandi raforku í heiminum á hvern íbúa á eftir Íslandi.
Noregur er annar mesti fram­leið­andi raf­orku í heim­inum á hvern íbúa á eftir Íslandi.

Það sem af er ári hefur raf­magns­reikn­ing­ur­inn fyrir Gardermoen-flug­völl í Ósló numið 136 millj­ónum norskra króna, rúm­lega 1,8 millj­arði íslenskra króna. Verð­hækk­anir á raf­magni í Noregi hafa gert að að verkum að yfir­völd hafa ákveðið að draga úr orku­notkun á flug­vell­inum og einn liður í því er að lækka hita­stigið í flug­vall­ar­bygg­ing­unum. Þetta er haft eftir Stine Ramstad Westby, fram­kvæmda­stjóra Gardermoen, norska blað­inu Romerikes Blad.

Það verður þó ekki undir frost­marki inni í bygg­ing­unum heldur verður hita­stigið lækkað um 1-2 gráður og fer því niður í um 20 gráður á þeim svæðum sem flug­far­þegar fara um. Á öðrum svæðum verður hita­stigið lækkað enn meira.

Með aðgerð­unum von­ast flug­vall­ar­yf­ir­völd til að spara 1,5 gíga­vatts­stundir á ári sem jafn­gildir notkun um 75 ein­býl­is­húsa í land­inu.

„Við sjáum að raf­magns­reikn­ing­ur­inn hefur hækkað upp úr öllu valdi, þrátt fyrir að við séum með góða raf­orku­samn­inga og að bygg­ingar okkar eru hann­aðar með orku­sparn­aði í huga,“ segir Westby. „Þess vegna erum við að horfa til allra þátta sem geta lækkað kostnað okkar.“

[adspot]

Það hljómar ef til vill und­ar­lega að það land í heim­inum sem fram­leiðir næst mest af raf­magni á hvern íbúa standi frammi fyrir orku­krísu. Skýr­ing­arnar eru nokkrar. Í fyrsta lagi hefur söfnun í uppi­stöðu­lón vatns­afls­virkj­ana á ákveðnum svæðum í land­inu ekki gengið sem skyldi eftir þurrt og heitt sumar. Í öðru lagi er inn­rás Rússa í Úkraínu að hafa áhrif. Þau eru m.a. til­komin vegna þess að Rússar hafa brugð­ist við við­skipta­þving­unum Evr­ópu­sam­bands­ins, sem Noregur styður, með því að draga veru­lega úr afhend­ingu gass til Evrópu. Hluti af raf­orku­kerfi Noregs er tengdur meg­in­land­inu. Það þýðir að fram­leið­endur og veitu­fyr­ir­tæki geta selt raf­magnið til hæst­bjóð­anda. Eft­ir­spurn eftir norsku raf­magni er því mikil og verðið hefur því hækkað.

Vill kjarnorkuver í Noregi

Norski millj­arða­mær­ing­ur­inn Trond Mohn hefur lagt til að byggð verði kjarn­orku­ver í Noregi til að auka sjálf­bærni lands­ins er kemur að orku­öflun. Hann hefur þegar stofnað fyr­ir­tæki, Norsk Kjerna­kraft, í þeim til­gangi. Áform hans miða við að hægt verði að opna kjarn­orku­ver í Noregi að 10 til 15 árum liðnum.

Orku­mála­ráð­herr­ann Terje Aasland hefur slegið þá hug­mynd út af borð­inu. Hann segir kjarn­orku­ver ekki vera raun­veru­lega lausn á vand­anum fyrir Norðmenn. Fjölmörg vanda­mál fylgi kjarn­orku­verum. Þau séu dýr og geymsla geisla­virkra efna sem falla til við fram­leiðsl­una sé mik­ill vandi hjá öllum þeim ríkjum sem eru með kjarn­orku­ver.

António Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, vill að öll ríki heims fjar­lægi við­skipta­hindr­anir sem standa í vegi fyrir því að rúss­neskur áburður sé fluttur frá land­inu og á markað. „Ef áburð­ar­mark­að­ur­inn nær ekki jafn­vægi þá gæti heims­byggðin orðið uppi­skroppa með mat á næsta ári,“ skrif­aði hann í Twitter-færslu í morgun, föstu­dag. Það sé því „nauð­syn­legt“ að ríki afnemi allar hindr­anir hvað varðar inn­flutn­ing á rúss­neskum áburði. „Við verðum að koma áburð­inum til bænda á sann­gjörnu verði og út á akrana sem allra fyrst.“

Í frétt NRK í morgun kom fram að útgjöld norskrar vísi­tölu­fjöl­skyldu, tveggja full­orð­inna og tveggja barna, verði 20 pró­sent hærri í ár en í fyrra. Norsk heim­ili eru þegar farin að draga úr notkun raf­magns og neyslu­vara. Stýri­vextir voru hækk­aðir í Noregi í gær þar sem verð­bólga hefur auk­ist hratt á síð­ustu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár