Frekari þrengingar yfirvofandi

Við breskum stjórn­völdum blasir það gríð­ar­stóra verk­efni að ráð­ast í aðgerðir til aðstoðar heim­ilum. Hinir efna­minni gætu þurft að greiða um helm­ing af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hita og raf­magn í vetur.

Það stefnir í kaldan vetur hjá þúsundum Breta.
Það stefnir í kaldan vetur hjá þús­undum Breta. Mynd: EPA

Efna­minni fjöl­skyldur í Bret­landi gætu þurft að greiða um 47 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í hita og raf­magn miðað við þær gríð­ar­miklu verð­hækk­anir sem orðið hafa að und­an­förnu. Að auki hefur ýmiss önnur nauð­synja­vara hækkað í verði, m.a. mat­væli. Erfiður vetur er framundan hjá mörgum, jafn­vel þótt stjórn­völd grípi með ein­hverjum hætti inn í, líkt og þau áforma. Nokkur bið­staða er í þeim efnum þar sem nýr for­sæt­is­ráð­herra verður val­inn á allra næstu dögum.

[adspot]

Samtök sem gefa mat segja aðsókn í þjón­ustu þeirra sjaldan hafa verið meiri og að með þessu áfram­haldi geti þau engan veg­inn staðið undir eft­ir­spurn­inni. Talsmenn þeirra ótt­ast að fátækt eigi eftir að aukast mikið á næstu vikum og mán­uðum. Flest sam­tak­anna segja að ef áfram haldi sem horfi muni þau þurfa að vísa fólki frá á kom­andi vikum og minnka þá skammta sem hverjum og einum er úthlutað. Það er ekki aðeins eft­ir­spurnin sem hefur auk­ist heldur hefur fram­boð á mat­vælum, sem fyr­ir­tæki, stofn­anir og ein­stak­lingar gefa, dreg­ist saman að und­an­förnu.

[links]Mat­væla­verð hefur hækkað nokkuð skarpt í Bret­landi að und­an­förnu. Ferskvara hefur hækkað um 10,5 pró­sent á einu ári, sem er mesta verð­hækkun síðan hru­nárið 2008. Og áfram er spáð verð­hækk­unum og meiri verð­bólgu, jafn­vel þeirri mestu frá árinu 1975.

Stríðið í Úkraínu er helsta ástæða þess að vöru­verð, og ekki síst orku­verð, hefur hækkað síð­ustu vikur og mán­uði. Evr­ópu­búar eru mjög háðir gasi frá Rúss­landi og bæði hefur hægt á streymi þess til álf­unnar og verð á því hækkað skarpt. Raf­magns­reikn­ing­ur­inn í Bret­landi er tólf sinnum hærri nú en áður en orku­krísan skall á. Og hús­næð­is­lánin hafa líka hækkað vegna verð­bólg­unnar.

Mun Pútín stela jólunum?

Orku­kreppa eins og sú sem vofir yfir bitnar, eins og aðrar kreppur, verst á fólki sem hefur þegar lítið á milli hand­anna. Í þeim hópi eru m.a. sjúkir og aldr­aðir, þeir hinnir sömu og eiga einna mest undir því komið að geta kynt híbýli sín eftir þörfum yfir kalda vetr­ar­mán­uð­ina.

Eftir tvö ár af ein­angrun og skringi­leg­heitum eftir heims­far­aldur COVID-19 von­uð­ust allri eftir betri tíð. En nú er útlit fyrir að kveikt verði á færri jóla­ljósum til að spara raf­magn og nokkur óvissa er um umfang jóla­ver­tíð­ar­innar í versl­unum. Kannanir sýna að margir Bretar eru þegar farnir að draga úr útgjöldum sínum.

Allir bíða nú eftir svari við stóru spurn­ing­unni: Hvert verður útspil stjórn­valda til að létta undir með fólki, sér­stak­lega því efna­m­inna. Ljóst er að án inn­grips þeirra mun orku­kostn­aður halda áfram að hækka enda engin lausn á stríð­inu í Úkraínu í sjón­máli. Og á meðan það geisar þykir ljóst að verð á gasi mun halda áfram að hækka – verði það rúss­neska í boði yfir höfuð.

Á því sögu­lega heita sumri sem nú er að baki í Evrópu voru tæki til loft­kæl­ingar keyrð sem aldrei fyrr. Eft­ir­spurn eftir jarð­efna­elds­neyti á vet­urna hefur auk­ist ár frá ári og gasverð hefur haft til­hneig­ingu til að hækka í verði á þeim árs­tíma. Ekki er útlit fyrir að breyt­ing verði þar á. Skýr­ingin er sú að kynd­ing er oftar en ekki knúin með slíkum orku­gjöfum í Bret­landi og víðar í Evrópu.

Um 40 pró­sent af öllu gasi sem notað er í Evrópu er flutt inn frá Rúss­landi. Sömu­leiðis er um 46 pró­sent af kolum sem notuð eru í álf­unni flutt inn þaðan og 27 pró­sent af allri olíu. Verulega hefur dregið úr gas­flæð­inu frá Rúss­landi til Evr­ópu­ríkja síð­ustu mán­uði. En þeim mun meira af því er nú flutt til Kína. Gas­flutn­ingar með gasleiðslu frá Síberíu til Kína hafa auk­ist um 61 pró­sent frá því í fyrra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár