Samgöngukostnaður hvergi hærri í Evrópu en á Íslandi

Norð­ur­löndin raða sér í efstu sæti á lista þeirra landa í Evrópu þar sem sam­göngu­kostn­aður er mestur. Verð á gist­ingu, mat, fötum og skóm er hærra hér á landi en víð­ast hvar ann­ars staðar í álf­unni.

Til þess að komast ferða sinna þurfa Íslendingar að borga 85 prósentum meira heldur en íbúar í löndum Evrópusambandsins gera að meðaltali.
Til þess að kom­ast ferða sinna þurfa Íslend­ingar að borga 85 pró­sentum meira heldur en íbúar í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins gera að með­al­tali. Mynd: Bára Huld Beck

Sam­göngu­kostn­aður er 85 pró­sentum hærri á Íslandi en að með­al­tali innan landa Evr­ópu­sam­bands­ins. Hvergi í Evrópu er sam­göngu­kostn­að­ur­inn eins mik­ill. Frá þessu er greint í umfjöllun á vef­svæði Schengen Visa News sem unnin er upp úr töl­fræði­gögnum frá Eurostat.

Kostn­aður við sam­göngur er einnig hár á hinum Norð­ur­lönd­unum en Svíþjóð og Noregur raða sér í næstu sæti á eftir Íslandi á list­anum. Í Svíþjóð mælist kostn­að­ur­inn 79 pró­sentum hærri en með­al­talið í Evrópu en 61 pró­sent í Noregi. Finnland kemur næst Norð­ur­landa á list­anum, þar er verð­lag tæp­lega 39 pró­sentum hærra en gengur og ger­ist í ESB en sam­göngur eru ögn dýr­ari á Írlandi. Af Norð­ur­lönd­unum er kostn­aður vegna sam­gangna lægstur í Danmörku, hann mælist engu að síður tæpum 17 pró­sentum hærri en með­al­kostn­aður innan ESB.

Kostn­aður vegna far­ar­tækja til eigin nota er aftur á móti hæstur í Danmörku, 38 pró­sentum hærri en með­al­talið innan ESB. Ísland ratar í fjórða sæti þess lista, á eftir Noregi og Hollandi. Hér á landi er kostn­aður vegna far­ar­tækja til eigin nota 16 pró­sentum hærri en í ríkjum ESB.

Lægstur er sam­göngu­kostn­að­ur­inn í Búlgaríu, rétt rúm­lega helm­ingur af með­al­tal­inu innan álf­unnar. Þar á eftir koma Rúmenía, Pólland og Tékkland. Í öllum þessum löndum er kostn­að­ur­inn rúm­lega 40 pró­sentum undir með­al­tals­kostn­aði.

Gisting, matur og menning dýrust á Norðurlöndum og í Sviss

Einnig er fjallað um verð­lag á gisti- og veit­inga­stöðum innan álf­unnar í umfjöllun Schengen Visa News og Ísland er einnig á meðal dýr­ustu landa í þessum flokki. Hér á landi er verð­lag á gisti- og veit­inga­stöðum tæpum 63 pró­sentum hærra en að með­al­tali innan ESB. Verðlag í þessum flokki er hærra í ein­ungis tveimur löndum, Sviss og Noregi. Í Sviss er verð­lagið 68,7 pró­sentum yfir með­al­lagi.

Þessi sömu lönd, Norð­ur­löndin og Sviss, eru einnig dýr­ust þegar kemur að verð­lagi á afþr­ey­ingu og menn­ing­ar­tengdum við­burðum. Verð í þeim flokki er á bil­inu 30 til 50 pró­sentum hærra en gengur og ger­ist hjá aðild­ar­ríkjum ESB.

Hagstofa Íslands birti í vik­unni mynd á Facebook-síðu sinni sem sýnir verð­lags­vísi­tölu fyrir mat og drykk í Evrópu á síð­asta ári. Þar sést að á Íslandi er matur og drykkur 39 pró­sentum dýr­ari en innan ESB. Í ein­ungis tveimur löndum er mat­ar­k­arfan dýr­ari, í Noregi og Sviss en í Sviss er verðið 66 pró­sentum yfir með­al­tali ESB. Hér á landi kosta föt og skór einnig meira en í öllum öðrum löndum Evrópu. Verðlag í þessum vöru­flokki er 35 pró­sentum hærra en með­al­talið innan ESB, líkt og sjá má á með­fylgj­andi mynd frá Hagstofu Íslands.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár