Margar ástæður fyrir því að hlutabréfaverð „poppi“

Fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland útskýrir hugs­an­legar orsakir hraðra verð­hækk­anir í kjöl­far hluta­fjár­út­boða í Kaup­höll­inni í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Hann bætir þó við að slíkar verð­hækk­anir eru alls ekki sjálf­gefnar.

Baldur Thorlacius, framkvæmdastjóri sölu- og viðskiptatengsla hjá Nasdaq Iceland.
Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland. Mynd: Nasdaq Iceland

Að með­al­tali hefur verð hluta­bréfa hækkað um 8 pró­sent í Kaup­höll­inni fyrsta dag­inn eftir frumút­boð þeirra frá árinu 2008. Ýmsar ástæður gætu legið að baki þess­arar verð­hækk­unar, til dæmis óvissa í verð­mati, kynn­ing­ar­af­sláttur, eða verð­mæta­aukn­ing. Þetta skrifar Baldur Thorlacius, fram­kvæmda­stjóri sölu- og við­skipta­tengsla hjá Nasdaq Iceland í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem kom út á föstu­dag­inn.

Frumútboðspopp

Samkvæmt Baldri eru hraðar verð­hækk­anir á fyrstu dög­unum eftir skrán­ingu á hluta­bréfa­mark­aði þekkt fyr­ir­bæri sem kallað er „frumút­boðspopp“ (e. IPO pop). Í Banda­ríkj­unum hækk­uðu bréfin að með­al­tali um 18 pró­sent í kjöl­far frumút­boðs á árunum 1980 til 2020, en á tímum net­bólunnar í kringum alda­mótin námu hækk­an­irnar að með­al­tali um 60 pró­sentum. Í fyrra var frumút­boðspoppið svo að jafn­aði 38 pró­sent vest­an­hafs.

Verð­hækk­an­irnar hafa verið nokkuð hóf­legri hér á landi frá fjár­mála­hrun­inu 2008, en á því tíma­bili hafa 18 frumút­boð verið haldin fyrir skrán­ingu í Kaup­höll­inni. Ef frá eru tekin síð­ustu tvö útboð hjá fyr­ir­tækj­unum Play og Solid Clouds hefur frumút­boðspoppið á þessu tíma­bili numið um átta pró­sentum að með­al­tali. Hæst var það um 33 pró­sent í TM árið 2013, en þar á eftir koma Íslands­banki, Arion banki og Hagar með 18-20 pró­senta verð­hækkun á eftir frumút­boði.

Hækkunin ekki sjálfgefin

Hins vegar bendir Baldur einnig á að það sé ekki sjálf­gefið að hluta­bréf hækki í verði eftir að þau séu skráð á markað og því feli slík fjár­fest­ing ekki í sér gull­tryggða ávöxtun. Um 31% af fyr­ir­tækj­unum sem fóru á markað í Banda­ríkj­unum á árunum 1980–2020 lækk­uðu í verði á fyrsta degi við­skipta eftir frumút­boð. Hér á landi lækk­uðu fast­eigna­fé­lögin Reitir, Eik , Reginn og Heima­vellir öll rétt eftir skrán­ingu þeirra, en lækk­unin nam 11 pró­sentum hjá Heima­völlum.

Baldur segir að ein­hver hækkun á hluta­bréfa­verði í kjöl­far frumút­boðs sé eðli­leg, svo lengi sem hún sé í sam­ræmi við þá verð­mæta­sköpun sem fylgi sjálfri skrán­ing­unni. Mikil óvissa fylgi því að verð­leggja fyr­ir­tæki í frumút­boði og oft sé til­hneig­ing að hafa verð­matið í lægri kant­inum, þar sem mik­il­vægt sé að laða fjár­fest­ana að. Hins vegar segir hann að eldri hlut­hafar geti setið eftir með sárt ennið ef hækk­unin er of mikil og sé því mik­il­vægt að finna ákveðið jafn­vægi í verð­mynd­un­inni.

Hægt er að lesa grein Baldurs í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár