Segir stjórnvöld geta lært af Marshall-aðstoðinni

Hag­fræð­ingur segir rík­is­stjórn­ina eiga að beita útgjöldum rík­is­sjóðs til að draga úr atvinnu­leysi og styrkja efna­hags­lífið í stað þess að reyna að lækka skuldir. Þetta segir hann í grein í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Ólafur Margeirsson, hagfræðingur.
Ólafur Mar­geirs­son, hag­fræð­ingur. Mynd: Bára Huld Beck

Yfirvöld ættu að auka opin­ber útgjöld til að auka atvinnu­þátt­töku og fram­leiðslu­getu þessa stund­ina, líkt og Banda­ríkja­stjórn gerði í lok seinni heims­styrj­aldar með Marshall-aðstoð­inni. Stefna ætti að lágu atvinnu­leysi, lágri verð­bólgu og lágum skuldum í erlendri mynt í stað þess að hafa áhyggjur af skuldum hins opin­bera í krónum. Þetta skrifar Ólafur Mar­geirs­son hag­fræð­ingur í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Samkvæmt Ólafi er engin áhætta á að skuldir rík­is­sjóðs í íslenskri krónu valdi rekstr­ar­vanda hjá rík­is­sjóði, þar sem ríkið sjálft er útgef­andi krón­unnar. Hins vegar þýði það ekki að útgjöld geti auk­ist út í hið óend­an­lega, þar sem hætta sé á að þau valdi verð­bólgu.

Sé útgjöld­unum hins vegar rétt varið, þannig að þau valdi sem minnstri verð­bólgu en dragi á sama tíma sem mest úr atvinnu­leysi, geti þau aftur á móti gert mikið gagn. Sem dæmi um slík útgjöld nefnir Ólafur Marshall-aðstoð­ina, sem skaut stoðum undir efna­hags­líf Evr­ópu­ríkja eftir síð­ari heims­styrj­öld og jók fram­leiðslu­getu þeirra.

Ólafur segir opin­bera fjár­fest­ingu geta aukið atvinnu­þátt­töku þar sem hún auki eft­ir­spurn eftir vinnu­afli, en minnki verð­bólgu­þrýst­ing til langs tíma ef fjár­fest­ingin eykur fram­leiðslu­getu. Hið sama megi segja um svo­kall­aða atvinnu­fram­boðs­trygg­ingu, sem auki fram­leiðslu­getu hag­kerf­is­ins á sama tíma og hún eykur eft­ir­spurn eftir vinnu­afli.

„Réttu mark­miðin fyrir rík­is­fjár­mála­stefn­una lúta að verð­bólgu, atvinnu­leysi og skuldum hans í erlendri mynt,“ skrifar Ólafur í grein sinni. „Ranga rík­is­fjár­mála­stefnan er sú sem fórnar mark­miðum okkar um lága verð­bólgu og lágt atvinnu­leysi til þess að ná til­gangs­lausum mark­miðum um rekstr­ar­af­gang eða ákveðið magn skulda rík­is­sjóðs að skuldum hans í íslenskri krónu með­töldum.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár