Erfitt að vinna gegn orkuverðshækkunum

Vonir standa til um að nýtt sam­komu­lag á milli Evr­ópu­sam­bands­ins og Banda­ríkj­anna um við­skipti á jarð­gasi ásamt meiri olíu­fram­leiðslu vest­an­hafs­muni lægja öld­urnar á orku­mörk­uðum. Hins vegar er fram­tíð­ar­þró­unin bundin mik­illi óvissu.

Heims­mark­aðs­verð á olíu og jarð­gasi hefur tekið miklum sveiflum í kjöl­far inn­rásar Rúss­lands í Úkraínu. Verðið hækk­aði skarpt á fyrstu dögum stríðs­ins, en hefur svo lækkað aftur að hluta til, eftir að Banda­ríkin og aðrir orku­fram­leið­endur til­kynntu að þau ætl­uðu að fram­leiða meiri olíu og selja jarð­gas til Evr­ópu­ríkja.

Þrátt fyrir það virð­ast verð­sveifl­urnar ekki vera á und­an­haldi, en sér­fræð­ingar telja að orku­verðið geti hækkað enn frekar í fram­tíð­inni vegna flösku­hálsa og óvissu um áfram­hald stríðs­ins.

Meiri útflutningur og framleiðsla

BBC greindi frá því síð­ast­lið­inn föstu­dag að Banda­ríkin hefðu náð sam­komu­lagi náð við Evr­ópu­sam­bandið um auk­inn útflutn­ing á jarð­gasi. Samkvæmt því munu Banda­ríkin, ásamt öðrum ríkjum,flytja um 15 millj­arða rúmmetra af jarð­gasi auka­lega til Evrópu í ár, til við­bótar við 22 millj­arða rúmmetra sem sam­bandið flutti inn frá þeim í fyrra.

Samn­ing­ur­inn er kær­kom­inn fyrir Evr­ópu­sam­bandið, sem stefnir að því að draga úr þörf sinni á inn­flutn­ingi gass frá Rúss­landi vegna inn­rás­ar­innar. Aukinn inn­flutn­ingur á jarð­gasi frá öðrum löndum er liður í þeirri áætlun, en sam­bandið hyggst einnig ætla að auka fjár­fest­ingar sínar í grænum orku­gjöfum.

Banda­ríkja­stjórn hefur einnig þrýst á olíu­fyr­ir­tæki þar í landi að auka fram­leiðslu sína eftir að heims­mark­aðs­verðið á hrá­olíu fór upp í met­hæðir fyrr í mán­uð­inum. Önnur olíu­fram­leiðslu­lönd, líkt og Sam­ein­uðu arab­ísku fursta­dæmin og Sádi Arabía, hafa einnig til­kynnt að þau munu bregð­ast við þessum verð­hækk­unum með meiri fram­leiðslu.

Líkt og sést á mynd að ofan hefur heims­mark­aðs­verð hrá­olíu, ásamt verð á jarð­gasi á evr­ópskum mörk­uðum, lækkað nokkuð á allra síð­ustu dögum. Þó er verðið enn langt frá því sem það var í byrjun árs.

Flöskuhálsar og óvissa um stríðið

Þó er óvíst hversu mikil áhrif þessi við­brögð munu hafa á orku­verð til lengri tíma. Líkt og kemur fram í frétt BBC jafn­gildir umsam­inn auka­inn­flutn­ingur Evr­ópu­sam­bands­ins á jarð­gasi frá Banda­ríkj­unum í ár ein­ungis tíu pró­sentum af því magni jarð­gass sem það flytur inn frá Rúss­landi.

Til lengri tíma stefna Banda­ríkin þó að auka gas­út­flutn­ing sinn enn meira, en efa­semdir eru uppi um hversu mikið þau geta aukið fram­leiðslu sína.

Svipaðar efa­semdir eru uppi um fram­leiðslu Banda­ríkj­anna á olíu, en sam­kvæmt frétt Financial Times eru flösku­hálsar byrj­aðir að mynd­ast í olíu­fram­leiðslu þar í landi. Mið­ill­inn segir flösku­háls­ana vera marg­þætta, erfitt hafi reynst að fá rétt aðföng fyrir fram­leiðsl­una í tæka tíð, en einnig séu vanda­mál með að finna starfs­fólk.

Aðrir sér­fræð­ingar hafa einnig bent á að verðið gæti hækkað enn meira vegna óvissu um fram­gang stríðs­ins til lengri tíma. Nadia Wiggen, orku­sér­fræð­ingur hjá norska fyr­ri­tæk­inu Pareto, seg­ist í sam­tali við Dagens Nær­ingsliv telja að fjár­festar hafi ekki að fullu tekið slíka óvissu með inn í reikn­ing­inn.

Samkvæmt Wiggen gæti stríðið varað mun lengur en vonir standa um þessa stund­ina og gæti það hækkað verðið á olíu og jarð­gasi á næstu árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár