Innrásin í Úkraínu krefst þess að meta þarf hagsmuni Íslands að gerast fullgildur aðili að Evrópusambandinu út frá þjóðaröryggismálum. Aðildin snýst um fleira en gjaldmiðilinn, sjávarútvegs- og landbúnaðarmál. Auk þess snýst aðild um vaxandi mikilvæga þætti eins um öryggis- og varnarmál þjóðarinnar og leiðir til að uppfylla það varnarlega tómarúm sem skapaðist eftir brotthvarf Bandaríkjahers og minna vægi NATO í vörnum Íslands. Danska ríkisstjórnin ætlar að auka framlög til varnarmála og boða til þjóðaratkvæðagreiðslu í sumar um hvort Danir verði áfram utan sameiginlegrar stefnu Evrópusambandsins í varnarmálum.
Ógnir og átakasvæði í alþjóðakerfinu hafa breyst eftir lok kalda stríðsins. Hagsmunir Bandaríkjanna hafa færst til annarra heimsálfa og því ekki pólitískur vilji til að taka þátt í sameiginlegum vörnum Evrópu í sama mæli og áður. Í kjölfarið hefur Evrópa þurft og mun þurfa að axla frekari ábyrgð á sínum öryggis- og varnarmálum. Brotthvarf bandaríska hersins og breyttar áherslur NATO kalla á nýtt hagsmunamat. Það er mat okkar, greinarhöfunda, að langtíma hagsmunum Íslands verði sem best tryggðir með aðild að NATO og fullri aðild að ESB.
Norræn samvinna í öryggis- og varnarmálum á tímum kalda stríðsins
Í kalda stríðinu var náin samvinna á milli Norðurlandanna á sviði öryggis- og varnarmála. Danmörk, Noregur og Ísland gengu í NATO meðan Svíþjóð og Finnland aðhylltust hlutleysisstefnu. Á yfirborðinu leit út fyrir að þjóðirnar væru klofnar og stefndu í þveröfuga átt. Staðreyndin var sú að þau voru sameinuð í að halda hinu svokallaða „norræna jafnvægi". Í því fólst að halda sig í fjarlægð frá átökum stórveldanna og forðast átök við þau. Þessi sameiginlega afstaða leiddi til óformlegs öryggissamfélags, þar sem ríkin höfðu ávallt hagsmuni svæðisins að leiðarljósi.
[adspot]Norrænu ríkin í NATO stóðu vörð um pólitískan stöðugleika á svæðinu. Þau vísuðu oft til norrænnar samstöðu þegar staða Finnlands var rædd á vettvangi NATO. Pólitískur þrýstingur Sovétríkjanna á Finnland hefði óhjákvæmilega aukist ef Danmörk og Noregur hefðu fallist á varðveislu kjarnorkuvopna og viðveru Bandaríkjahers. Í tvípólakerfi kalda stríðsins stóðu Norðurlöndin að mörgu leyti betur að vígi en ríki Mið-Evrópu, þar sem þeim tókst að mestu leyti að komast hjá átökum stórveldanna.
Ný heimsmynd kallar á nýtt hagsmunamat
Í dag eru öryggis- og varnarhagsmunir Norðurlandanna samtvinnaðir Evrópu. Þau hafa í gegnum tíðina varið takmörkuðum fjármunum til vígbúnaðar og lagt áherslu á mannréttindi, lýðræði, lög og reglu í alþjóðakerfinu og samvinnu innan alþjóðastofnana. Þessi grunnstef í utanríkisstefnu þeirra samrýmast vel afstöðu ríkja Evrópusambandsins og eru í samræmi við hefðbundnar áherslur þeirra.
Utanríkis-, öryggis- og varnarsamstarf Evrópusambandsins er í stöðugri þróun. Íslendingar geta skipað sér í sveit með hinum Norðurlöndunum og Eystrasaltslöndunum innan þess. Innganga Ísland í Evrópusambandið og þátttaka í sameiginlegri stefnu þess í utanríkis- og öryggismálum mun uppfylla það varnarlega tómarúm sem skapaðist eftir brotthvarf Bandaríkjahers og minna vægi NATO í vörnum Íslands.
Höfundar eru stjórnmálafræðingar.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.






















































Athugasemdir