Steypibaðið getur kostað Norðmenn þúsundkall

Raf­magns­reikn­ing­ur­inn syðst í Noregi hefur hækkað gríð­ar­lega á skömmum tíma. Orku­krísan sem hrjáir meg­in­land Evrópu hefur haft áhrif en aðrar skýr­ingar er einnig að finna.

Mun lægra er í uppistöðulónum á stórum svæðum í Noregi en yfirleitt er á þessum árstíma.
Mun lægra er í uppi­stöðu­lónum á stórum svæðum í Noregi en yfir­leitt er á þessum árs­tíma. Mynd: Statskraft.no

Noregur, þar sem olía er unnin, vind­ur­inn beisl­aður og árnar sömu­leiðis, stendur frammi fyrir tölu­verðum vanda sem teng­ist hinni umtöl­uðu orku­krísu í Evrópu. Verðið á kílóvatt­stund af raf­magni kostar nú 6,4 norskar krónur, um 93 íslenskar syðst í land­inu sem þýðir að ein sturta, eitt gott steypi­bað, getur kostað um 1.000 íslenskar krónur. Það er álíka mikið og stök sund­ferð kostar í laug­arnar í Reykja­vík.

En af hverju eru Norðmenn, þjóðin sem vinnur meiri orku en flest öll ríki ver­aldar, í vanda?

[adspot]

Í grein sem birt var á vef norska rík­is­út­varps­ins í dag er bent á að á tíma­bil­inu 24. júlí til 24. ágúst kost­aði kílóvatt­stund (kWst) af raf­magni á meg­in­landi Evrópu að með­al­tali 50 íslenskar krónur. Á sama tíma­bili var með­al­verðið í Noregi 25,5 krónur. Þannig greiddu Norðmenn að með­al­tali helm­ingi minna fyrir kílóvatt­stund­ina en íbúar innan ESB í sumar. Hins vegar er raf­magn syðst í Noregi miklu dýr­ara.

Mikill munur er á raf­magns­kostn­aði nyrst í Noregi og syðst. Í sumar var verðið á kílóvatt­stund­ina t.d. 278 sinnum dýr­ara í Krist­i­ans­and en í Tromsø. Síðustu daga hefur hins vegar orku­verðið syðst hækkað gríð­ar­lega og nálg­ast hæstu verð sem greidd eru í Evrópu. Ítalía trónir þó enn á toppnum í þessum efnum.

Í sam­an­tekt NRK er hins vegar bent á að Norðmenn greiði hlut­falls­lega mun minna af tekjum sínum í raf­magn en flestallir Evr­ópu­búar. En af því að raf­magn er ódýrt nota Norðmenn gríð­ar­lega mikið af því, meira en flestir. Í fyrra var notk­unin að með­al­tali 23 þús­und kílóvatt­stundir á hvern íbúa. Með­al­talið á meg­in­landi Evrópu var á sama tíma um 6.000 kWst.

[links]Ein helsta ástæða þess að orku­krísa hefur skap­ast í Noregi er sú að uppi­stöðu­lón vatns­afls­virkj­ana standa enn hálf tóm eftir sum­arið. Langstærstur hluti raf­magns er fram­leiddur í slíkum virkj­unum. Þurrka­tíð hefur geisað þótt ekki sé enn öll nótt úti í því sam­bandi – vot­viðra­samt haust gæti bjargað miklu.

En þetta er ekki eina skýr­ingin.

Því er þannig fyrir komið í Noregi að syðsti hluti raf­orku­kerf­is­ins er tengdur við meg­in­land Evrópu. Það þýðir að fram­leið­endur raf­magns geta selt raf­magnið til hæst­bjóð­anda.

Þurrkar og stríðið í Úkraínu hafa gert það að verkum að verð á jarð­gasi, vatns­orku og kjarn­orku – orku­gjöfum sem sam­an­lagt eru not­aðir til að fram­leiða meira en 50 pró­sent af allri raf­orku í Evrópu – hafa hækkað í verði. Orkuverð er því í sögu­legum hæðum í álf­unni og Noregur verður einnig fyrir áhrifum af fram­an­greindum ástæðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár