Dimmir yfir Danmörku

Danir standa frammi fyrir erf­iðum ákvörð­unum um hvernig hægt sé að draga úr orku­notkun og lækka raf­magns­reikn­ing­inn. Versl­anir og hótel hafa þegar riðið á vaðið og gefið út að jóla­skreyt­ing­arnar verði hóg­vær­ari í ár.

Hótel d‘Angleterre hefur í árafjöld verið prýtt einstaklega mörgum og fallegum jólaljósum. Nú verður breyting þar á.
Hótel d‘Anglet­erre hefur í ára­fjöld verið prýtt ein­stak­lega mörgum og fal­legum jóla­ljósum. Nú verður breyt­ing þar á.

Heilu veggirnir þakktir ljósum. Blikk­andi sem skipta litum. Risa­stórar jóla­bjöllur og ljósakrónur sem hæfa myndu höllum kon­unga. Vélrænir jóla­sveinar sem bugta sig og beygja og reka jafn­vel upp hrossa­hlátur: Hó, hó, hó!

Jólin eru hátíð ljóss og friðar segir ein­hvers staðar. Frið­ur­inn er úti í Úkraínu, þökk sé Rússum, og það hern­að­ar­brölt hefur nú leitt til gríð­ar­legra verð­hækk­ana á hvers kyns orku í Evrópu. Gas­reikn­ing­ur­inn hefur marg­fald­ast, enda rúss­neskt gas frekar látið flæða til Kína og því af skornum skammti – og rán­dýrt – í Evrópu. Þetta hefur dómínóá­hrif á allt orku­kerfið: Meira raf­magn frá ann­ars konar orku­gjöfum þarf að nota til hvers lags hluta. Og það er ekki óþrjót­andi og hin mikla eft­ir­spurn hefur skotið verð­inu upp í hæstu hæðir.

Við þessu reyna nú stjórn­völd í ríkjum Evrópu að bregð­ast. Rætt er um verð­þök og fleira þar fram eftir göt­unum, enda myndi orku­reikn­ing­ur­inn ann­ars sliga heim­ili, ýta þús­undum inn í fátækt.

[adspot]

Danir, sem eru innan Evr­ópu­sam­bands­ins, hafa ekki farið var­hluta af orku­krepp­unni, eins og hún er kölluð. Kreppu sem mun aðeins harðna er líður á vet­ur­inn. Stjórn­völd ræða við­brögð, nið­ur­greiðslur og verð­þök, en almennir borg­arar og fyr­ir­tæki velta fyrir sér hvernig þau geti sparað orku. Hvernig þau geti lækkað sína reikn­inga en einnig gert sitt til að eft­ir­spurnin minnki – sem aftur gæti almennt lækkað verðið.

Þrátt fyrir að enn séu 102 dagar til jóla hafa nokkrar versl­anir, versl­un­ar­mið­stöðvar og hótel ákveðið að kveikja ekki á íburð­ar­miklum jóla­skreyt­ingum sem síð­ustu ár hafa í hugum margra verið tákn­rænar fyrir hátíð­ina. Það verður því að öllum lík­indum ekki eins bjart yfir Danmörku um næstu jól.

[links]Eigendur Salling, sem eru dæmi­gerðar fata- og snyrti­vöru­versl­anir í bæði Álaborg og Árósum, ætla ekki að kveikja á sínum þekktu jóla­ljósum. Sömu sögu er að segja um eig­endur Magasin sem reka sjö versl­anir víðs­vegar um landið. Og þá hefur Hótel d‘Anglet­erre í Kaup­manna­höfn ákveðið að gera slíkt hið sama. Signe Thorup, upp­lýs­inga­full­trúi hót­els­ins, segir þetta gert af einni ástæðu: Til að spara orku. „Þetta er ákvörðun sem okkur fannst erfitt að taka. En hún er sú rétta miðað við þær aðstæður sem nú eru uppi.“

Rekstr­ar­að­ilar Tívolís­ins í Kaup­manna­höfn segja að jól­unum verði ekki aflýst þótt reynt verði að ganga eins hægt og þeir telja unnt í orku­sparn­aði. „Þið erum alltaf að end­ur­skoða þessi mál og núna erum við til dæmis að skoða hvort að hægt verði að draga úr birtu­magn­inu,“ segir Torpen Plank, upp­lýs­inga­full­trúi tívolís­ins. Í gildi séu enn­fremur góðir samn­ingar við raf­orku­sala svo að höggið verður ekki eins þungt fyrir skemmti­garð­inn og ann­ars hefði orðið. Í lok næsta árs sé svo stefnt að því að stór hluti af raf­magni sem garð­ur­inn þarfn­ast komi frá sól­ar­orku.

Og almenn­ingur er líka til­bú­inn að færa fórnir í ástand­inu, jafn­vel þótt það þýði minni birtu í dimmasta skamm­deg­inu. Fredens­gade í bænum Hinnerup á Jótlandi hefur verið rómuð fyrir jóla­skreyt­ingar í ald­ar­fjórð­ung. Íbúar við göt­una taka sig ávallt saman og setja upp stór­kost­lega jóla­ljósa­sýn­ingu. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um að hverfa frá þess­ari rót­grónu hefð en hins vegar segir einn íbú­anna í sam­tali við Danska rík­is­út­varpið að hann telji að skreyt­ing­arnar ættu að vera lág­stemmd­ari þessi jólin. „Ég per­sónu­lega velti því fyrir mér hvort maður geti leyft sér að eyða svona miklum pen­ingum í þetta núna þegar það eru margar fjöl­skyldur í vanda vegna hækk­andi orku­reikn­inga.“ Hann segir að allir verði að leggj­ast á eitt og að það muni jafn­vel þýða að stóru ljósa­sýn­ing­unni í Fredens­gade verði aflýst þetta árið.

Íbúar við Angola­veg í Amager í Kaup­manna­höfn hafa þegar ákveðið að draga veru­lega úr upp­setn­ingu jóla­ljósanna. Sú gata hefur lengi keppt við Fredens­gade um mest skreyttu götu Dan­merkur. „Angola­vegur verður ekki sjálfum sér líkur þessi jólin,“ segir einn íbú­inn við DR. „Við ætlum að draga mjög úr skreyt­ingum.“

Jóla­ljósin voru kannsi orðin yfir­drifin, myndu ein­hverjir segja, og orku­sóun sem þeim fylgir mikil. En orku­sóun á sér víðar stað, m.a. í mat­vöru­versl­unum. Opnir kælar þurfa t.d. mun meira raf­magn en lok­aðir. For­svars­menn versl­un­ar­keðj­unnar Coop hafa bent á að með því að setja hurðir á kæl­ana sparist 40 pró­sent orka. Nú þegar orku­reikn­ing­arnir hafa hækkað mikið eru sífellt fleiri versl­anir að taka þessi mál til end­ur­skoð­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár