Segir gæði vísindastarfs á Landspítala hafa hrakað á síðustu árum

Pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands segir að öfug­þróun hafi átt sér stað í vís­inda­starfi á Land­spít­ala eftir að hann var gerður að háskóla­sjúkra­húsi árið 2000, og að ekk­ert skil­greint fjár­magn hafi feng­ist til að sinna því.

Magnús Gottfreðsson, prófessor við læknadeild Háskóla Íslands.
Magnús Gott­freðs­son, pró­fessor við lækna­deild Háskóla Íslands. Mynd: HÍ/Kristinn Ingvarsson

Gæðum vís­inda­legra birt­inga frá Land­spít­al­anum og stöðu klínískra heil­brigð­is­vís­inda í Háskóla Íslands hefur hrakað eftir að spít­al­inn varð að háskóla­sjúkra­húsi um alda­mótin. Á sama tíma hefur ekk­ert skil­greint fjár­magn runnið til að sinna upp­bygg­ingu vís­inda­starfs og nýsköp­unar af hálfu eig­enda spít­al­ans. Þetta skrifar Magnús Gott­freðs­son, pró­fessor í lækna­deild Háskóla Íslands, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út á föstu­dag­inn.

Stóð vel að vígi um aldamótin

Í grein sinni fer Magnús yfir nið­ur­stöðum grein­ingar sem nor­ræna stofn­unin Nor­d­Forsk fram­kvæmdi á fram­leiðni og gæði rann­sókna á Norð­ur­löndum. Samkvæmt þeim minnk­uðu gæði vís­inda­legra birt­inga á Land­spít­al­anum á tíma­bil­inu 1999-2014, en þau voru mæld eftir fjölda til­vitn­ana sem birt­ing­arnar fengu.

Samkvæmt Magnúsi stóðu spít­al­arnir þrír sem mynd­uðu síðan Land­spít­ala vel að vígi í þessum mála­flokki undir lok síð­ustu aldar, en um alda­mótin var vís­inda­legt fram­lag hins nýsam­ein­aða Land­spít­ala mest í hópi sex háskóla­sjúkra­húsa á Norð­ur­lönd­unum sem voru til skoð­unar. Magnús segir einnig að klínísk heil­brigð­is­vís­indi hafi verið eitt sýni­leg­asta tromp Háskóla Íslands á erlendum vett­vangi, ásamt jarð­vís­indum.

Í botnsætið á 15 árum

Eftir sam­ein­ingu hafi staða Land­spít­al­ans hins vegar versnað, en sam­kvæmt nið­ur­stöðum Nor­d­forsk voru gæði vís­inda­birt­inga þar mun minni en á hinum háskóla­sjúkra­húsum á Norð­ur­lönd­unum sem voru til skoð­unar árin 2011-2014.

Magnús bendir á að staða klínískra vís­inda innan stærsta sam­starfs­að­ila spít­al­ans, Háskóla Íslands, sé mjög háð því að spít­al­inn geti risið undir nýsköp­unar- og vís­inda­hlut­verki sínu. Ef miðað er við alþjóð­lega sam­an­burð­ar­lista Times Higher Education á háskólum hefur sú staða versnað til muna innan háskól­ans á síð­ustu árum, á meðan gæði ann­arra fags­viða hafi nokkurn veg­inn staðið í stað.

„Það tekur langan tíma að byggja upp vís­inda­starf og nýsköpun, en fjár­fest­ing í þessum mála­flokki er skyn­sam­leg ráð­stöfun af mörgum ástæðum,“ skrifar Magnús í grein­inni sinni. „Ekkert skil­greint fjár­magn hefur runnið til að sinna þessu lög­bundna hlut­verki af hálfu eig­anda spít­al­ans og sam­legð­ar­á­hrifin sem urðu til við sam­ein­ing­una fyrir 20 árum voru tekin út úr starf­sem­inni í stað þess að byggja upp vís­indi og nýsköpun,“ bætir hann við.

Hægt er að lesa grein Magnúsar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár