Sjálfstæðis- og Framsóknarmenn hafa áberandi minnstar áhyggjur af spillingu

Íslend­ingar hafa nær engar áhyggjur af aðgengi að lánsfé eða hryðju­verkum. Áhyggjur þeirra snúa að heil­brigð­is­þjón­ustu, spill­ingu, hús­næð­is­málum og félags­legum ójöfn­uði. Áhyggjur eru mjög mis­mun­andi eftir stjórn­mála­skoð­unum.

Kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks hafa áber­andi minni áhyggjur af því að spill­ing þrí­fist í fjár­málum og/eða stjórn­málum á Íslandi en kjós­endur ann­arra flokka. Alls hafa 42 pró­sent lands­manna áhyggjur af slíkri spill­ingu, en ein­ungis 22 pró­sent kjós­enda Sjálf­stæð­is­flokks hafa þær og 23 pró­sent kjós­enda Fram­sókn­ar­flokks­ins.

Til sam­an­burðar hafa 60 pró­sent kjós­enda Pírata áhyggjur af spill­ingu og 51 pró­sent kjós­enda Flokks fólks­ins og Mið­flokks­ins. Þetta kemur fram í nýrri könnun frá MMR.

Nið­ur­stöð­urnar ríma við nið­ur­stöðu alþjóð­legu við­horfskönn­un­ar­innar, sem lögð var fyrir hér­lendis á vor­mán­uðum 2017, og sýndi að lang­flestir Íslend­ingar sjá ein­hverja spill­ingu á meðal íslenskra stjórn­mála­manna og veru­legur hluti telur að hún sé mjög mikil. Einungis sjö pró­sent þátt­tak­enda í þeirri könnun töldu nán­ast enga stjórn­mála­menn spillta, 21 pró­sent sögðu að það væru fáeinir spilltir stjórn­mála­menn, 38 pró­sent sögðu þá nokkra, 29 pró­sent töldu þá marga og fimm pró­sent aðspurðra sögðu að allir stjórn­mála­menn væru spilltir. Í alþjóð­legu við­horfskönn­un­inni voru kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks langólík­leg­astir til að telja að spill­ing væri útbreidd á meðal stjórn­mála­manna, en 18 pró­sent þeirra töldu svo vera. Fram­sókn­ar­menn voru næst ólík­leg­astir til þess, en fjórði hver slíkur taldi sig sjá útbreidda spill­ingu.

Kjósendur úr mismunandi heimum

Í könnun MMR var einnig kannað hvort að Íslend­ingar hefðu áhyggjur af ýmsu öðru. Alls sögð­ust 44 pró­sent hafa áhyggjur af heil­brigð­is­þjón­ustu. Slíkar áhyggjur var síst að finna á meðal kjós­enda Flokks fólks­ins (30 pró­sent) ann­ars vegar og Fram­sóknar og Við­reisnar (32 pró­sent) hins vegar.

Rúmlega þriðj­ungur lands­manna, 34 pró­sent, höfðu áhyggjur af hús­næð­is­málum. Þær áhyggjur voru mestar hjá kjós­endum Pírata (41 pró­sent og Vinstri grænna (40 pró­sent) en lang­minnstar hjá kjós­endum Sjálf­stæð­is­flokks og Mið­flokks (26 pró­sent). Það ætti varla að koma neinum á óvart að hús­næð­is­á­hyggjur voru miklu meiri hjá fólki undir þrí­tugu (55 pró­sent) en þeim sem eru komnir yfir fimm­tugt (18-20 pró­sent).

Þegar spurt var um áhyggjur af fátækt og/eða félags­legum ójöfn­uði svör­uðu 31 pró­sent aðspurðra þeirri spurn­ingu ját­andi. Kjós­endur Sam­fylk­ing­ar­innar (48 pró­sent) og Flokks fólks­ins (43 pró­sent) höfðu mestar áhyggjur af þeirri breytu en kjós­endur Sjálf­stæð­is­flokks­ins voru afger­andi þeir sem höfðu minnstar áhyggjur af fátækt og félags­legum ójöfn­uði. Einungis tíu pró­sent kjós­enda þess flokks höfðu slíkar áhyggjur.

Einungis eitt pró­sent lands­manna hafði áhyggjur af aðgengi að lánsfé og tvö pró­sent höfðu þær vegna hryðju­verka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Jöfnuður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár