Nýr gagnagrunnur um þróun lífskjara á Íslandi

For­sæt­is­ráð­herra opn­aði vef­inn Tekju­sagan.is í dag sem er nýr gagna­grunnur stjórn­valda. Gagna­grunn­ur­inn gerir almenn­ingi kleift að skoða með aðgengi­legum hætti breyt­ingar á lífs­kjörum ein­stakra hópa á 25 ára tíma­bili, frá árinu 1991 til 2017.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra opnaði vefinn tekjusagan.is á blaðamannafundi í Ráðherrabústaðnum í dag. Vefurinn veitir aðgang að gagnagrunni um lífskjör landsmanna. Hver sem er getur skoðað þróun ráðstöfunartekna mismunandi hópa, áhrif skatta og bóta auk félagsleg hreyfanleika. Forsætisráðuneytið hefur um rúmlega eins árs skeið unnið að gerð gagnagrunnsins en hann byggir á ópersónugreinanlegum upplýsingum úr skattframtölum allra einstaklinga á Íslandi frá árinu 1991 til 2017. Tekjusögunni er ætlað til að auka gagnsæi og aðstoða stjórnvöld við að meta áhrif breytinga á sköttum og bótum á lífskjör einstakra hópa.

Launaumslagið og lífshlaupið

Tekjusagan skiptist í tvo hluta, annars vegar launaumslagið sem lýsir þróun mánaðarlegra tekna, skatta og bóta ríkis og sveitarfélaga á tímabilinu 1991-2017 á föstu verði ársins 2017 og hins vegar lífshlaupið sem lýsir hreyfingu einstaklinga á milli tekjutíunda yfir tíma. [adspot]

Í launaumslaginu er hægt að velja sér ákveðin hóp til skoðunar en unnt er að velja sér hóp eftir tekjutíund, aldri, búsetu, hjúskaparstöðu, barnafjölda og tegund húsnæðis. Ásamt því er hægt að bera saman ráðstöfunartekjur tveggja ólíkra hópa.

Til dæmis ef borin eru saman mánaðarlegar ráðstöfunartekjur á föstu verðlagi árið 2017 hjá einstæðum körlum sem eiga húsnæði og búa á höfuðborgarsvæðinu, sem eru í sjöttu tekjutíund, á aldrinum 25 til 24 ára og með 1 til 2 börn, við mánaðarlegar ráðstöfunartekjur hjá einstæðrar konu úr sömu tekjutíund, á sama aldursbili, með sama barnafjölda og sömu tegund húsnæðis og búsetu. Þá má sjá að samkvæmt þessum forsendum er munurinn ráðstöfunartekjum þeirra er 91.387 krónur árið 2017.


Má sjá hvernig fólk hreyfist á milli tekjuflokka

Í lífs­hlaup­inu má skoða hvernig fólk hreyf­ist á milli tekju­tí­unda yfir ákveðið tíma­bil, og hversu stórt hlut­fall fær­ist upp og niður tekju­tí­undir eða stendur i stað. Með því að raða öllum ein­stak­lingum eftir árs­tekjum og skipta þeim upp í tíu jafn­stóra hópa var fundið tekju­tí­und allra ein­stak­linga á vinnu­mark­aði.

Samkvæmt for­sæt­is­ráðu­neyt­inu er lífs­hlaupið góður mæli­kvarði á félags­legan hreyf­an­leika og þá bendi þessi gögn sterk­lega til þess að félags­legur hreyf­an­leiki sé mik­ill á Íslandi. Sem dæmi má með Lífs­hlaup­inu greina að hlut­fall yngra fólks í efstu tekju­tí­und hefur lækkað síð­ast­lið­inn ald­ar­fjórð­ung á meðan hlut­fall eldra fólks hefur hækkað.

Segir að með gagnagrunninum séu stjórnvöld komin með styrkan grundvöll undir umræður um kjaramál

Katrín Jak­obs­dóttir segir Tekju­sög­una vera mik­il­vægt inn­legg í sam­ráð stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins. „Það er þörf á áreið­an­legum og óum­deildum gagna­grunni með launa­töl­fræði sem allir hafa aðgang að til að hægt sé að leggja mat á launa­þróun auk áhrifa skatta og bóta með óum­deildum og áreið­an­legum hætti. Ég tel að með Tekju­sög­unni séum við komin með styrkan grund­völl undir umræður um kjara­mál,“ segir Katrín.

Hún bætir við að hægt sé að nota Tekjusöguna til að sjá hvaða hópar þurfa sérstaklega athygli. „Það er lykilatriði fyrir stjórnvöld að hafa aðgang að áreiðanlegum upplýsingum þegar kemur að stefnumótun og ákvarðanatöku. Tekjusagan gerir okkur kleift að sjá hvernig lífskjör mismunandi hópa hafa þróast, hvaða hópum hefur vegnað vel og hvaða hópar þurfa sérstaka athygli,“ segir Katrín.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, segir þessa vinnu vera einstaka á evrópska vísu, aldrei áður hafi verið farið í jafn yfirgripsmikla og ýtarlega gagnasöfnun og rannsókn á lífskjaraþróun á Íslandi. „Það er ánægjulegt að sjá að okkur hefur miðað áfram og að allir hafa það betra þótt, eins og fram kom í máli forsætisráðherra, módelið sýni okkur hópa sem hafa ekki notið eins mikils vaxtar og við vildum. Það gefur okkur um leið tækifæri til að bregðast við því með markvissum aðgerðum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár