Tíföld verðhækkun á rafmagni – „Tímabil ódýrrar orku er liðið“

Forseti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins segir tak­mark­anir raf­orku­mark­aðar sam­bands­ins hafa komið ber­sýni­lega í ljós og að grípa þurfi til neyð­ar­inn­grips til að koma böndum á hækk­andi orku­verð. „Tímabil ódýrrar orku er liðið,“ segir sér­fræð­ingur.

Ursula von der Leyen útskýrir raforkumarkarðinn á ráðstefnu í Slóveníu í gær.
Ursula von der Leyen útskýrir raf­orku­mark­arð­inn á ráð­stefnu í Slóveníu í gær. Mynd: EPA

„Snar­hækk­andi raf­orku­verð eru nú að afhjúpa, af ýmsum ástæðum, tak­mark­anir á raf­orku­mark­aði okkar,“ sagði Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, á ráð­stefnu í Slóveníu í gær. Hún segir mark­að­inn hafa þró­ast við „allt aðrar aðstæður“ en nú eru uppi og „í allt öðrum til­gangi“. Núver­andi kerfi hæfi ekki lengur þörfum íbúa og fyr­ir­tækja innan sam­bands­ins.

„Þess vegna erum við í fram­kvæmda­stjórn­inni að vinna að neyð­ar­inn­gripi og kerf­is­lægum umbótum á raf­orku­mark­aðnum. Við þurfum annað mark­aðs­módel fyrir raf­magn sem sann­ar­lega virkar og færir okkur nær jafn­vægi.“

[adspot]

Heild­sölu­mark­aður ESB með raf­magn virkar í dag þannig að allir raf­orku­fram­leið­endur, allt frá þeim sem virkja vind og sól­ar­orku og til þeirra sem vinna jarð­efna­elds­neyti, kepp­ast um að bjóða orku til sölu á mark­aði í sam­ræmi við fram­leiðslu­kostnað sinn. End­ur­nýj­an­leg orka er ódýr­ust og er boðin fyrst en sú dýrasta, yfir­leitt gas, er boðin síð­ust.

[links]En þar sem flest ESB-ríki reiða sig enn á jarð­efna­elds­neyti til að svara allri eft­ir­spurn eftir orku, stjórn­ast verð á raf­magni af gasverð­inu. Ef gas verður dýr­ara þá verður, við núver­andi mark­aðs­módel, raf­magnið dýr­ara. Gasið er notað til að bregð­ast við sveiflum í eft­ir­spurn enda hægt að fíra upp í gasorku­verum, þar sem raf­magn er fram­leitt, með stuttum fyr­ir­vara. Nýting bæði vind- og sól­ar­orku, sem sífellt meiri áhersla er lögð á, er hins vegar aug­ljós­lega háð nátt­úr­unni og þannig er hlut­verk gass í jafn­vægi raf­orku­kerf­is­ins síst minna mik­il­vægt nú en áður.

Kerfi þetta var m.a. hannað í þeim til­gangi að gera öll orku­kaup innan sam­bands­ins gegn­særri, svo ljóst mætti vera hvers konar orku­gjafar væru nýttir. Átti þetta að ein­falda umskipti yfir í græna orku sem stefnt er að í auknum mæli.

Innráss Rússa í Úkraínu hefur afhjúpað tak­mark­anir kerf­is­ins sem orku­heils­sölu­mark­aður ESB byggir á og sífellt fleiri eru á því að gera þurfi gagn­gerar breyt­ingar. Stjórn­völd á Spáni, Portúgal, Grikk­landi, Frakk­landi og Ítalíu eru meðal þeirra sem vilja „aftengja“ verð á gasi í raf­orku­verð­inu. For­sæt­is­ráð­herra Belgíu, Alex­ander De Croo, er orð­inn lang­eygur eftir aðgerðum yfir­stjórnar ESB og hefur hótað því að taka til eigin ráða ef ekki verður breyt­ing á og það sem fyrst. Kanslari Aust­ur­ríkis segir „brjál­æði“ eiga sér stað á raf­orku­mark­aði í augna­blik­inu.

Skrúfa Rússar fyrir gasið?

Verð á gasi er nú í hæstu hæðum og á rúss­neska rík­is­fyr­ir­tækið Gazprom þar stóran hlut að máli. Fyr­ir­tækið hefur stöðvað eða dregið veru­lega úr gas­flutn­ingum til nokk­urra ESB-ríkja og talið er að flæði um gasleiðsl­una Nord Stream 1 sé aðeins um 20 pró­sent af því sem var fyrir nokkrum mán­uðum. Rússar til­kynntu t.d. að þeir ætl­uðu að loka fyrir flæðið til Þýska­lands í þrjá daga – „vegna við­halds“. Ekki í fyrsta skipti und­an­farið sem sú afsökun er notuð. Í lok síð­ustu viku var verð á einni mega­vatt­stund af gasi 339 evrur, um 48 þús­und krónur, á heil­sölu­mark­aði í ESB, sam­an­borið við 27 evrur, um 3.800 krónur, á sama tíma í fyrra. Það hefur sum sé aldrei verið dýr­ara að nota raf­magn.

Þetta er auð­sjá­an­lega gríð­ar­legt högg fyrir fyr­ir­tæki og heim­ili, ekki síst vegna þess að engar vís­bend­ingar eru um að gasverð farið að lækka. Það mun aðeins hækka. Fátækt blasir því við fólki og gjald­þrot við fyr­ir­tækjum ef ekk­ert verður að gert.

Ýmislegt hefur verið reynt til að draga úr eft­ir­spurn eftir orku, m.a. af hálfu hins opin­bera í mörgum ríkjum. Þá hafa lönd samið um kaup á gasi og öðru jarð­efna­elds­neyti frá öðrum löndum, s.s. Ástralíu, Suður-Afríku og löndum Suður-Ameríku til að hafa ekki öll eggin í sömu körf­unni.

En nú gengur vetur senn í garð, sá tími árs þar sem orku­notkun fer alla jafna í hæstu hæðir.

Allt frá uphafi inn­rásar Rússa í Úkraínu var ljóst að rúss­nesk stjórn­völd myndu nota gas til að draga úr mætti við­skipta­þving­ana sem vest­ur­veldin beita til að knýja á um stríðs­lok sem fyrst. Orkuverð innan ESB hækk­aði enda mjög skarpt þegar í kjöl­far inn­rás­ar­innar. Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins lagði til þegar í mars að verð­þak yrði sett á raf­magn innan þess og að gripið yrði til frek­ari tíma­bund­inna aðgerða til að draga úr verð­hækk­unum.

Tíföld hækkun í Þýskalandi

Síðan er liðið hálft ár, ekk­ert verð­þak hefur verið sett, og verð á raf­orku í Þýska­landi, svo dæmi sé tekið, hefur tífald­ast á innan við ári. Þótt Þjóð­verjum hafi tek­ist að auka hraðar við gas­birgðir sínar fyrir vet­ur­inn en ótt­ast var vofir annar ótti yfir: Að Rússar skrúfi alfarið fyrir gasið til þeirra.

Vitað var að gasið yrði skipti­myntin sem Pútín myndi reyna að nota til að draga úr áhrifum við­skipta­þving­ana vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu. Og stjórn­völd í Evr­ópu­ríkjum gerðu sér vænt­an­lega grein fyrir því að þetta gæti haft umtals­verð áhrif á raf­orku­verð innan álf­unnar. En flestir von­uðu að orku­krísan yrði skamm­vinn, að hægt yrði að finna nýjar leiðir en nú ótt­ast sér­fræð­ingar, að því er þýskir fjöl­miðlar segja, að orku­verð hald­ist hátt í nokkur ár. Ben van Beaurden, for­stjóri Shell, sagði á ráð­stefnu í Noregi í gær að búast mætti við háu orku­verði „í marga vetur“. Hann sagði að huga ætti að skömmtun á raf­magni.

Orku­mála­ráð­herra Belgíu, Tinne Van der Straeten segir að næstu fimm til tíu vetur gætu orðið „hræði­legir“ ef stjórn­völd grípi ekki inn í þró­un­ina sem fyrst. Nathan Piper, orku­mála­sér­fræð­ingur hjá Investec, sagði í síð­ustu viku að „tíma­bil ódýrrar orku væri liðið“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár