Gasskortur. Kolaskortur. Olíuskortur?

Þær óvenju­legu aðstæður hafa skap­ast í Evrópu, Kína og víðar að orku­þörf er umfram það sem í boði er. Keppst er um kaup á gasi og kolum – og olía á bens­ín­stöðvum í Bret­landi hefur þurrkast upp. En hér er ekki allt sem sýn­ist.

Ekkert bensín! Margar bensínstöðvar í Bretlandi hafa orðið að tilkynna viðskiptavinum að þar sé ekkert meira eldsneyti að fá. Í bili.
Ekkert bensín! Margar bens­ín­stöðvar í Bret­landi hafa orðið að til­kynna við­skipta­vinum að þar sé ekk­ert meira elds­neyti að fá. Í bili. Mynd: EPA

Ef það er eitt­hvað sem við lærðum af heims­far­aldr­inum þá varð það hversu hag­kerfi heims­ins eru sam­tvinnuð. Brostin upp­skera á einum stað, í hvaða formi sem hún er, getur haft keðju­verk­andi áhrif í þús­unda kíló­metra fjar­lægð. Eitt strandað skip í skurði getur gert slíkt hið sama þótt áhrifin verði ekki ljós þegar í stað í hvor­ugu til­fell­inu. Þannig vilja sumir meina að skortur á gasi í Bret­landi og víðar í Evrópu og þar af leið­andi miklar verð­hækk­anir á því megi rekja til skorts á kolum í Asíu. Enn aðrir hafa bent á stíflu í allra handa flutn­ingum í þessu sam­bandi. Og að vöru­bíl­stjóra­skort­inn í Bret­landi megi svo aftur rekja til útgöngu Breta úr Evr­ópu­sam­band­inu. Sem og heims­far­ald­urs­ins. En einnig lofts­lags­breyt­inga og til­rauna til við­bragða við þeim. Svo eru það þeir sem segja: Það er eng­inn orku­skortur. Það er ein­fald­lega verið að fram­leiða of mikið óþarfa drasl. Og sóa þar með auð­lindum jarðar.

[adspot]

Líklegt er að allir ofan­greindir þættir hafi sitt að segja og sam­verk­andi áhrif. Venju­legu fólki, sem sér hita- og raf­magns­reikn­ing­inn hækka mánuð eftir mánuð, er hins vegar lík­lega flestu slétt sama hvað veldur. Það vill ein­fald­lega fá sitt gas, sitt bensín – sitt raf­magn. Og það á við­ráð­an­legu verði.

En það eru blikur á lofti og frek­ari verð­hækk­anir í kort­unum sem stjórn­völd í nokkrum Evr­ópu­ríkjum hafa orðið að bregð­ast við með nið­ur­greiðslum til neyt­enda.

[links]Um helg­ina og á mánu­dag mynd­uð­ust langar bílaraðir við bens­ín­stöðvar víðs vegar á Bret­landseyjum. Margar stöðv­anna önn­uðu ekki eft­ir­spurn. Bensínið og olían ein­fald­lega klárað­ist. Olíu­fyr­ir­tækið BP segir að elds­neyt­is­birgðir um þriðj­ungs stöðva þeirra hafi þurrkast upp. Svo alvar­legt er ástandið að stjórn­völd eru sögð hafa að minnsta kosti íhugað að setja her­inn í við­bragðs­stöðu ef til upp­þota kæmi.

En skýr­ingin á þessu til­tekna ástandi er reyndar ekki hreinn og klár elds­neyt­is­skortur. Heldur fyrst og fremst skortur á vinnu­afli. Talið er að um 100 þús­und vöru­bíl­stjóra vanti til að anna þeirri eft­ir­spurn sem er til staðar við stór­flutn­inga í land­inu hverju sinni. Þetta hefur ekki aðeins haft þau áhrif að bens­ín­stöðv­arnar fá ekki sitt bensín heldur einnig myndað flösku­hálsa í flutn­ingum á hvers konar neyslu­vörum. Þeir sem mættu svo á bens­ín­stöðv­arnar um helg­ina voru margir hverjir að hamstra elds­neyti – tryggja sig til nán­ustu fram­tíðar ef ástandið skyldi halda áfram að versna.

Sam­göngu­ráð­herra Bret­lands, Grant Shapps, segir vand­ann heima­til­bú­inn og kenndi hræðslu­á­róðri vegna skorts á vöru­bíl­stjórum um. Það séu vissu­lega allt of fáir bíl­stjórar en umfjöllun fjöl­miðla hafi hins vegar ýtt undir hræðslu hjá almenn­ingi og enn meiri eft­ir­spurn eftir elds­neyti. Þannig hafi „afhend­ing­ar­vandi“ orðið að „krísu“.

Í þess­ari til­teknu krísu er útganga Breta úr ESB, og með­fylgj­andi hömlur á frjálst flæði vinnu­afls, talin spila stóran þátt. Einnig heims­far­ald­ur­inn því margir bíl­stjórar frá öðrum löndum, fóru heim er far­ald­ur­inn stóð sem hæst og hafa ekki átt greiða leið til Bret­lands á ný. Þar sem vöntun á bíl­stjórum er víða í Evrópu eiga þeir líka auð­velt með að fá vinnu ann­ars staðar.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur m.a. brugð­ist við vand­anum með því að bjóða erlendum bíl­stjórum tíma­bundið dval­ar­leyfi sem svo aftur hefur ekki farið sér­stak­lega vel ofan í hörð­ustu stuðn­ings­menn Brexit. Einnig hefur aukið fjár­magn verið sett í öku­kennslu svo mennta megi fleira fólk í fag­inu.

Gas, gas, gas og aftur gas

Önnur krísa er þó alvar­legri og ekki eins auð­leys­an­leg þótt hluta hennar megi reyndar einnig rekja til bíl­stjóra­hall­ær­is­ins. Hún snýst um ósýni­lega vöru sem er gríð­ar­lega mik­il­væg mörgum stærstu hag­kerfum heims. Þessi vara er jarð­gas. Á síð­ustu árum hefur áherslan á gas orðið enn meiri en áður vegna þess að mörg ríki eru að draga úr notkun kola. Notkun á gasi losar helm­ingi minna koltví­oxíð en brennsla kola. Gas átti að verða hluti af lausn­inni – ekki vanda­mál­inu.

Í Bret­landi og víðar hefur eft­ir­spurnin eftir því hins vegar vaxið hraðar en fram­boðið sam­hliða hröðum efna­hags­bata í kjöl­far far­ald­urs­ins. Og kaldir vetr­ar­mán­uðir, jafn­vel óvenju kaldir, eru handan við hornið. Sam­keppnin um þessa auð­lind, sem er vissu­lega tak­mörkuð á móður jörð, hefur harðnað og ríki kepp­ast um að tryggja sér birgðir. Það hefur svo aftur leitt af sér miklar verð­hækk­anir.

[adspot]

Gas­birgðir í Evrópu hafa lík­lega sjaldan eða aldrei verið minni en nú miðað við árs­tíma. Norðmenn hafa heitið því að afhenda meira en Rússar eru aftur á móti ekki endi­lega á þeim bux­unum og hafa jafn­vel dregið úr gas­streym­inu til Evrópu. Það kann aftur að eiga sér póli­tískar skýr­ingar. Þeir geta nú, í ljósi gas­birgða sinna, fundið til valds­ins og minnt á að Evrópa þurfi á þeim að halda.

Það hefur svo ekki bætt úr skák að í Bret­landi, svo dæmi sé tekið, hefur verið óvenju­lega lygnt í veðri í sumar. Hvers vegna skiptir það máli? Jú, það þarf vind til að hreyfa spaða vind­myll­anna sem eiga að vera hluti af lausn lofts­lags­vand­ans. Þá má einnig tína til fleiri atriði svo sem þá stað­reynd að kjarn­orku­ver Evrópu, sem smám saman eru að tína töl­unni, eru flest komin til ára sinna. Hættan á því að þau „slái út“ hefur auk­ist. Og vara­aflið er oft og tíðum gas.

Allt þetta og lík­lega ýmis­legt fleira hefur orðið til þess að verð á gasi í Evrópu hefur hækkað um allt að 500 pró­sent á aðeins einu ári.

Gas er ekki ein­göngu notað til að hita heim­ili og kaffi­stofur fyr­ir­tækja. Það er raun­veru­lega líf­æðin í marg­vís­legri fram­leiðslu. Þannig hafa nokkrir fram­leið­endur áburðar álf­unni t.d. ákveðið að draga úr fram­leiðslu. Jafnvel hætta henni. Það er ekki enda­laust hægt að hækka verðið á afurð­unum.

Veturinn þarf ekk­ert að verða óvenju kaldur svo að þessi krísa fari að bíta. Þegar er jafn­vel farið að tala um aft­ur­hvarf til skömmt­un­ar­ára. Slíkar ráð­staf­anir eru vissu­lega ekki ofar­lega á listum stjórn­mála­mann­anna. Ekki árið 2021. Ekki beint ofan í skæða far­sótt.

Þessi gasskortur er og verður ekk­ert einka­mál Evrópu. Hann mun hafa afleið­ingar víðar um heim. Hann mun hafa áhrif í fátæk­ustu ríkjum jarðar. Jafnvel gríð­ar­leg. „Ef vet­ur­inn verður mjög kaldur þá ótt­ast ég að við munum ekki eiga nægi­lega mikið af gasi til hús­hit­unar í Evrópu,“ sagði Amos Hochstein, orku­ráð­gjafi banda­ríska utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, við blaða­mann Bloomberg fyrr í sept­em­ber. Hann sagði skort­inn ekki aðeins geta haft nei­kvæð efna­hags­leg áhrif heldur „snerta líf alls almenn­ings“.

Verksmiðjum lokað og heimili rafmagnslaus

Þegar vélar kín­verska hag­kerf­is­ins, þess næst stærsta í heimi, voru ræstar af fullum krafti eftir far­ald­ur­inn jókst eft­ir­spurn eftir raf­magni um 10 pró­sent frá því sem áður var – og það á örskömmum tíma. Kolaverð hækk­aði og þegar það gerð­ist reyndu fyr­ir­tæki að kaupa frekar gas. En þessi spreng­ing í orku­notkun dró dilk á eftir sér.

Í norð­austur hluta Kína hefur und­an­farið þurft að loka verk­smiðjum vegna orku­skorts og millj­ónir heim­ila hafa verið án raf­magns oft og mörgum sinnum, í ýmist styttri eða lengri tíma í senn. „Þetta er eins og að búa í Norður-Kóreu, skrif­aði einn not­andi kín­verska sam­fé­lags­mið­ils­ins Weibo um ástandið.

Það er engum blöðum um það að fletta að slíkt ástand getur, ef það dregst á lang­inn, haft áhrif á heims­vísu. Marg­vís­legar vörur sem keyptar eru í þús­unda tonna vís á Vest­ur­löndum eru fluttar inn frá Kína. Apple og Tesla eru meðal þeirra stór­fyr­ir­tækja sem nú geta átt von á því að þurfa að bíða eftir íhlutum.

Orku­krepp­una þar má fyrst og fremst rekja til skorts á kolum sem virð­ist, ein­hverra hluta vegna, hafa komið algjör­lega aftan að stjórn­völdum. Vandinn mun ekki gufa upp á næst­unni. Hann er marg­þættur, teng­ist m.a. við­skipta­deilum við Ástrala og ýmsum töfum í fram­leiðslu og dreif­ingu sem heims­far­ald­ur­inn olli. Óttast er að hann geti dreg­ist á lang­inn vegna skorts á kolum og gasi ann­ars staðar í heim­inum.

Um 60 pró­sent af hinu kín­verska hag­kerfi eru knúin af kola­brennslu. Verð á þeim hefur nú náð hæstu hæðum. Stjórn­völd vilja reyndar ekki meina að um neina krísu sé að ræða. Tryggt verði að Kín­verjar fái nóg raf­magn nú þegar vetur fer í hönd. Kola­vinnsla verði aukin og sömu­leiðis inn­flutn­ingur á þeim.

Vonast eftir mildum vetri

Þeir sem versla með kol segja þetta ein­fald­ara sagt en gert. Rússar, sem margir horfa nú til með bæði gas og kol, „þurfa fyrst að upp­fylla kröfur Evrópu, Japans og Suður-Kóreu“ áður en röðin kemur að Kína, hefur Reuters eftir einum slíkum.

Hinn hraði efna­hags­bati sem orðið hefur víða í hinum vest­ræna heimi hefur komið mörgum gleði­lega á óvart. Allt er að kom­ast aftur á fulla ferð. En fram­leiðslu­keðj­urnar ryðg­uðu í far­aldr­inum. Og standa sumar enn á sér.

Óhætt er að segja að margir liggi nú á bæn um að vet­ur­inn á norð­ur­hveli verði mildur. Að veð­urguð­irnir verði mis­kunn­samir. En vetr­ar­hörkur síð­ustu ára, jafn­vel heims­met í slíku, gefa vissu­lega vís­bend­ingu um hvað kunni að vera í vændum. Hækkun olíu­verðs sem og verð­hækk­anir á gasi og kolum, gætu hæg­lega velt af stað snjó­bolta í vetur sem erfitt yrði að stöðva.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár