Orkureikningurinn mun hækka um 80 prósent – „Rýtingur í hjartað“

Reikn­ingur fyrir raf­magn og kynd­ingu í Bret­landi gæti hæg­lega farið í allt að því milljón króna á ári að með­al­tali vegna þreng­inga á orku­mark­aði. Stjórn­völd hafa brugð­ist við en þurfa að bæta veru­lega í til að koma í veg fyrir útbreidda fátækt.

Samtök sem berjast gegn fátækt óttast hið versta ef ríkisstjórnin grípi ekki til róttækra aðgerða.
Samtök sem berj­ast gegn fátækt ótt­ast hið versta ef rík­is­stjórnin grípi ekki til rót­tækra aðgerða. Mynd: Pexels

Breskir neyt­endur munu þurfa að greiða 80 pró­sent hærra verð fyrir orku frá og með októ­ber eftir ákvörðun orku­stofn­unar lands­ins, Ofgem, um að hækka verð­þak orku­fyr­ir­tækja. Meðal kostn­aður heim­ila vegna orku­kaupa á ári gæti auk­ist úr um 320 þús­und íslenskra króna í um 590 þús­und, segir í frétt Euronews um málið.

Orkuverð hefur hækkað veru­lega síð­ustu mán­uði í Bret­landi og víðar í Evrópu, m.a. vegna inn­rásar Rússa í Úkraínu. Þessar hækk­anir eru meðal ann­arra þátta skýr­ingin á því að fram­færslu­kostn­aður venju­legs fólks hefur rokið upp úr öllu valdi.

Jonathan Brearley, fram­kvæmda­stjóri Ofgem, segir að hækk­unin eigi eftir að hafa „gríð­ar­leg“ áhrif á bresk heim­ili. Hann ótt­ast að þegar í jan­úar á næsta ári muni verðið hækka enn frekar.

[adspot]

Gasinn­flutn­ingur frá Rúss­landi er minni en hann var áður. Sama má segja um kola­inn­flutn­ing. Þá hækk­aði olíu­verð skarpt nýverið þótt heims­mark­aðs­verðið hafi nú tekið að lækka. Mörgum kjarn­orku- og kola­verum hefur verið lokað í Evrópu síð­ustu ár til að stemma stigu við hækk­andi hita­stigi á jörð­inni af manna­völdum. Þegar hafa nokkur þeirra verið ræst að nýju og útlit fyrir að rykið verði dustað af fleirum á næst­unni.

Stríðið í Úkraínu og þving­anir sem Pútín er beittur vegna þess eru þó ekki eina skýr­ingin á því að eft­ir­spurn eftir orku er meira en fram­boðið. Heims­far­ald­ur­inn sýndi okkur svart á hvítu hversu sam­fléttað hag­kerfi heims­ins er. Skortur á einum stað bítur ekki alls staðar strax en getur gert það með tíð og tíma. Flutn­ings­keðjur allar fóru úr skorðum í far­aldr­inum og t.d. var minna unnið af kolum í Kína, einum stærsta kola­fram­leið­anda ver­aldar.

[links]For­stjóri Ofgem segir brýnt að stjórn­völd komi breskum heim­il­unum til aðstoðar vegna orku­krís­unnar sem við blasi. Aðgerðum hefur þegar verið beitt í þessa veru en Brearley segir að stjórn­völd þurfi að gera meira. Nýr for­sæt­is­ráð­herra fái það við­fangs­efni í fangið.

Í frétt Euronews segir að sér­fræð­ingar telji að árlegur orku­reikn­ingur breska heim­ila gæti hækkað í 970 þús­und krónur í jan­úar og að hann gæti farið yfir 6.000 pund, rétt tæpa milljón, í apríl.

Orku­stofn­unin varð að hækka hámarks­verð sem orku­fyr­ir­tækin mega setja á því að heims­mark­aðs­verð á gasi er í hæstu hæðum og fyr­ir­tækin verða að hafa svig­rúm til að standa undir sér.

Greining Háskól­ans í York á aðsteðj­andi vanda vekur ekki mikla bjart­sýni. Því er spáð að tæp­lega 60 pró­sent Breta gætu búið við orku­skort á næsta ári þar sem þeir hafa ekki efni á orku­reikn­ingnum.

Rýtingur í hjartað

„Hækkun Ofgem er eins og rýt­ingur í hjarta millj­óna fólks um allt land,“ segir Simon Francis sem fer fyrir regn­hlíf­ar­sam­tökum sem berj­ast gegn fátækt. Hann sparar sann­ar­lega ekki stóru orðin í við­brögðum sínum. „Vegna þess­arar ákvörð­unar munu for­eldrar ekki geta gefið börnum sínum mat, heilsu veikra og aldr­aðra mun hraka, fólk með fötlun mun ekki geta nýtt nauð­syn­legan tækja­búnað og heim­ilum ýtt út í fátækt í fyrsta sinn í fleiri kyn­slóðir.“

Hann bendir ekki fingri aðeins að orku­stofn­un­inni heldur segir mestu ábyrgð­ina hvíla hjá rík­is­stjórn­inni. Bregðast verði þegar í stað við til að bjarga því sem bjargað verður.

Sam­bæri­legur vandi steðjar að mörgum Evr­ópu­ríkjum, ef ekki þeim flestum, sem stólað hafa á jarð­efna­elds­neyti til fram­leiðslu á raf­magni og til hús­hit­unar. Á Spáni, í Portúgal, Frakk­landi, Þýska­landi og Tékk­landi, svo dæmi séu tekin, hafa stjórn­völd þegar gripið til ein­hverra aðgerða til að stemma stigu við hækk­andi orku­kostn­aði heim­ila.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár