„Sporin hræða“

Þing­maður Vinstri grænna segir ljóst að nátt­úran megi sín oft lít­ils þegar almanna­hags­munir eru taldir í gíga­vöttum.

Jódís Skúladóttir þingmaður VG.
Jódís Skúla­dóttir þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Jódís Skúla­dóttir þing­maður Vinstri grænna fjall­aði um orku- og umhverf­is­mál undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag. Hún sagði meðal ann­ars að orku­stefna sem byggir á fram­boði og eft­ir­spurn væri full­kom­lega óseðj­andi og að for­gangs­raða ætti „íslenskri grænni orku til orku­skipta og íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja“.

Hóf hún ræðu sína á að benda á að und­an­farið hefði verið hávær umræða um orku­þörf Íslend­inga til nán­ustu fram­tíðar.

„Þær myndir sem dregnar eru upp eru flestar á einn veg; að virkja meira, hraðar og betur. Aukinni orku­þörf þarf þó að mæta af skyn­semi. Við þurfum að velja vel þá kosti sem best fara saman við nátt­úru­vernd, kynna okkur nýja mögu­leika og fram­farir í orku­málum. Sporin hræða og ljóst að nátt­úran má sín oft lít­ils þegar almanna­hags­munir eru taldir í gíga­vöttum,“ sagði hún.

Röskun vegna Kárahnjúka mestu náttúruspjöll sem orðið hafa hér á landi

Rifjaði Jódís upp að þann 30. nóv­em­ber árið 2007 hefði Kára­hnjúka­virkjun verið form­lega gang­sett.

„Jökulsá á Dal var virkjuð með þremur stíflum, Kára­hnjúka­stífla stærst þeirra, rúmir 200 metrar á hæð. Þá var talað um að ekki þyrfti að virkja framar á Aust­ur­landi, að ósnortin víð­erni önnur en þau sem fór undir Hálslón yrðu látin vera.

Nú 15 árum seinna eru uppi virkj­un­ar­á­form vegna Geit­dals­virkj­unar í Skriðdal í Múla­þingi, hug­mynd sem hingað til hefur verið umdeild í ljósi þess að hún stendur utan þess hluta hrauna­svæðis sem raskað var vegna Kára­hnjúka, mestu nátt­úru­spjalla sem orðið hafa af manna völdum hér á Íslandi,“ sagði hún.

Náttúra Íslands undir 57 ferkílómetra miðlunarlóni – ekki hagsmunir bandarískra álfyrirtækja

Þá telur Jódís það skjóta skökku við að áformin hafi komið fram á sama tíma og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra fól óbyggða­nefnd að gera til­lögur að þjóð­lendum á Aust­ur­landi þar sem Geit­dalsá rennur og að hluti áætl­aðs fram­kvæmda­svæðis sé innan mið­há­lend­is­línu.

„Orku­um­ræðan gengur að miklu leyti út á að hér séu allir virkj­un­ar­kostir grænir, að Ísland geti og beri til þess skylda gagn­vart lofts­lags­vánni að fram­leiða eins mikið af orku og mögu­legt er. Þá er mik­il­vægt að muna að það er nátt­úra Íslands sem er undir 57 fer­kíló­metra miðl­un­ar­lóni Kára­hnjúka, ekki hags­munir banda­rískra álfyr­ir­tækja. Þá er mik­il­vægt að muna að Kára­hnjúkar áttu að duga Aust­ur­landi fyrir orku um ókomna tíð.

Höfum það til höfða­lags að orku­stefna sem byggir á fram­boði og eft­ir­spurn er full­kom­lega óseðj­andi. For­gangs­röðum íslenskri grænni orku til orku­skipta og íslenskra heim­ila og fyr­ir­tækja,“ sagði hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár