ESB gæti bannað innflutning rússneskrar olíu

Evr­ópu­sam­bandið vinnur nú að til­lögu um inn­flutn­ings­bann á allri rúss­neskri olíu í kjöl­far frétta af voða­verkum Rússa í Úkraínu. Þó er óvíst hvort öll aðild­ar­ríkin sam­þykki hana, en óein­ing hefur verið innan sam­bands­ins um refsi­að­gerðir gegn Rúss­landi.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB. Mynd: EPA

Aðild­ar­ríki Evr­ópu­sam­bands­ins gætu hert refsi­að­gerðir sínar gegn Rúss­landi enn frekar og bannað allan inn­flutn­ing á rúss­neskri olíu. Hingað til hafa ríkin verið ósam­mála um hversu langt sam­bandið ætti að ganga í við­skipta­þving­unum sínum vegna inn­rás­ar­innar í Úkraínu, en lík­urnar á meiri hörku gegn rúss­neskum stjórn­völdum hafa auk­ist eftir að fréttir hafa borist af hugs­an­legum stríðs­glæpum rúss­neska hers­ins. Þetta kemur fram í frétt frá Politico.

Óeining um aðgerðir

Eystra­salts­ríkin og Pólland hafa kallað eftir enn harð­ari aðgerðum gegn Rúss­landi á síð­ustu vikum, þar sem núver­andi aðgerðir hafa ekki enn skilað til­ætl­uðum árangri. Líkt og Politico greindi frá síð­asta föstu­dag vill rík­is­stjórn Póllands að háir tollar verði settir á rúss­neskan orku­inn­flutn­ing, en Eistland hefur einnig lagt til að greiðslur fyrir þennan inn­flutn­ing verði frestaðar þangað til að Rússland dregur her­lið sitt úr Úkraínu.

Önnur aðild­ar­ríki, með Þýska­land í far­ar­broddi, hafa aftur á móti sett sig á móti hingað til. Fyrir tveimur vikum síðan sagði Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, að áherslan ætti fyrst og fremst að vera á að styrkja eft­ir­fylgni núver­andi við­skipta­þving­ana.

Hins vegar nefnir Politico að greina megi hug­ar­fars­breyt­ingu innan sam­bands­ins þessa vik­una, í kjöl­far frétta af fjöldamorðum og pynt­ingum rúss­neska hers­ins á óbreyttum borg­urum í hernumdum bæjum í Úkraínu. Samkvæmt utan­rík­is­mála­stjóra Evr­ópu­sam­bands­ins, Josep Borell, er hér um stríðs­glæpi að ræða.

Sam­bandið vinnur nú að útfærslu nýrra refsi­að­gerða gegn land­inu, sem verður kynnt fyrir emb­ætt­is­mönnum aðild­ar­ríkj­anna á morgun. Á meðal þeirra sem eru til umræðu er inn­flutn­ings­bann á allri rúss­neskri olíu.

Þjóðverjar opnari fyrir olíubanni

For­sæt­is­ráð­herra Póllands, Mateusz Morawiecki, sagði í gær að þýsk stjórn­völd væru helsta hindrun þess að sam­bandið herti refsi­að­gerð­irnar sínar gegn Rússum. Samkvæmt Politico hafa Þjóð­verjar þó verið opn­ari fyrir slíkum aðgerðum á síð­ustu dögum, þótt ólík­legt sé að algjöru inn­flutn­ings­banni verði komið á.

Mið­ill­inn hefur eftir einum emb­ætt­is­manni að gasinn­flutn­ingur frá Rúss­landi, sem er þýskum heim­ilum mjög mik­il­vægur fyrir hús­hitun, yrði lík­lega ekki bann­aður. Líklegra væri að bann yrði sett á inn­flutn­ing á olíu. Þetta er í sam­ræmi við ummæli fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, Christian Lindner, en hann hefur sagt að bann á gasinn­flutn­ingi væri ekki mögu­legt þessa stund­ina, nauð­syn­legt væri að aðskilja það frá öðrum orku­út­flutn­ingi Rúss­lands.

Rúblan jafnsterk en hagkerfið kólnar

Rúss­neska rúblan, sem hrundi í virði á fyrstu dögum inn­rás­ar­innar og varð verð­minni en íslenska krónan um tíma, hefur nú náð fyrri styrk. Að hluta til er þessi virð­is­aukn­ing gjald­mið­ils­ins til­komin vegna skarpra stýri­vaxta­hækk­ana í land­inu, en einnig hefur gjald­eyrir haldið áfram að streyma inn í landið þar sem orku­út­flutn­ings til Vest­ur­landa hefur ekki stöðvast.

Þrátt fyrir jafn­sterka rúblu hefur inn­rásin í Úkraínu og refsi­að­gerðir Vest­ur­landa vegna hennar haft afger­andi áhrif á efna­hag Rúss­lands. Líkt og New York Times bendir á eru Vest­ur­lönd nú að und­ir­búa sig fyrir að verða óháð rúss­neskri orku til fram­búðar með auknum fjár­fest­ingum í öðrum orku­gjöfum.

Einnig má búast við að hækkun stýri­vaxta muni hafa kælandi áhrif á rúss­neska hag­kerfið. Vext­irnir voru rúm fjögur pró­sent í fyrra en hafa núna hækkað upp í 20 pró­sent til að koma í veg fyrir fjár­magns­flótta frá land­inu. Einnig hefur seðla­banki Rúss­lands nú mun minna svig­rúm til að bregð­ast við geng­is­sveiflum, þar sem tæpur helm­ingur af gjald­eyr­is­forða þess hefur verið frystur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár