ESB-lönd mega styrkja fyrirtæki sem tapa á viðskiptaþvingunum

Fyr­ir­tæki sem eru skráð í aðild­ar­ríkjum Evr­ópu­sam­bands­ins og hafa orðið fyrir tekju­missi vegna við­skipta­þving­ana við Rússland eða hærra orku­verðs geta nú fengið styrki frá hinu opin­bera eða rík­is­á­byrgðir á lánum.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB.
Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB. Mynd: EPA

Fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins ákvað á mið­viku­dag­inn að veita und­an­þágu á reglum um rík­is­stuðn­ing svo aðild­ar­ríki sam­bands­ins geti stutt fyr­ir­tæki sem hafa orðið fyrir miklum tekju­missi vegna hærra orku­verðs eða við­skipta­þving­ana við Rússland. Stuðn­ing­ur­inn getur annað hvort verið í formi styrkja eða rík­is­á­byrgðar á lánum. Þetta kemur fram í frétt Reuters sem birt­ist í gær.

Samkvæmt frétt­inni geta fyr­ir­tækin sem við­skipta­þving­an­irnar hafa bitnað á nú fengið allt að 400 þús­und evrur í rík­is­styrki, en það jafn­gildir um 57 millj­ónum króna. Hámarks­styrk­ur­inn hjá hverju sjáv­ar­út­vegs-, land­bún­aðar- og fisk­eld­is­fyr­ir­tæki nemur aftur á móti 35 þús­undum evra, eða um fimm millj­ónum króna.

Til við­bótar við þetta mega fyr­ir­tæki sem eru í lausa­fjár­vand­ræðum vegna ástands­ins nú fá rík­is­á­byrgð á lánum sínum.

Meiri styrkur vegna hærri orkukostnaðar

Fyr­ir­tæki sem eru í fjár­hags­vand­ræðum vegna hærri orku­kostn­aðar geta hins vegar fengið enn meiri stuðn­ing frá hinu opin­bera, en Reuters greindi frá því á þriðju­dag­inn að ríkið gæti greitt allt að 30 pró­sent af kostn­aði þeirra. Þó má styrk­ur­inn ekki vera meiri en tvær millj­ónir evra, eða um 284 millj­ónir íslenskra króna.

Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Evr­ópu­sam­bandið slakar á reglum um rík­is­stuðn­ing, en fyrir tveimur árum síðan veitti fram­kvæmda­stjórn sam­bands­ins und­an­þágu á þeim svo að aðild­ar­ríki þess gætu stutt við fyr­ir­tæki sem urðu illa úti vegna heims­far­ald­urs­ins.

Orkufyrirtæki skattlögð

Líkt og Kjarninn greindi frá fyrr í vik­unni mega orku­fyr­ir­tæki í álf­unni sem græddu á hækk­andi orku­verði hins vegar búast við ein­greiðslu­skatti. Tekj­urnar af þeirri skatt­heimtu yrðu síðan nýttar í stuðn­ings­að­gerðir fyrir tekju­lág heim­ili og fyr­ir­tæki til að sporna gegn nei­kvæðum áhrifum orku­verðs­hækk­an­anna.

Rík­is­stjórn Ítalíu hefur nú þegar ákveðið að skatt­leggja orku­fyr­ir­tækin þar í landi til að fjár­magna aðgerð­ar­á­ætlun fyrir tekju­lág heim­ili, sam­kvæmt frétt Bloomberg frá því fyrir helgi. Þar munu fyr­ir­tæki í geir­anum sem juku hagnað sinn um meira en fimm millj­ónir evra – sem jafn­gildir um 715 millj­ónum íslenskra króna – þurfa að greiða 10 pró­senta ein­greiðslu­skatt á hagn­að­inn sinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

esb

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár