Ýmsar ástæður fyrir því að það gæti dregist að ná fullum efnahagsbata

Már Guð­munds­son segir að það sé vand­rat­aður með­al­vegur á milli skemmri tíma verndar fyrir fyr­ir­tæki og að hamla ekki æski­legri aðlögun að nýjum aðstæðum.

Már Guðmundsson, fyrrverandi seðlabankastjóri
Már Guð­munds­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ýmislegt bendir til þess að fullur efna­hags­bati náist ekki mjög skjótt eftir að far­sótt­inni er lokið en efna­hags­bat­inn gæti orðið kröft­ugur framan af eftir að tak­mörk­unum er létt. Það helg­ast af því að þá er verið að taka í notkun vinnu­afl og fram­leiðslu­tæki sem eru ónýtt en það er fljót­legri leið til vaxtar en að skapa störf með fjár­fest­ingum í nýrri fram­leiðslu­starf­semi. Þetta skrifar Már Guð­muns­son, fyrr­ver­andi seðla­banka­stjóri í grein sinni í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem birt­ist í gær.

Samkvæmt grein Más er efna­hags­sam­drátt­ur­inn sem varð í far­aldr­inum ólíkur flestum öðrum efna­hags­sam­dráttum, þar sem hann átti hvorki rætur að rekja til efna­hags­legs ójafn­vægis í aðdrag­and­anum né eyði­legg­ingar á fram­leiðslu­getu. Þetta hafi vakið vonir um að efna­hags­bat­inn gæti orðið hraður eftir far­ald­ur­inn..

Már segir þó slíkan við­snún­ing munu óvíð­ast ganga full­kom­lega upp, þar sem fram­leiðslu­geta gæti hafa skerst a meðan á far­aldr­inum stóð. Þessi skerð­ing gæti hafa orðið vegna þess að hæfni atvinnu­lausra hafi minnkað, fram­leiðslu­tæki hafi verið flutt úr landi eða vegna þess að við­skipta­sam­bönd hafi glat­ast.

„Auk þess ýmis­legt sem bendir til þess að far­ald­ur­inn muni leiða til breyt­inga á neyslu­mynstri og skipu­lagi fram­leiðslu sem muni kalli á til­færslu fram­leiðslu­þátta og aðra aðlögun,“ segir Már. „Þá er lík­legt að var­úð­ar­sparn­aður heim­ila verði að óbreyttu meiri og fjár­fest­ing­ar­vilji fyr­ir­tækja minni á næstu árum sakir þess að kreppan hefur fært þeim þau skila­boð að umhverfi þeirra er áhættu­sam­ara en þau töldu áður,“ bætir hann við.

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár