Noregur gæti neyðst til að takmarka útflutning á rafmagni

Stjórn­völd í Noregi segja til greina koma að draga úr áform­uðum útflutn­ingi á raf­magni til meg­in­lands Evrópu. Orku­skortur blasir við vegna þess að uppi­stöðu­lón hafa ekki fyllst. Óvenju­legum þurrkum er um að kenna.

Noregur er einn stærsti raforkuframleiðandi í heimi.
Noregur er einn stærsti raf­orku­fram­leið­andi í heimi. Mynd: Statskraft.no

Klemman í orku­mál­unum er sú að eng­inn vill hafa vind­orku­ver í land­inu sínu, eng­inn vill vind­orku­ver á hafi úti, eng­inn vill nýjar vatns­afls­virkj­anir og eng­inn vill neitt, en allir vilja ódýrt raf­magn.“

Þetta sagði olíu- og orku­mála­ráð­herra Noregs, Terje Aasland, við blaða­mann dag­blaðs­ins VG í gær. Fyrr um dag­inn hafði hann átt neyð­ar­fund með for­mönnum þing­flokka og full­trúum atvinnu­lífs­ins. Umræðu­efnið var við­brögð við yfir­vof­andi orku­skorti.

Því Norðmenn eru í vanda staddir. Vatn í uppi­stöðu­lónum margra vatns­afls­virkj­ana er í sögu­legu lág­marki eftir óvenju mikla þurrka í sumar. Stjórn­völd telja þar af leið­andi að draga verði úr því raf­magni sem til stóð að selja úr landi. Þau ætla einnig að grípa til frek­ari aðgerða til að tryggja heim­ilum nægt raf­magn sem og fyr­ir­tækjum sem eru hvað við­kvæmust fyrir orku­skorti. Frekari útfærslu á aðgerðum er að vænta innan tveggja vikna. Sumarið er ekki úti og enn er von­ast eftir því að lónin fyllist.

Orku­skortur blasir við í mörgum löndum Evrópu þar sem gasinn­flutn­ingur frá Rúss­landi verður að öllum lík­indum tak­mark­aður. Rússnesk yfir­völd skrúf­uðu t.d. fyrir gas til hluta álf­unnar í sumar og ótt­ast er að þau geri það aftur. Ef dregið verður úr útflutn­ingi raf­magns frá Noregi yrði það enn eitt höggið í orku­krís­unni sem við blasir.

[adspot]

Noregur fram­leiðir mikið af raf­magni með vatns- og vinda­fls­virkj­unum og er einn helsti útflytj­andi raf­orku í Evrópu. Þess fyrir utan er olíu- og gas­fram­leiðsla nokkuð ríku­leg. En nú er ekki nóg til svo svala megi eft­ir­spurn á meg­in­land­inu og inn­an­lands – ef staðan breyt­ist ekki í suð­ur­hluta Noregs þar sem mikil þurrka­tíð hefur geisað.

Raf­orku­verð í Noregi hefur verið að hækka og það sama er uppi á ten­ingnum víð­ast hvar í Evrópu. Til fram­tíðar er svarið við stöð­unni það að fram­leiða meiri end­ur­nýj­an­lega orku í land­inu að mati olíu- og orku­mála­ráð­herr­ans. Hann hefur áður sagt ótt­ast að á næsta ári gæti þurft að skammta raf­magn.

Ef uppi­stöðu­lónin fyll­ast ekki og vatn í þeim verður minna en í með­al­ári í vetur þá er ein leiðin að sögn ráð­herr­ans sú að tak­marka útflutn­ing raf­magns. Hann segir orku­skort ekki mega verða við­var­andi vanda­mál í Noregi. „Við getum ekki búið við það að svipað vanda­mál skap­ist á hverju ári.“

Norsk stjórn­völd hafa sett sér það mark­mið að auka orku­út­flutn­ing um 50 pró­sent til árs­ins 2030. Til þess að svo megi verða þarf að vera til næg raf­orka, segir Aasland. Þess vegna þurfi að byggja fleiri orku­ver, bæði ver sem nýta vatns­afl og vind­orku.

Mjög mikil and­staða er við upp­bygg­ingu vind­orku­vera í Noregi en slíkar virkj­anir hafa síð­ustu ár risið nokkuð víða um landið. Orku­mála­ráð­herr­ann segir vand­ann hins vegar vera þann að allir vilji ódýrt raf­magn en eng­inn vilji virkj­anir í sínu næsta nágrenni.

Hann hvetur landa sína til að hugsa vel málin. Hvort ekki hægt sé að ákveða hvar vind­orku­ver eigi heima á landi og þá hvar ekki.

Gríðarlegt vatn fyrir norðan

Stjórn­ar­and­staðan hefur gagn­rýnt orku­geir­ann fyrir sóun og að vand­inn hafi verið fyr­ir­sjá­an­legur af þeim sökum. Aasland blæs á þær ásak­anir og seg­ist gjarnan vilja hitta þann sem gat séð þennan vanda fyrir.

Noregur er ekki í Evr­ópu­sam­band­inu en má þó ekki lögum sam­kvæmt draga veru­lega úr eða stöðva útflutn­ing á orku til Evrópu í langan tíma. Lýsa þarf yfir neyð­ar­á­standi svo að slíkt megi gera, segir í frétt Bloomberg um málið.

Uppi­stöðu­lón eru mörg hver ekki hálf­full sem er veru­leg breyt­ing frá síð­ustu tveimur ára­tugum. Hins vegar hefur verið safnað í þau meira af vatni en svart­sýn­ustu spár yfir­valda gerðu ráð fyrir fyrr í sumar. Í Norður-Noregi er hins vegar allt annað uppi á ten­ingnum. Þar flæðir vatn yfir barma uppi­stöðu­lón­anna. „Ég hef aldrei á mínum 25 árum í geir­anum séð slíkan mun á lón­unum í Norður- og Suður-Noregi segir orku­mála­sér­fræð­ing­ur­inn Tor Reier Lil­leholt í sam­tali við Norska rík­is­út­varpið, NRK, í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár