Skrifræði í vegi vindorku

Í júní und­ir­rit­aði meiri­hluti þing­manna á danska þing­inu sam­komu­lag sem kynnt var sem „risa­skref“ í orku­málum. Meðal ann­ars á að fimm­falda raf­orku frá vind­myllum á hafi úti fram til 2030. En eitt er að ákveða og annað að fram­kvæma.

Í sept­em­ber í fyrra kynnti danska rík­is­stjórnin umfangs­mikla áætlun um marg­hátt­aðar umbætur í mennta- og atvinnu­málum. Áætlunin nefnd­ist Danmark kan mere. Jafn­framt var greint frá því að á þessu ári (2022) myndi stjórnin leggja fram áætlun um grund­vall­ar­breyt­ingar í orku­málum. Sú áætlun var kynnt um miðjan apríl á þessu ári undir heit­inu Danmark kan mere II.

24. júní síð­ast­lið­inn sendi danski orku­mála­ráð­herr­ann Dan Jørg­en­sen frá sér frétta­til­kynn­ingu þar sem greint var frá því að meiri­hluti þing­manna hefði und­ir­ritað sam­komu­lag um áður­nefnda áætlun.

Í til­kynn­ingu ráð­herr­ans segir að „með þessu sam­komu­lagi verði til stórt umhverf­is­vænt (grønt) orku­ver fyrir alla Evrópu þegar við sköpum mögu­leika á fimm­földun raf­orku­fram­leiðslu frá vind­myllum á sjó árið 2030 frá því sem nú er. Þetta skipti miklu fyrir and­rúms­loftið og mun gera Danmörku óháða rúss­neskri orku og jafn­framt mik­il­vægt að meiri­hluti þing­manna standi saman og sýni að Danmörk getur betur“.

Meiri vindur, meiri sól, minna gas

Með ofan­greindum orðum lýstu þing­menn sam­komu­lag­inu sem und­ir­ritað var í júní. Samkvæmt því skal allt gas í dönskum gasleiðslum (eins og það er orðað) vera umhverf­is­vænt árið 2030 og árið 2035 skal ekk­ert íbúð­ar­hús­næði í Danmörku nota gas til upp­hit­unar. Raf­orku­fram­leiðsla með vind­myllum á sjó (havmøller) á að geta séð 15 millj­ónum heim­ila fyrir umhverf­is­vænni raf­orku árið 2030.

Samkvæmt tölum dönsku hag­stof­unnar eru heim­ili í land­inu um það bil 2.8 millj­ónir þannig að miðað við áætl­anir gætu Danir selt umtals­vert magn raf­orku úr landi. Mörg önnur atriði eru til­greind í sam­komu­lag­inu, þar á meðal fjár­mögn­un­ar­leiðir. Samtök fjar­varma­fyr­ir­tækja, Dansk Fjern­varme, sem eru sam­tals 400, sögð­ust í frétta­til­kynn­ingu fagna sam­komu­lagi þing­mann­anna. En lýstu jafn­framt yfir áhyggjum vegna þess að ekk­ert væri minnst á aðgerðir til aðstoðar hús­eig­endum sem vilja skipta út gas­hit­un­ar­kyndi­tækjum og fá græna fjar­hitun.

Best geymdar á hafinu

Þótt flestum þyki vind­myllur góðar til síns brúks finnst mörgum þær ekki vera bein­línis neitt fyrir augað og þar að auki þykir hvin­ur­inn frá spöð­unum, sem sífellt verða stærri, hvim­leiður. Rann­sóknir hafa sýnt að sífelldur niður frá myllum í næsta nágrenni manna­bú­staða geti verið skað­legur heils­unni. Þess vegna kæra fæstir, eða engir sig um að hafa myll­urnar í næsta nágrenni og þar stendur hníf­ur­inn í kúnni. Landrými í Danmörku er tak­markað og ekki um auð­ugan garð að gresja þegar finna skal land fyrir myllur. Þess vegna horfa Danir í síauknum mæli til sjávar þegar reisa skal nýjar myllur.

[adspot]Þetta er ástæða þess að áætl­unin fyrr­nefnda gerir ráð fyrir að vind­myll­urnar verði stað­settar á hafi úti, þrátt fyrir að kostn­aður við upp­setn­ingu og rekstur haf­mylla sé meiri en land­mylla. Þess má geta að sam­tals eru fleiri en 6 þús­und myllur í Danmörku, á landi og sjó. Hlutfall vind­orku í raf­magns­fram­leiðslu hefur auk­ist jafnt og þétt og á fyrstu mán­uðum árs­ins var raf­magn frá vind­orku 61% af allri orku­notkun í land­inu og hefur aldrei verið hærra.

Fyrstu dönsku hafmyllurnar 1991

Árið 1991 voru reistar 11 vind­myllur úti fyrir Vindeby á Lálandi. Myll­urnar gátu fram­leitt 5 mega­vött. Margir höfðu efa­semdir og töldu að haf­myllur ættu ekki fram­tíð­ina fyrir sér. Vindeby myll­urnar eru ekki lengur á sínum stað en á þeim rúmu þremur ára­tugum sem liðnir eru frá því þær fóru að snú­ast hafa verið reistar fleiri en 600 haf­myllur sem fram­leiða sam­tals 2.300 mega­vött, 2,3 gíga­vött. Þótt það sé mikil aukn­ing frá upp­haf­legu myll­unum hjá Vindeby eru það smá­munir miðað við þau 12.9 gíga­vött sem áætl­unin Danmark kan mere II mið­ast við. Til þess að ná því mark­miði þarf að reisa milli 500 og 1000 nýjar risa­vind­myllur á næstu átta árum. Þær eiga allar að vera haf­myllur, flestar úti fyrir vest­ur­strönd Jótlands. Í svoköll­uðum haf­myllu­görðum, eins og Danir kom­ast að orði.

Skrifræðisljón á eða í veginum

Stundum er um það deilt hvort tala skuli um ljón á veg­inum, eða í veg­inum, þegar hindr­anir eða óvæntir erf­ið­leikar tefja fram­kvæmdir eða ákvarð­anir. Hvort sem ljónin eru í eða á veg­inum í áætlun danskra þing­manna um haf­myll­urnar eru þau til staðar, að mati margra sér­fræð­inga. Þeir telja úti­lokað að mark­miði um fram­leiðslu 12.9 gíga­vatta verði náð árið 2030.

Fyrsta skref eftir að ákvörðun hefur verið tekin um að ráð­ast í verkið og svæðið fyrir myll­urnar ákveðið er rann­sókn á svæð­inu og skipu­lag þar.

Því næst útboð þar sem fyr­ir­tæki bjóða í fram­kvæmd­ina. Þegar því er lokið þarf fyr­ir­tækið sem varð hlut­skarp­ast í útboð­inu að gera frek­ari rann­sóknir á við­kom­andi svæði. Svo tekur við umhverf­is­mat (VVM rann­sókn). Þar á eftir þarf að sækja um og fá til­skilin leyfi stjórn­valda. Sömu­leiðis þarf að ná samn­ingum um að tengja vind­myll­urnar dreifi­kerfi, það krefst leyfa og sam­þykkta. Þá er loks hægt að hefj­ast handa, smíða myll­urnar, flytja þær á stað­inn, koma þeim fyrir á und­ir­stöð­unum og leggja kapla til lands. Allt þetta þarf til, ef áætl­unin Danmark kan mere II á að stand­ast og straum­ur­inn að ber­ast um dreif­ing­ar­kerfið eftir átta ár. Sér­fræð­ingar í orku­málum hafa bent á að reynslan sýni að það taki allt að níu árum að koma vind­myllu­svæði, í gagnið. Skrifræðið sé helsti þrösk­uld­ur­inn, það taki ein­fald­lega allt of langan tíma. Kristian Jensen (fyrr­ver­andi ráð­herra) tals­maður Green Power Denmark (sam­tök orku­fyr­ir­tækja) segir að eins og málum sé nú háttað gangi hlut­irnir alltof hægt fyrir sig í „kerf­inu“.

Ráðherra er bjartsýnn

Dan Jørg­en­sen orku­mála­ráð­herra kvaðst í við­tali við danska sjón­varpið, DR, sam­mála því að bretta þurfi upp ermar ef mark­mið Danmark kan mere II eigi að nást. Hann seg­ist þó bjart­sýnn og ef allir legg­ist á eitt náist þetta háleita mark­mið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár