Framleiðsluverðsvísitalan í Þýskalandi tæpum 46 prósentum hærri en fyrir ári

Raf­orku­verðs­hækk­anir í Þýska­landi skýra mikla og ófyr­ir­séða hækkun á fram­leiðslu­verðs­vísi­töl­unni í land­inu. Á sama tíma ber­ast fregnir af því að þýska ríkið hafi náð sam­komu­lagi um þjóð­nýt­ingu Uniper, sem er stærsti gasinn­flytj­andi lands­ins.

Olaf Scholz forsætisráðherra Þýskalands og leiðtogi Sósíaldemókrata.
Olaf Scholz for­sæt­is­ráð­herra Þýska­lands og leið­togi Sós­í­alde­mókrata. Mynd: EPA

Þeim sem fylgj­ast með þýskum hag­tölum svelgd­ist eflaust sumum á morg­un­kaff­inu í morgun, er í ljós kom að fram­leiðslu­verðs­vísi­talan, sem gefur til kynna breyt­ingar á fram­leiðslu­kostn­aði í þýskum iðn­aði, reis um heil 7,9 pró­sent á milli mán­aða og er nú 45,8 pró­sentum hærri en í ágúst­mán­uði í fyrra.

Í frétta­til­kynn­ingu frá þýsku hag­stof­unni segir að hækkun vísi­töl­unnar á 12 mán­aða tíma­bili hafi aldrei verið meiri en nú mælist og að sömu­leiðis hafi hækk­unin á milli mán­aða aldrei verið meiri.

Samkvæmt umfjöllun Reuters-frétta­stof­unnar kom hækk­unin á óvart, en grein­endur höfðu búist við því að vísi­talan hækk­aði um 1,6 pró­sent á milli mán­aða og að 12 mán­aða hækkun yrði rúm 37 pró­sent. Annað kom á dag­inn.

Orkuverð 139 prósent upp á milli ára

Orku­verðið í Þýska­landi er stærsta breytan sem vegur til hækk­unar fram­leiðslu­verðs­vísi­töl­unnar, en ef orku­verðið væri ekki inni í vísi­töl­unni næmi hækk­unin ein­ungis 14 pró­sentum frá fyrra ári.

Orku­verðið hefur meira en tvö­fald­ast frá fyrra ári og nemur hækkun frá því í ágúst í fyrra nú 139 pró­sentum heilt yfir. Verð á raf­orku vegur þungt inn í þá vísi­tölu, og er sagt skýra hina óvæntu hækkun vísi­töl­unnar, en raf­orku­verð er nú 174,9 pró­sentum hærra en það var í ágúst 2021 og hækkar um rúm 20 pró­sent á milli mán­aða.

[adspot]

Þessi mikla hækkun á raf­orku nær þó ekki upp í þær miklu hækk­anir sem orðið á jarð­gasi, en jarð­gas til dreif­ingar hefur hækkað í verði rúm 209 pró­sent frá því í ágúst í fyrra og það jarð­gas sem selt er til orku­vera og iðn­aðar enn meira.

Á sama tíma hafa jarð­efna­eld­neyt­is­af­urðir hækkað um 37 pró­sent frá því í ágúst í fyrra, en verð á þeim lækk­aði um 3,2 pró­sent á milli mán­aða.

Ríkisstjórnin hyggst þjóðnýta Uniper

Jarð­gasinn­flytj­endur í Þýska­landi hafa átt erfitt upp­dráttar und­an­farna mán­uði og hefur hið opin­bera þurft að stíga inn í til þess að fyr­ir­tækin geti haldið rekstri sínum gang­andi. Að und­an­förnu hefur verið sagt frá þreif­ingum þýsku rík­is­stjórn­ar­innar um að þjóð­nýta stærstu fyr­ir­tækin í þessum geira.

Bloomberg segir frá í dag því að þýska stjórnin sé búin að kom­ast að sam­komu­lagi um þjóð­nýt­ingu Uniper, sem er stærsti inn­flytj­andi lands­ins á jarð­gasi. Þar sem að flæði gass frá Rúss­landi hefur farið minnk­andi hefur fyr­ir­tækið verið að tæta í gegnum sjóði sína til þess að kaupa gas á mark­aði til handa þýskum við­skipta­vinum og nú er svo komið að félagið, sem er í eigu finnska félags­ins Fortum, er á barmi gjald­þrots.

Í frétt Bloomberg var vísað til heim­ilda um að bráða­birgða­sam­komu­lag hefði náðst, en frétta­stofa Reuters fékk þau svör frá efna­hags­ráðu­neyti lands­ins að við­ræður væru enn í gangi. „Þegar þeim lýkur, munum við láta ykkur vita,“ sagði í svari ráðu­neyt­is­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár