Verðbólgan gæti aukist aftur á næsta ári

Erfitt gæti reynst að stöðva þensl­una í íslensku efna­hags­lífi eftir að far­aldr­inum lýkur, sam­kvæmt nýrri hag­spá Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands.

Búast má við hraðri lækkun atvinnuleysis þegar ferðamenn koma hingað aftur, samkvæmt Hagfræðistofnun HÍ.
Búast má við hraðri lækkun atvinnu­leysis þegar ferða­menn koma hingað aftur, sam­kvæmt Hag­fræði­stofnun HÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Sigurður Jóhann­es­son, for­stöðu­maður Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands, býst við að meg­in­vextir Seðla­bank­ans hækki í 2 pró­sent eftir að sótt­varn­ar­að­gerðum á landa­mær­unum verður aflétt. Samkvæmt honum gæti skamm­tíma­verð­bólga vaxið frekar hratt á fyrstu mánauðum árs­ins 2022, þar sem þensla gæti mynd­ast í efna­hags­líf­inu sem væri erfitt að stöðva.

Þetta segir Sigurður í nýj­ustu hag­spá Hag­fræði­stofn­un­ar­innar, sem birt­ist í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar, en þar fer hann yfir vænta þróun verð­lags, gengis og atvinnu­leysis á næstu mán­uðum.

Enn lítil eftirspurn eftir krónum

Samkvæmt Sigurði hefur Seðla­bank­inn verið umsvifa­mik­ill á gjald­eyr­is­mark­aði síðan í fyrra­sumar, en veik­ing krón­unnar hefur verið lítil síðan þá. Frá ágúst í fyrra til febr­ú­ar­mán­aðar keypti bank­inn tæp­lega helm­ing allra króna sem voru til sölu á gjald­eyr­is­mark­aði. Í febr­úar sagð­ist bank­inn svo ætla að draga úr tíðni og umfangi reglu­bund­innar gjald­eyr­is­sölu, en gæti látið til sín taka á gjald­eyr­is­mark­aði ef hann telur þörf á því.

Sigurður segir ekki víst hvort mikil stefnu­breyt­ing sé boðuð með þess­ari yfir­lýs­ingu, þar sem almenn eft­ir­spurn eftir krónum muni senni­lega ekki aukast að neinu ráði fyrr en landið verði opnað aftur fyrir ferða­mönnum.

Verðbólga gæti aukist aftur á næsta ári

Í hag­spánni er búist við að árs­verð­bólga fari undir 4 pró­senta mörkin í maí og lækki jafnt og þétt til árs­loka. Þó segir Sigurður að miklar launa­hækk­anir ýti verð­lag­inu upp, en vax­andi atvinnu­leysi haldi aftur af verð­hækk­unum fram á sumar. Þegar landið opn­ast svo aftur fyrir ferða­mönnum er svo búist við að krónan styrk­ist, sem dragi úr verð­bólgu.

Hins vegar bætir Sigurður við að erfitt gæti verið að stöðva þensl­una sem fer af stað þegar landið verður opnað. Skamm­tíma­verð­bólga gæti því vaxið frekar hratt á fyrstu mán­uðum árs­ins 2022.

Náttúrulegt atvinnuleysi í nóvember

Spá Hag­fræði­stofn­unar um þróun atvinnu­leysis byggir á tölum Hagstofu. Sigurður bætir þó við að ljóst sé að Hag­stofan hafi van­metið skráð atvinnu­leysi, þar sem illa gengur að ná í fólk sem hefur aðeins verið á land­inu í skamma hríð. Aftur á móti segir Sigurður að Hag­stofan noti sömu aðferðir og stuðst er við í flestum öðrum löndum og því sé rétt að styðj­ast við tölur hennar í alþjóð­legum sam­an­burði.

Hag­fræði­stofnun gerir ráð fyrir auknu atvinnu­leysi fram á vor, en að það minnki síðan hratt í sumar líkt og venjan er og minnki svo enn frekar eftir að ferða­menn taka aftur að streyma hingað. Ef spáin er rétt verður mælt atvinnu­leysi komið niður fyrir fjögur pró­sent í nóv­em­ber á þessu ári, en það er stigið sem Hag­fræði­stofnun telur vera nátt­úru­legt atvinnu­leysi hér á landi.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár