ESB líklegt til að skattleggja gegn áhrifum verðbólgu

Líklegt er að Evr­ópu­sam­bandið muni styðja upp­töku hval­reka­skatts á orku­fyr­ir­tæki í álf­unni til að fjár­magna stuðn­ings­að­gerðir við tekju­lág heim­ili og fyr­ir­tæki vegna mik­illa verð­hækk­ana. Ítalía hefur nú þegar sam­þykkt slíka skatt­lagn­ingu.

Mario Draghi, forsætisráðherra Ítalíu, ásamt Ursula von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins.
Mario Draghi, for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu, ásamt Ursula von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins. Mynd: EPA

For­ystu­fólk í Evr­ópu­sam­band­inu mun senni­lega gefa grænt ljós á til­lögu fram­kvæmda­stjórnar sam­bands­ins um að hrinda af stað stuðn­ings­að­gerðum fyrir tekju­lág heim­ili og fyr­ir­tæki til þess að sporna gegn áhrifum mik­illa orku­verðs­hækk­ana. Aðgerð­irnar verða fjár­magn­aðar með svoköll­uðum hval­reka­skatti á orku­fyr­ir­tækin sem grætt hafa mest í álf­unni. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg sem birt­ist í gær.

Skattlagning á hagnað orkufyrirtækja

Samkvæmt frétt­inni munu þjóð­ar­leið­togar aðild­ar­ríkja sam­bands­ins ræða hvernig eigi að styðja við atvinnu­lífið og tekju­lág heim­ili í yfir­stand­andi orku­verð­skrísu á tveggja daga fundi í vik­unni. Orkuverð á meg­in­landi Evrópu hefur hækkað mikið á und­an­förnum mán­uðum, en þær má meðal ann­ars rekja til minni inn­flutn­ingi á gasi til hús­hit­unar frá Rúss­landi.

Á fund­inum, sem hefst á morgun, verður farið yfir til­lögur fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins um að koma á fót sam­eig­in­legt styrkja­kerfi sem gæti nýst fyrir heim­ilin aðild­ar­ríkjum sam­bands­ins á krísu­tímum.

Í drögum að sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sam­bands­ins, sem Bloomberg komst yfir, segir að góð leið til að fjár­magna þessa styrki væri svo­kall­aður hval­reka­skattur á orku­fyr­ir­tæki. Slíkur skattur væri lagður á hagnað fyr­ir­tækj­anna, en búist við er að hann hafi auk­ist um 200 millj­arða evra í aðild­ar­ríkj­unum – sem jafn­gildir um 28 billjónum króna – í vetur vegna verð­hækk­ana á orkunni sem þau seldu.

Nú þegar ákveðið í Ítalíu

Rík­is­stjórn Ítalíu hefur nú þegar ákveðið að skatt­leggja orku­fyr­ir­tækin þar í landi til að fjár­magna aðgerð­ar­á­ætlun fyrir tekju­lág heim­ili, sam­kvæmt frétt Bloomberg frá því fyrir helgi. Þar munu fyr­ir­tæki í geir­anum sem juku hagnað sinn um meira en fimm millj­ónir evra – sem jafn­gildir um 715 millj­ónum íslenskra króna – þurfa að greiða 10 pró­senta ein­greiðslu­skatt á hagn­að­inn sinn.

Með slíkri skatt­lagn­ingu segir Mario Draghi, for­sæt­is­ráð­herra lands­ins, að rík­is­stjórnin geti stutt við þá sem hafa þurft að gjalda fyrir orku­verðs­hækk­an­irnar án þess að stór­auka fjár­laga­hall­ann sinn og skulda­söfnun hins opin­bera.

Engar stuðningsaðgerðir hér á landi

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið birti í gær nið­ur­stöður úr minn­is­blaði sínu um áhrif hækk­andi orku­verðs á íslensk heim­ili. Samkvæmt því hefur verð­hækk­unin haft minni áhrif á fjár­hag heim­ila hér á landi heldur en í öðrum Evr­ópu­löndum, þar sem kynd­ing væri almennt ekki háð olíu og gasi.

Einnig sagði ráðu­neytið að fjár­hagur íslenskra heim­ila og inn­lend eft­ir­spurn væri sterk og bætti við að almennar milli­færslur eða skattafslættir myndu ekki endi­lega skila sér til heim­ila, þar sem slíkar aðgerðir myndu enn auka verð­bólgu og hækka vaxta­kostnað.

Þó stóð einnig í minn­is­blað­inu að mik­il­vægt sé að fylgj­ast með áhrifum á tekju­lág heim­ili, sér­stak­lega þau sem ættu ekki hús­næði. Skuld­sett heim­ili sem væru nýkom­inn inn á hús­næð­is­markað gætu einnig lent í vanda ef ráð­ist væri í „ómark­vissar aðgerðir sem leiða til hærri vaxta.“ Ef talin væri þörf á því að bregð­ast við áhrifum á þessa hópa þyrftu þær aðgerðir að vera afmark­aðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár