Minni útgjöld í húsnæðismál þrátt fyrir framboðsskort

Samkvæmt stjórn­völdum er fram­boðs­skortur á hús­næð­is­mark­aði sem mik­il­vægt er að koma í veg fyrir. Hins vegar hyggst rík­is­stjórnin ætla að draga úr stuðn­ingi sínum í hús­næð­is­málum, ef tekið er til­lit til verð­bólgu.

Rík­is­stjórnin segir að auka þurfi fram­boð íbúða til að mæta upp­safn­aðri og fyr­ir­sjá­an­legri þörf á hús­næð­is­mark­aði. Þrátt fyrir það munu opin­ber fram­lög til hús­næðis- og skipu­lags­mála, sem veitt eru til að tryggja fram­boð íbúða fyrir við­kvæma hópa, drag­ast saman um átta pró­sent að raun­virði á næsta ári. Þetta kemur fram í nýrri fjár­mála­á­ætlun rík­is­stjórn­ar­innar, sem kom út á þriðju­dag­inn.

Vilja tryggja öruggt framboð

Samkvæmt áætl­un­inni gegnir hús­næð­is­stuðn­ingur hins opin­bera mik­il­vægu hlut­verki í að tryggja fram­boð íbúða hvort sem er til eignar eða leigu fyrir við­kvæma hópa á hús­næð­is­mark­aði. Við­var­andi skortur á hús­næði leiði til óstöð­ug­leika í efna­hags­stjórn og verð­hækk­ana, en það hafi nei­kvæð áhrif á fjár­hag heim­il­anna.

Stjórn­völd segja það vera mik­il­vægt að bæta aðstæður á hús­næð­is­mark­aði, en til þess hafi verið skip­aður starfs­hópur, sem á meðal ann­ars að fjalla um leiðir til að auka fram­boð á hús­næði. Á meðal aðgerða sem koma til skoð­unar eru stofn­fram­lög til óhagn­að­ar­drif­inna hús­næð­is­fé­laga, en einnig stuðn­ingur til félags­legra eignar- og kaup­leigu­í­búða.

Dregið úr stuðningi

Fyrir tveimur árum síðan námu heild­ar­út­gjöld í hús­næðis- og skipu­lags­mál 15,8 millj­örðum á núver­andi verð­lagi. Á mynd hér að neðan er stuðn­ingur síð­ustu ára bor­inn saman við væntan stuðn­ing á næstu árum, miðað við útgjald­ara­mmann í fjár­mála­á­ætl­un­inni, en líkt og sést á henni henni nemur hann 16,3 millj­örðum króna í ár.

Á næstu árum verða svo fjár­heim­ild­irnar til nefnd­ar­sviðs­ins tæp­lega 15 millj­arðar króna að raun­virði, en það er sam­dráttur sem jafn­gildir rúmum átta pró­sentum frá útgjöldum þessa árs.

Vonar að áætluninni verði kastað út í hafsauga

Jóhann Páll Jóhanns­son þing­maður Sam­fylk­ing­ar­innar vakti athygli á minnk­andi stuðn­ingi rík­is­stjórn­ar­innar til hús­næð­is­mála á Alþingi á þriðju­dag­inn, en þar sagði hann að rík­is­stjórnin ætl­aði að lækka stofn­fram­lög til almenna íbúða­kerf­is­ins um tvo millj­arða króna. Með því væri hún að fram­kalla sam­drátt í fram­boði af félags­legu hús­næði með handafli.

Samkvæmt Jóhanni er þessi sam­dráttur „algjör­lega úr takti við það sem hefur lagt hér upp með og það sem var talað um í kosn­inga­bar­átt­unni í haust,“ líkt og mbl.is greinir frá. „Ég vona að þess­ari fjár­mála­á­ætlun verði nú bara kastað eitt­hvert út í hafs­auga og ný lögð fram,“ sagði hann einnig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár