Gylfi: „Þeir sem fara með straumnum gleymast með straumnum“

Gylfi Zoega segir stjórn­mála­menn þurfa að sýna stað­festu í sótt­vörnum í stað þess að reyna að afla sér vin­sælda með því að slaka á þeim of snemma.

Gylfi Zoega, hagfræðiprófessor við Háskóla Íslands
Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands Mynd: Kristinn Ingvarsson/HÍ

Best væri að halda hóf­legum en stöð­ugum sótt­vörnum innan lands þangað til þjóðin hefur verið bólu­sett gegn COVID-19, að mati Gylfa Zoega, hag­fræði­pró­fess­ors í HÍ. Samkvæmt honum er hætta á að of mikið verði slakað á vörnum innan lands vegna löng­unar stjórn­mála­manna til vin­sælda.

Þetta skrif­aði Gylfi í grein sinni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út síð­asta föstu­dag, en í henni fór hann yfir mik­il­vægi stað­festu stjórn­mála­manna í yfir­stand­andi far­aldri.

Sóttvarnir eins og skattur

Gylfi segir að hægt sé að líta á sótt­varn­ar­að­gerðir sem ákveðna teg­und af skatt­heimtu í inn­lenda efna­hags­starf­semi, þar sem þær koma sumum illa en bæta almanna­hag. Skattar auka kostnað við við­skipti, neyt­endur greiða hærra verð, fyr­ir­tæki fá minni tekjur og umfang við­skipta dregst saman. Þessi nei­kvæðu áhrif verði meiri eftir því sem skatt­arnir eru hærri.

Kostn­að­ur­inn sem fylgir skatta­hækk­unum segir Gylfi vera ástæðu þess að hag­kvæmt sé að hafa skatta­pró­sentur stöðugar yfir tíma. Það sé ekki hag­kvæmt að hafa lága skatta eitt árið og svo háa skatta næsta árið, þar sem háu skatt­arnir drægju of mikið úr efna­hags­starf­semi.

Með sömu rökum segir Gylfi að hægt sé að halda því fram að best sé að hafa hóf­legar en sem stöðugastar sótt­varnir inn­an­lands þangað til þjóðin hefur verið bólu­sett gegn veirunni. Stöð­ug­leiki hjálpi ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum að aðlaga sig að þeim reglum sem í gildi eru, en lít­ill fyr­ir­sjá­an­leiki með aðgerðir fram­tíðar bitnar illa á efna­hags­líf­inu.

Ásókn í vinsældir skapi hættu

Hins vegar er hætta á að stjórn­mála­menn slaki of hratt á sótt­vörnum inn­an­lands, þar sem slíkar aðgerðir gætu verið vin­sælar meðal almenn­ings, að mati Gylfa. Hann segir þessa hættu vera ástæðu þess að stjórn­völd hafi falið ókjörnum emb­ætt­is­mönnum óvin­sælar ákvarð­anir sem varða þjóð­ar­hag, til dæmis um vexti og pen­inga­stefnu.

„Stjórn­mála­menn sem grípa til óvin­sælla en nauð­syn­legra aðgerða sem síðar kemur í ljós að hafi verið far­sælar fá góða dóma sög­unnar,“ bætir Gylfi þó við. „Hið sama á við um emb­ætt­is­menn sem slá í borðið og gera það sem rétt er og ein­stak­linga í sam­fé­lag­inu sem sýna hug­rekki. Þeir sem fara með straumnum gleym­ast með straumnum.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár