Félagslegur hreyfanleiki minnkar hjá ungum Íslendingum

Íslenska alda­mó­ta­kyn­slóðin verður örugg­lega rík­ari en kyn­slóð for­eldra þeirra, en mögu­legt er að tæki­færum hennar verði skipt með ójafn­ari hætti.

Tekju­bilið milli ungs fólks og mið­aldra hefur auk­ist á Íslandi á síð­ustu ára­tugum, en slíka þróun má einnig sjá í Banda­ríkj­unum og á Bret­landi. Þrátt fyrir að alda­mó­ta­kyn­slóðin búi nú við hlut­falls­lega verri kjör en eldri kyn­slóðir má þó búast við að hún verði rík­ari í fram­tíð­inni, að minnsta kosti hér á landi. Hins vegar virð­ist félags­legur hreyf­an­leiki ung­menna hafa minnkað á síð­ustu ára­tugum, en það gæti skapað vanda­mál fyrir tæki­færi ungs fólks í dag.

Gamlir ríkari á Íslandi

Á vef­síðu rík­is­stjórn­ar­innar um tekju­þróun lands­ins, tekju­sagan.is, sést hvernig ráð­stöf­un­ar­tekjur 55-64 ára Íslend­inga hafa auk­ist hraðar en tekjur yngri ald­urs­hópa á síð­ustu þremur ára­tugum. Eins og sést á mynd hér að neðan jókst bilið milli þeirra fram að hruni og skrapp svo saman í krepp­unni. Á síð­ustu fimm árum hefur bilið svo auk­ist um helm­ing og er það nú nær fjórum sinnum stærra en það var árið 1991.

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, nýsköp­unar-og ferða­mála­ráð­herra, gerði grein fyrir þess­ari þróun í grein sinni í Morg­un­blað­inu fyrir tveimur vikum síðan. Þar segir hún það vera afger­andi nið­ur­stöðu í tekju­þróun síð­ustu ára að kjör eldra fólks hafi batnað tölu­vert meira en ann­arra.

Þetta er líka í sam­ræmi við nið­ur­stöður skýrslu sem Axel Hall og Friðrik Már Bald­urs­son unnu fyrir fjár­mála­ráðu­neytið árið 2016. Samkvæmt henni hefur ungt fólk dreg­ist aftur úr í tekjum síð­ustu ára­tugi á meðan eft­ir­launa­þegar hafa fremur bætt stöðu sína.

Millenials og Baby Boomers

Svipaða þróun má líka sjá ann­ars staðar á Vest­ur­löndum und­an­farna ára­tugi. Hún hefur komið skýrt fram í nið­ur­stöðum ýmissa rann­sókna auk þess sem hún hefur verið eitt af meg­in­stefjum í stjórn­mála­um­ræðu Banda­ríkj­anna og Bret­lands á síð­ustu miss­erum.

Þar er alda­mó­ta­kyn­slóðin (e. mil­leni­als), sem er að stíga sín fyrstu skref á vinnu­mark­aðnum, borin saman við hina svoköll­uðu „baby boomer“-kyn­slóð, sem nálg­ast nú eft­ir­launa­aldur.

Vegna hækk­andi náms-og fast­eigna­kostn­aðar á sama tíma og laun hafa staðið í stað og auk­ins atvinnu­leysis í kjöl­far efna­hag­skrís­unnar hafa banda­rísk og bresk ung­menni átt erfitt með að ná endum saman. Nýleg rann­sókn sýndi afleið­ingar þess­arar þró­unar svart á hvítu, en alda­mó­ta­kyn­slóðin er fyrsta kyn­slóðin á eft­ir­stríðs­árum Banda­ríkj­anna sem getur vænst þess að eign­ast minni tekjur en for­eldrar sínir um þrí­tugt.

Á sama tíma og staða ung­menna hefur versnað nýtur „baby boomer“-kyn­slóðin hins vegar sögu­legrar vel­sældar. Sú kyn­slóð var alin upp við stekrara félags­net og ódýr­ari menntun snemma á eft­ir­stríðs­ár­unum, en naut svo skatta­lækk­ana þegar hún var komin út á vinnu­mark­að­inn á átt­unda og níunda ára­tugnum. Þessir þættir, auk lægri fast­eigna­kostn­aðar og ört hækk­andi tekna, hafa gert „baby boomer“ -kyn­slóð­ina að rík­ustu kyn­slóð Banda­ríkj­anna.

[adspot]Eðlilegar skýringar

Þótt þessi vax­andi ójöfn­uður milli kyn­slóða hljómi ógn­væn­legur hafa fræði­menn fundið til­tölu­lega eðli­legar skýr­ingar á bak við hann. Efna­hags­ráð­gjafar fyrrum Banda­ríkja­for­seta, Barack Obama, bentu á þá stað­reynd að fleiri sæki sér háskóla­menntun núna sem leiðir til lægri tekna á þrí­tugs­aldri, en meiri tekju­á­vinn­ings seinna á ævinni.

Þessi athugun er í sam­ræmi við nið­ur­stöður Axels Hall og Friðriks Más um ævi­tekjur Íslend­inga. Þrátt fyrir að ung­menni byrji með hlut­falls­lega lægri laun en áður þá virð­ast þeir hækka í launum hraðar og lengur en for­eldrar sínir.

Ójöfn tækifæri

Fylgi­fiskur auk­innar mennt­unar hefur því verið lengri bið eftir hærri tekjum síðar á lífs­leið­inni, en slíkt gerir það að verkum að fólk hald­ist lengur í sömu tekju­hópum á fyrri hluta ævinnar. Þessi þróun hefur skilað sér í minni félags­legum hreyf­an­leika ungs fólks, þar sem tekjur þeirra eru í meira mæli ákvarð­aðar af for­eldrum þeirra.

Á Tekju­sögu rík­is­stjórn­ar­innar er hægt að sjá hreyf­an­leika milli tekju­hópa eftir ald­urs­hópum á síð­ustu þremur ára­tugum. Þannig er hægt að skoða hversu miklar líkur ung­menni af hverri kyn­slóð hafa átt á að kom­ast í efri tekju­hópa þegar þau verða eldri. Samkvæmt Tekju­sög­unni hefur félags­legur hreyf­an­leiki Íslend­inga minnkað tölu­vert með hverri kyn­slóð frá árinu 1991.

Sem dæmi má nefna að ein­stak­lingur sem var rúm­lega tví­tugur árið 1991 og í fátæk­asta tekju­hópnum hafði ein­ungis 8% líkur á því að vera enn í sama tekju­hópi 15 árum seinna. Fyrir sam­svar­andi hóp árið 2001 höfðu líkur hans á að hald­ast í sama tekju­hópi 15 árum seinna hins vegar auk­ist um þrjá fjórðu og voru orðnar tæp 14%.

Sömu sögu má segja um alla aðra tekju­hópa ung­menna á síð­ustu þrjá­tíu árum. Líkur þeirra á að kom­ast upp um tekju­hóp í fram­tíð­inni hafa minnkað hjá alda­mó­ta­kyn­slóð­inni, ef frá eru talin rík­ustu 20% þeirra, sem eru nú lík­legri í að halda í auð sinn eftir því sem þau verða eldri.

Mikill hreyfanleiki en fer minnkandi

[links]Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði upp­lýs­ing­arnar á vef­svæði Tekju­sög­unnar benda til þess að félags­legur hreyf­an­leiki sé mik­ill á Íslandi. Svo virð­ist vera, en Ísland hefur, ásamt öðrum Norð­ur­löndum, komið vel út í alþjóð­legum sam­an­burði í þeim málum á und­an­förnum árum.

Hins vegar er ljóst að nokkuð hefur dregið úr félags­legum hreyf­an­leika á und­an­förnum ára­tugum. Minnki hann enn frekar er hætta á að stétta­skipt­ing auk­ist hér á landi þar sem tekju­lágir hafi minni mögu­leika á að kom­ast upp um tekju­hópa og þeir ríku lík­legri til að hald­ast ríkir.

Alda­mó­ta­kyn­slóðin byrjar ekki í jafn­góðri stöðu á vinnu­mark­aðnum og for­eldrar þeirra gerðu seint á síð­ustu öld. Sú þróun er þó ekki endi­lega slæm, þar sem tekjur ungs fólks hafa vaxið hraðar og lengur en tekjur fyrri kyn­slóða, lík­lega vegna auk­innar ásóknar í háskóla­nám.

Þrátt fyrir meiri tekjur er þó ekki víst hvort flest íslensk ung­menni muni hafa jafn­mikil tæki­færi og for­eldrar þeirra til að bæta hag sinn. Með minni félags­legum hreyf­an­leika gætu tæki­færin orðið ójafn­ari, en slíkt gæti dregið úr þeim jöfnu tæki­færum sem Íslend­ingar hafa verið frægir fyrir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jöfnuður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár