Evrópulönd niðurgreiða orku í kjölfar verðhækkana á gasi

Verð á gasi til hús­hit­unar hefur hækkað tölu­vert í Evrópu á síð­ustu mán­uðum. Til þess að bregð­ast við þessum hækk­unum hafa rík­is­stjórnir Ítalíu, Spánar, Frakk­lands og Bret­lands ákveðið að nið­ur­greiða orku­út­gjöld heim­ila í stórum stíl.

Miklar frosthörkur í Evrópu í fyrravetur leiddu meðal annars til að snjóþungt var í Madríd, höfuðborg Spánar.
Miklar frost­hörkur í Evrópu í fyrra­vetur leiddu meðal ann­ars til að snjó­þungt var í Madríd, höf­uð­borg Spánar. Mynd: EPA

Rík­is­stjórn Ítalíu sam­þykkti í vik­unni nýjan björg­un­ar­pakka sem felur í sér nið­ur­greiðslur á orku­út­gjöldum heim­ila þar í landi, sem hafa hækkað hratt á und­an­förnum miss­erum. Umfang pakk­ans getur numið allt að 685 millj­örðum króna, en hann er einn af mörgum sem rík­is­stjórnir Evr­ópu­landa hafa ráð­ist í á und­an­förnum vikum til að bregð­ast við hækk­andi verði á gasi til hús­hit­unar.

Ráðherrar uggandi yfir verðhækkunum

Samkvæmt frétt sem birt­ist á vef Financial Times í gær hefur gasverð hækkað tölu­vert í álf­unni á síð­ustu mán­uðum. Að hluta til megi skýra verð­hækk­un­ina með versn­andi birgða­stöðu í lönd­unum þar sem síð­asti vetur reynd­ist langur og kaldur, en einnig hafi minni gas­út­flutn­ingur frá Rúss­landi til Vestur- Evrópu átt sinn þátt í henni.

Financial Times greinir frá því að ráð­herrar aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins muni hitt­ast í vik­unni til að ræða hvernig hið opin­bera ætti að bregð­ast við þessum verð­hækk­unum. Ráð­herr­arnir ótt­ast að hækk­an­irnar muni draga úr væntu efna­hags­við­spyrn­unni að lokum heims­far­ald­urs­ins og aukið mót­stöðu við fyr­ir­hug­aðar lofts­lags­að­gerðir sam­bands­ins, sem gert er ráð fyrir að verði kostn­að­ar­samar.

Gasvinnsla aukin í Norðursjó

Í síð­ustu viku sam­þykkti rík­is­stjórn Spánar að ráð­ast gegn svoköll­uðum okur­hagn­aði orku­fyr­ir­tækj­anna þar í landi og veita orku­kaup­endum skatta­af­slátt. Söm­leiðis hefur franska rík­is­stjórnin hefur til­kynnt um 15 þús­und króna nið­ur­greiðslu á orku­reikn­ingi sex milljón lág­tekju­heim­ila þar í landi.

Helge Hauganes, yfir­maður orku og jarð­gass norska orku­fyr­ir­tæk­is­ins Equinor, segir í sam­tali við Financial Times að fyr­ir­tækið hafi ákveðið að bregð­ast við þess­ari verð­hækkun með auk­inni fram­leiðslu á jarð­gasi í Norð­ur­sjó. Equinor er stjórnað af norska rík­inu, en Noregur er næst­stærsti sölu­að­il­inn á gasi til hús­hit­unar á Evr­ópu­mark­aði, á eftir Rúss­landi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár