Gas orðið að pólitísku og efnahagslegu vopni Pútíns

Hús í Póllandi og Búlgaríu eru ekki lengur hituð með gasi frá Síberíu. Rússnesk stjórn­völd hafa skrúfað fyrir. Og verð á gasi í Evrópu tekur stökk.

Rússar hafa skrúfað fyrir gas til Póllands og Búlgaríu.
Rússar hafa skrúfað fyrir gas til Póllands og Búlgaríu. Mynd: EPA

Rúss­neska rík­is­fyr­ir­tækið Gazprom hefur fram­fylgt fyr­ir­skip­unum stjórn­valda í Kreml og skrúfað fyrir gasið. Ákvörð­unin bitnar, enn sem komið er, fyrst og fremst á Búlgörum og Pól­verjum þar sem orku­fyr­ir­tækin Bulgargaz og PGNiG fá ekki lengur afhent rúss­neskt gas. Við­brögðin hafa ekki látið á sér standa og verð á gasi í Evrópu hefur hækkað um allt að 24 pró­sent í dag.

Þessi við­brögð stjórn­valda í Kreml, undir for­sæti Vla­dimírs Pútíns, við hörðum við­skipta­þving­unum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu, voru fyr­ir­séð. Talið er að um 40 pró­sent alls gass sem notað er innan Evr­ópu­sam­bands­ins sé unnið innan landamæra Rúss­lands. Gasið er því eitt sterkasta vog­ar­afl Pútíns. „Þetta er hótun gegn Evr­ópu­sam­band­inu til þess gerð að við upp­lifum okkur ekki örugg,“ segir Trine Vill­um­sen Berling, sér­fræð­ingur hjá Dansk Institut for Internationale Studier, í sam­tali við danska rík­is­út­varpið í morgun. Hún segir Rússa vera að senda póli­tísk skila­boð – sér­stak­lega til Póllands sem er ofar­lega á lista Pútíns yfir „óvina­þjóðir“ í augna­blik­inu. Þangað hefur fólk frá Úkraínu lang­flest flúið undan árás­unum.

[adspot]

En ekki er þó allt sem sýn­ist í þessum efnum. Það er ekki bein­línis þannig að um stórt áfall í orku­málum sé að ráða, heldur einmitt, líkt og Berling bendir á, frekar áminn­ing frá Rússum um hvaða vald og yfir­burði þeir hafa þegar kemur að gas- og olíu­mark­aðnum í þessum heims­hluta. Í raun hefur gas sem á upp­runa sinn í rúss­neskri jörð ekki flætt um Jamal-gasleiðsl­una – leiðslu sem liggur frá Rúss­landi til Póllands – síðan í byrjun mán­að­ar­ins. Gasið hefur flætt í öfuga átt, ef svo má segja. Það er þýskt gas sem Pól­verjar hafa notað til að kynda hús sín síð­ustu vik­urnar.

Gazprom seg­ist hafa skrúfað fyrir gasið til Búlgaríu og Póllands í dag vegna þess að ríkin hafi ekki greitt fyrir við­skiptin í rúblum líkt og rúss­nesk stjórn­völd fara fram á. Þótt aðgerðin bíti ekki fast nú, líkt og á undan er rakið og einnig vegna þess að það er að koma sumar og minni orku­notkun fram undan, þá er hér um að ræða harð­asta við­bragð stjórnar Pútíns við hinum alþjóð­legu við­skipta­þving­unum sem lagðar hafa verið á Rússland og borg­ara þess inn­an­lands og síð­ustu tvo mán­uði.

Stjórn­völd í Póllandi og Búlgaríu segja aðgerðir Gazprom brot á lang­tíma­samn­ingi. Orku­mála­ráð­herra Búlgaríu segir ljóst að Rússar noti jarð­gas sem „efna­hags­legt og póli­tískt vopn“ í stríðs­rekstri sínum.

Pútín for­seti hefur kraf­ist þess að kaup­endur frá „óvin­veittum löndum“ borgi fyrir gas í rúblum. Að öðrum kosti verði skrúfað fyrir. Og það hefur nú verið gert.

Jamal-leiðslan liggur frá Rúss­landi, í gegnum Pólland og þaðan til Þýska­lands. Þaðan er gas svo leitt til ann­arra Evr­ópu­ríkja. Gasið sem um hana streymir alla jafna, hið rúss­neska jarð­gas, er unnið djúpt úr jörðu í nyrstu hlutum Rúss­lands, meðal ann­ars í Síberíu.

Gazprom hefur hingað til útvegað Póllandi um 50 pró­sent af öllu gasi sem notað er í land­inu. Hlut­fallið er enn hærra í Búlgaríu eða um 90 pró­sent. Pólsk stjórn­völd segj­ast eiga tölu­verðar gas­birgðir í augna­blik­inu, svo orku­skortur sé ekki yfir­vof­andi. Stjórn­völd í Búlgaríu eiga í samn­inga­við­ræðum við aðra en Rússa um gas­kaup.

Margir hafa sagt að alþjóð­legar við­skipta­þving­anir gegn Rússum muni ekki bíta að ráði vegna þess hversu Evr­ópu­sam­bandið sem og fleiri ríki utan þess eru háð rúss­nesku gasi. Öll þessi orku­við­skipti við Rússa, sem ekki er hægt að hverfa frá í einu vet­fangi, hafa veru­lega dregið úr áhrifum við­skipta­þving­ana. Rúss­neska ríkið fær millj­ónir á millj­ónir ofan í sinn kassa dag­lega vegna orku­við­skipta við Vest­ur­lönd.

Öll húsin. Allar verk­smiðj­urnar. Allt sam­fé­lagið í Evrópu sem hingað til hefur stólað á ódýrt, rúss­neskt gas. Breyt­ingar gætu verið í far­vatn­inu og það gæti aftur haft áhrif á raf­orku­verð almenn­ings. Ekkert getur komið hratt og auð­veld­lega í stað olíu og jarð­gass frá Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár