Hvernig Hollendingum tókst að draga úr gasnotkun um þriðjung

Þótt rúss­neska gasið sé nú aftur farið að flæða til Evrópu er ótti um að Pútín skrúfi fyrir þegar honum dettur í hug enn til staðar. Nauð­syn­legt er að draga úr gas­notkun en hvernig á að fara að því? Vel­gengni Hol­lend­inga er saga til næsta bæjar.

Líklegt er að áform um að loka kolaverum í Evrópu muni frestast vegna yfirvofandi orkuskorts.
Líklegt er að áform um að loka kola­verum í Evrópu muni frest­ast vegna yfir­vof­andi orku­skorts. Mynd: EPA

Það sem af er ári hefur Hol­lend­ingum tek­ist að draga úr gas­notkun sinni um þriðj­ung. Það er mun meira en nágrönn­unum í Þýska­landi hefur tek­ist að gera en þar í landi nam sam­drátt­ur­inn engu að síður 14 pró­sentum á tíma­bil­inu jan­úar til maí. Ítalir, svo dæmi sé tekið, eru mun verr settir og hafa aðeins náð að minnka notkun gass um tæp­lega 2 pró­sent.

Mörg Evr­ópu­ríki eru háð gasi og þar með Rússum því talið er að um helm­ingur af öllu gasi sem not­aður er í álf­unni komi þaðan. Er Rússar gerðu inn­rás í Úkraínu í febr­úar var gripið til margs­konar við­skipta­þving­ana gegn þeim en rúss­neska gass­ins þurfti enn með. Stjórn­völd í Rúss­landi svör­uðu fyrir sig, heimt­uðu greiðslur í rúblum fyrir gasið og fleira í þeim dúr. Fyrir tæpum tveimur vikum sögð­ust þau svo þurfa að stöðva gas­flæðið til Evrópu til að sinna við­haldi á helstu gasleiðsl­unni, Nord Stream 1. Gas­notkun er minni á sumrin en á vet­urna, enda gasið m.a. notað til að kynda hýbýli en sum­ar­mán­uðir eru hins vegar not­aðir til forða­söfn­unar.

[adspot]

Rúss­lenska gasið hóf aftur að streyma um Nord Stream 1 á fimmtu­dag­inn. En hversu lengi – það er stóra spurn­ingin.

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hefur hvatt aðild­ar­ríki ESB til að draga úr notkun jarð­gass um sem nemur 15 pró­sentum fram til næsta vors. Aðild­ar­ríkjum er í sjálfs­vald sett hvort þau fylgi þessum til­mælum enn sem komið er skerð­ingin gæti orðið lög­fest ef Rússar stöðva flutn­ing á jarð­gasi í gegnum gasleiðsl­una Nord Stream 1.

Hol­lend­ingum hefur það sem af er þessu ári tek­ist að ná þessu mark­miði og gott betur. Þrennt hefur þar skipt mestu máli.

Í fyrsta lagi er það veðrið. Óvenju mildur vetur er að baki sem þýddi að minna gass var þörf. Í öðru lagi hefur verið fýrað upp í kola­verum að nýju og í þriðja lagi hefur tek­ist að draga úr gas­notkun almennt.

Þýski fjöl­mið­il­inn Deutsche Welle (DW) hefur eftir hol­lenskum sér­fræð­ingi í orku­málum að mildi vet­ur­inn og kola­verin hafi orsakað sam­tals 5-10 pró­sent af þeim sam­drætti sem orðið hefur í gas­notkun síð­ustu mán­uði. Langstærsta breytan sé minni notkun heim­ila og fyr­ir­tækja.

Í apríl, nokkrum vikum eftir inn­rás Rússa í Úkraínu, hóf hol­lenska rík­is­stjórnin mikla her­ferð sem mið­aði að því að hvetja almenn­ing sem og fyr­ir­tæki til að draga úr orku­notkun. Slagorð her­ferð­ar­innar var „skrúfið niður í ofn­unum“ og voru borg­ar­arnir hvattir til draga úr hús­hitun. Samhliða þessu voru fólk og fyr­ir­tæki hvött til að ein­angra hús betur sem og að fjár­festa í orku­spar­andi bún­aði.

Ekki lausn að brenna kolum

DW hefur svo eftir Ben McWilliams, þýskum sér­fræð­ingi í orku­málum, að lík­legt sé að önnur Evr­ópu­ríki fari að fyr­ir­mynd Hol­lend­inga. Sá segir að það að brenna kolum til raf­orku­fram­leiðslu í stað þess að nota gas sé ein­föld lausn í efna­hags­legu til­liti en vissu­lega ekki fýsi­leg í umhverf­is­legu. Til að draga veru­lega úr orku­notkun fyr­ir­tækja, m.a. verk­smiðja, þurfi fleira að koma til en betri ein­angrun hús­næðis. Það muni þýða sam­drátt í fram­leiðslu. Sem aftur gæti svo haft nei­kvæðar efna­hags­legar afleið­ingar.

Ef draga á veru­lega úr notkun gass í Evrópu þarf að koma til aðgerða og þá þurfa stjórn­mála­menn að vera „algjör­lega hrein­skilnir við fólk,“ hefur DW eftir McWilliams. Þeir þurfa að segja það ekki seinna en strax að í vetur skipti öllu að spara hverju ein­ustu sam­eind af gasi, „að það muni bjarga störfum og til lengri tíma litið bjarga efna­hagnum“.

Holland er vissu­lega ekki eina Evr­ópu­ríkið sem lagt hefur upp í átak þar sem fólk er hvatt að spara gas. Það hefur einnig verið gert t.d. í Belgíu og Þýska­landi þótt árang­ur­inn hafi ekki verið jafn mik­ill.

Það er auð­vitað ekki hægt að full­yrða að her­ferðir sem þessar, einar og sér, hafi afger­andi áhrif. Orkuverð hefur rokið upp úr öllu valdi og mun halda áfram að gera það næstu vikur og mán­uði ef fram heldur sem horfir. Það vekur fólk til vit­undar og ef til vill verður það við þessar aðstæður næmara á her­ferðir á borð við „skrúfið niður í ofn­unum“.

[adspot]

Einnig hafa sér­fræð­ingar bent á að eftir heims­far­ald­ur­inn þar sem áríð­andi var að standa saman hafi vakið fólk til umhugs­unar um einmitt það; að standa saman. Að standa saman í því að draga úr orku­notkun kann því að vera sjálf­sagð­ara í hugum fólks núna en áður.

En fleira en orku­sparn­aður heim­ila þarf að koma til. Svo mikið er víst. Og svo virð­ist sem aukin sátt sé að skap­ast um að brenna meira af kolum en síð­ustu miss­eri sem og að fresta því að slökkva á kjarn­orku­verum en í Þýska­landi stóð til að síð­asta verið myndi hætta starf­semi um næstu ára­mót.

Í ljósi þess að áhrif lofts­lags­breyt­inga af manna­völdum eru þegar orðin sýni­leg, m.a. í þeirri hita­bylgju sem gengið hefur yfir Evrópu síð­ustu daga, þá er orðið tíma­bært að huga mun betur að því í hvað orka sem fram­leidd er úr auð­lindum jarðar fer.

Löngu tíma­bært.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár